Íslandsmeistaramót í ökuleikni Finnur Thorlacius skrifar 4. október 2013 10:30 Ökumönnum gefst kostur á að reyna hæfni sína um helgina.
Á morgun mun Brautin, bindindisfélag ökumanna halda Íslandsmeistaramót í ökuleikni á Kirkjusandi í Reykjavík, en félagið er 60 ára um þessar mundir. Á morgun, laugardag verður keppt á rútum og trukkum og gefst öllum sem hafa meirapróf kostur á að koma og spreyta sig við akstur við ýmsar aðstæður sem flestir lenda í daglega. Sett verða upp tvö þrautaplön fyrir hvorn riðil og hefur það verið samdóma álit keppenda til þessa að þau endurspegli vel þau verkefni sem hver ökumaður þarf að leysa daglega í umferðinni. Þrautaplönin má sjá á heimasíðu Brautarinnar, www.brautin.is og þar má einnig skrá sig til keppni. Dagskrá laugardags: 11:30. Mæting fyrir rútukeppni 12:00. Rútukeppni hefst 13:30. Mæting fyrir trukka- og sendibílakeppni 14:00. Trukkka og sendibílakeppni hefst 16:00. Verðlaunaafhending Á sunnudag, 6. október verður Íslandsmeistaramót í ökuleikni á fólksbílum. Keppt verður í karla- og kvennaflokki, auk þess sem keppendur geta keppt sem lið. Dagskrá fyrir sunnudag: 11:30. Mæting keppenda 12:00. Keppni hefst 16:00. Verðlaunaafhending Þeir ökumenn sem vilja kanna hæfni sína í akstri eru því hvattir til að koma og taka þátt. Lagðar verða léttar umferðarspurningar fyrir keppendur að venju. Með því eru þeir að leggja sitt af mörkum til að bæta umferðarmenningu landsmanna. Einu kröfurnar eru að viðkomandi hafi gilt ökuleyfi til að aka þessum tækjum. Sjá má myndir á heimasíðu Brautarinnar frá síðustu keppnum hér: http://www.brautin.is/okuleikni/myndir/myndir-2012/ Upplýsingar veita Einar Guðmundsson í síma 8257110, Guðmundur Karl Einarsson í síma 6904005 og Páll H. Halldórsson í síma 6642103.
Mest lesið Afsalar sér verðlaunum fyrir Sykurbað Innlent Hafi þegið pening fyrir að giftast kærustu Quang Le Innlent „Þetta er náttúrlega djöfulsins bruðl“ Innlent Uppgjör í undirheimunum undir Höfðatorgi Innlent Þingheimur hló að þýðingu Daða Más Innlent Gríðarstór vatnselgur undir Breiðholtsbrú Innlent Hvöss suðvestanátt og él fram á laugardagsmorgun Innlent Hart sótt að fjármálaráðherra Innlent „Mjög vont veður sem mun eflaust skapa vandamál“ Innlent Banksy opinberaður, enn einu sinni Erlent