Hagnaður Landsbankans jókst um tæplega 70% milli ára Stefán Árni Pálsson skrifar 21. nóvember 2013 18:10
Landsbankinn hefur sent frá sér tilkynningu fyrir afkomu bankans fyrstu níu mánuði ársins en hagnaður bankans nemur rúmum 22 milljörðum á fyrstu þremur ársfjórðungum. Gríðarlega aukning er á hagnaði bankans milli ára en á sama tíma á síðasta ári var hann 13,5 milljarðar. Það mun vera tæplega 70% aukning á milli ára. Þessi breyting skýrist einkanlega af hækkun annarra rekstrartekna, lækkun kostnaðar, af hækkandi virði hluta- og skuldabréfa, af virðisbreytingu lána og hærri þjónustutekjum. „Rekstur og arðsemi bankans er með ágætum, jákvæð þróun bæði í tekjum og kostnaði og fjárhagsstaðan er traust. Eiginfjárhlutfallið er vel umfram kröfur eftirlitsaðila sem og lausafjárstaða bankans, bæði í erlendri mynt og íslenskum krónum,“ segir Steinþór Pálsson, bankastjóri Landsbankans, í fréttatilkynningu. „Mikill árangur hefur náðst í lækkun rekstrarkostnaðar og að teknu tilliti til verðbólgu er raunlækkun rekstrarkostnaðar 9,4% á fyrstu níu mánuðum ársins. Þetta er betri árangur en áætlanir okkar gerðu ráð fyrir.“ „Við munum halda áfram á sömu braut, draga úr áhættu og draga úr kostnaði en á sama tíma vinna að því að bæta stöðugt þjónustuna við viðskiptavini. Slitastjórn LBI hf. Hefur samþykkt viðræður um breytingar á skilmálum skuldabréfanna sem Landsbankinn gaf út til LBI hf. Niðurstöður þessara viðræðna geta skipt miklu um afnám fjármagnshaftanna og eru eitt mikilverðasta verkefni bankans sem stendur. Áfram er unnið að leiðréttingu á endurútreikningi lána með ólögmæta gengistryggingu og ljóst að brátt fer það verkefni að klárast.“
Mest lesið Eykur hlut sinn í Rafnari fyrir hálfan milljarð Viðskipti innlent Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Viðskipti innlent Arion hækkar vexti á ný Viðskipti innlent „Það þýðir ekki að pissa í skóinn sinn“ Neytendur Sýn leggur niður sjónvarpsfréttir Viðskipti innlent Ekki eftir neinu að slægjast í þrotabúi Slægingar Viðskipti innlent Gosdrykkjaframleiðsla Gosfélagsins hafin í Hafnarfirði Viðskipti innlent Sjávarútvegurinn lækkar í kjölfar nei-sins Viðskipti innlent Bensínverð hækkar aftur á morgun Viðskipti innlent Hagkerfið kólnar en er ekki í kreppu Viðskipti innlent Fleiri fréttir Eykur hlut sinn í Rafnari fyrir hálfan milljarð Arion hækkar vexti á ný Bensínverð hækkar aftur á morgun Gosdrykkjaframleiðsla Gosfélagsins hafin í Hafnarfirði Hagkerfið kólnar en er ekki í kreppu Ekki eftir neinu að slægjast í þrotabúi Slægingar Sjávarútvegurinn lækkar í kjölfar nei-sins Sýn leggur niður sjónvarpsfréttir Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Íslandsbanki hækkar vexti Segir styttast í niðurstöður samráðs vegna kjarasamninga Elín Hirst stofnar fyrirtæki Hefur daglegt flug milli Keflavíkur og Fíladelfíu næsta sumar Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn „Hafa pakkað niður sleggjunni og eru tilbúnir að senda hana til Brussel“ Gagnrýna Viðskiptaráð fyrir að sleppa fjórðu útflutningsstoðinni Verðbólga eykst: Forsendur kjarasamninga brostnar Brynjar Már fer yfir til Corus frá Isavia Auknar tekjur og minni kostnaður Guðmundur Fertram verður sérlegur erindreki Atvinnuleysi jókst í júlí Hreiðar vill hægja á og selja Stracta-hótel Nýr og umdeildur Gotti tekinn úr loftinu Eggert skipaður forstjóri Hafrannsóknastofnunar Hótelin fá ný nöfn Hættir sem forstjóri Elkem og hefur störf hjá Travel Connect Af hverju eru allir að eyða svona miklu? Alvotech tekur stökk eftir greiningu Bank of America Högnuðust um hálfan annan milljarð Elkem segir tollfrelsi geta skilað 350 milljónum á ári Sjá meira
Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Viðskipti innlent
Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Viðskipti innlent