Rafræn skilríki komin í farsíma Þorgils Jónsson skrifar 21. nóvember 2013 08:34 Möguleikum sem fylgja fjarskiptabyltingunni fjölgar stöðugt. Mynd/Síminn
Ný farsímakort frá Símanum eru nú orðin fullgild rafræn skilríki sem gilda fyrst um sinn inni á þjónustusíðum Símans, en innan tíðar munu fleiri fyrirtæki og stofnanir bjóða upp á slíkt. Í fréttatilkynningu segir að rafræn skilríki muni í framtíðinni gera notenda- og lykilorð óþörf, þar sem aðeins eitt PIN-númer muni gilda fyrir alla þjónustu. Innleiðing rafrænna skilríkja fyrir farsíma er afrakstur samstarfs Símans, Auðkennis og viðskiptabankanna, en Þór Jes Þórisson, framkvæmdastjóri þróunarsviðs Símans, segir í tilkynningunni að netbankar, tryggingafélög og ríkisstofnanir muni væntanlega bjóða slíka þjónustu fljótlega. Haraldur A. Bjarnason, framkvæmdastjóri Auðkennis, segir róttækar breytingar fram undan þar sem skilríki á farsíma sé hægt að nota hvar og hvenær sem er. „Hvort sem þjónustan er sótt í gegnum símann, spjaldtölvuna, fartölvuna eða gömlu góðu borðtölvuna, þá virka skilríkin. Allt sem þarf er farsími og PIN.“ Haraldur segir að í framtíðinni verði jafnvel hægt að kjósa með hjálp farsímans. „Þetta er ekki aðeins öruggari leið en þekkist með hefðbundnu notendanafni og lykilorði heldur mun þægilegri þar sem viðskiptavinir þurfa ekki að muna fjölmörg ólík notendanöfn og lykilorð inn á vefi sem notaðir eru sjaldan.“
Mest lesið Hvernig bæti ég fjárhagslegt öryggi þegar ég verð eldri? Viðskipti innlent Spá verulega aukinni verðbólgu vegna breytinga Viðskipti innlent Eitt besta leitarárið á norska landgrunninu Viðskipti erlent Hvað þurfum við að eiga mikið til að geta hætt að vinna? Viðskipti innlent Hulda til Basalt arkitekta Viðskipti innlent Ætluðu að nýta greidd sæti en fengu ekki Neytendur „Hvers vegna þarf ég að vera bara verkfræðingur eða bara smiður?“ Atvinnulíf Skipta um forstjóra hjá Origo Viðskipti innlent Úr útvarpinu í orkumálin Viðskipti innlent Afsökunum fyrir að drekka ekki kaffi fer fækkandi Atvinnulíf Fleiri fréttir Hulda til Basalt arkitekta Hvernig bæti ég fjárhagslegt öryggi þegar ég verð eldri? Úr útvarpinu í orkumálin Spá verulega aukinni verðbólgu vegna breytinga Skipta um forstjóra hjá Origo Segir komið í veg fyrir að starfsmenn Vélfags fái greitt Úthluta rúmlega þrjátíu þúsund tonna loðnukvóta Íslendingar aldrei farið í fleiri utanlandsferðir Eldur segir Bandaríkjastjórn íhuga fjárfestingu og Amaroq tekur stökk S4S-veldið tekur við Lindex Nýr íslenskur rekstraraðili tekur við Lindex Eldur og Amaroq í sviðsljósi erlendra fjölmiðla Bíllinn þremur milljónum dýrari Lindex lokað á Íslandi Ólafur Orri Ólafsson Ólafssonar nýr forstjóri Samskipa Fjörutíu ára sögu American Style í Skipholti lokið Síðasta Heilsuhúsinu brátt lokað Auddi og Rakel hafa valið nafn og leita að starfskröftum Engin innköllun á NAN þurrmjólk á Íslandi Freyr lætur af störfum sem forstjóri Kapps Ingvar Freyr nýr hagfræðingur BHM Sonur tekur við af föður hjá Klöppum Útgáfu ViðskiptaMogga hætt og deildum fækkað Fjögurra milljarða gjaldið gæti hækkað verði ekkert úr áframhaldandi undanþágu Um fimm prósenta hækkun fasteignaverðs spáð á árinu Til í að taka á móti FDA hvenær sem er Grímur hættir hjá Bláa lóninu og Sigríður Margrét tekur við Róbert hættir sem forstjóri Alvotech 54 sagt upp í tveimur hópuppsögnum Icelandair setur nokkur met Sjá meira