Viðskipti innlent

Vogir skoðaðar í matvöruverslunum

Haukur Viðar Alfreðsson skrifar
Löggilda á vogir sem notaðar eru til verðlagningar í verslunum á tveggja ára fresti.
Löggilda á vogir sem notaðar eru til verðlagningar í verslunum á tveggja ára fresti. mynd/hrönn
Neytendastofa skoðaði á dögunum ástand löggildingar voga í matvöruverslunum. Þar er átt við vogir sem notaðar eru til að vigta vörur og verðleggja þær. Segir í tilkynningu frá Neytendastofu að löggilda eigi vogir sem notaðar eru til verðlagningar í verslunum á tveggja ára fresti. Við löggildingu á vogum er sannreynt að vogin sé að vigta rétt.

Skoðaðaðar voru 437 vogir hjá alls 83 matvöruverslunum í Hveragerði, í Árborg og á höfuðborgarsvæðinu og gerðar athugasemdir við 18 vogir í fimm verslunum þar sem löggilding var runnin úr gildi. Athugasemdir voru gerðar hjá Mini Market í Drafnarfelli, Krónunni í Rofabæ, Plúsmarkaðnum í Hátúni, Bónus í Holtagörðum og Nóatúni í Hamraborg.

Til staðfestingar á löggildingunni er settur á áberandi stað límmiði sem segir til um gildistíma löggildingarinnar. Viðskiptavinurinn á að geta séð auðveldlega á miðann. Algengast er að vogirnar séu við afgreiðslukassana en eins eru vogir sem verðmerkja staðsettar í kjöt- og fiskiborðum nokkurra verslana. Þar á viðskipavinurinn einnig að geta séð auðveldlega á löggildingarmiðann.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×