Hjartnæmir tónleikar Jónas Sen skrifar 9. desember 2013 11:00 Garðar Cortes. "Garðar stjórnaði túlkuninni þannig að hún varð afar sannfærandi. Hvergi var dauður punktur í henni.“ Fréttablaðið/Stefán
Tónlist: Mozart: Sálumessa Langholtskirkju, aðfaranótt fimmtudagsins 5. desember. Flytjendur: Óperukórinn og hljómsveit ásamt einsöngvurum. Stjórnandi: Garðar Cortes. Þeir voru fölir, hljóðfæraleikararnir sem gengu á sviðið í Langholtskirkju á miðvikudagskvöldið. Nei, ekki um kvöldið heldur um nóttina. Klukkan hálf eitt aðfaranótt fimmtudagsins, hvorki meira né minna. Af hverju í ósköpunum að halda tónleika eftir miðnætti á virkum degi? Jú, sálumessa Mozarts var á dagskránni, og Mozart dó skömmu eftir miðnætti þennan dag árið 1791. Garðar Cortes stjórnaði Óperukórnum og hljómsveit sem mér sýndist samanstanda af hljóðfæraleikurum úr Sinfóníunni. Hann hélt stutta tölu á undan. Minntist þeirra tónlistarmanna sem létust á árinu. Sagði einnig frá því hvernig dauða Mozarts bar að. Hann var þá nýbyrjaður að semja sálumessu sem hafði verið pöntuð. Honum tókst ekki að klára hana, nemandi hans sá um það síðar. Nokkrir vinir Mozarts voru hjá honum á dauðastundinni og sungu fyrir hann hluta úr messunni án hljóðfæraleiks. Minningarorðin voru hjartnæm, og það var líka eitthvað hjartnæmt við tónleikana í heild. Þrátt fyrir þennan vonda tónleikatíma var furðulegt hversu vel heppnaðist. Hinir fölu hljóðfæraleikarar spiluðu af nákvæmni og krafti. Enda prýðilegur konsertmeistari fremst á sviðinu, Una Sveinbjarnardóttir. Hún leiddi hljóðfæraleikarana af röggsemi. Kórinn var jafnframt frábær. Söngurinn var gríðarlega þéttur og líflegur, sem hljómar kannski mótsagnarkennt þegar sálumessa er annars vegar. En hafa ber í huga að sálumessa Mozarts er fyrst og fremst stórfenglegt tónverk, ekki trúarathöfn. Atburðarásin er hröð, framvindan rösk og spennandi. Garðar stjórnaði túlkuninni þannig að hún varð afar sannfærandi. Hvergi var dauður punktur í henni. Þvert á móti var hún full af gleði og lífi. Einsöngvararnir voru fínir. Það voru Þóra Einarsdóttir, Sigríður Ósk Kristjánsdóttir, Garðar Thór Cortes og Kristinn Sigmundsson. Það getur varla verið auðvelt að syngja einsöng eftir miðnætti! En ekki var nein þreytumerki að heyra á einsöngvurunum. Þvert á móti. Söngurinn var hljómmikill og tær, fyllilega í anda tónskáldsins. Þetta var áhrifarík stund.Niðurstaða: Sálumessa Mozarts var stórbrotin og glæsileg.
Gagnrýni Mest lesið „Við erum öll dauð hvort sem er“ Lífið Íslenska stelpan sem gerðist mormóni Lífið Fáklæddir barþjónar þegar Regnboginn opnaði í Bíó Paradís Lífið 500 Esjuferðir á árinu: „Sumir hrista bara hausinn og lygna augunum“ Lífið Útgefandi Walliams lætur hann róa Lífið „Ég heyrði þá kalla á mig en gat engu svarað“ Lífið Fréttatía vikunnar: Rob Reiner, Dóra Björt og fullir unglingar Lífið Best klæddu Íslendingarnir 2025 Tíska og hönnun Heilsu krónprinsessunnar hrakar gríðarlega Lífið Þriðja stigs krabbameinið það besta sem kom fyrir hann Lífið Fleiri fréttir Úr öskunni í eldinn Upphitaðir afneitunarafgangar Frosta Jólatónleikar eru ekki tónlist. Þeir eru neyðaraðgerð Aðeins of leiðinlegt til að vera skemmtilegt Vonlaust í víkinni Hörkuhasar þótt persónusköpun skorti Bragðlaust eins og skyr með sykri Sambandslaus Hamlet Sjá meira