Viðskipti innlent

Eimskip opnar nýja skrifstofu í Póllandi

Piotr Grezenkowicz er forstöðumaður skrifstofunnar.
Piotr Grezenkowicz er forstöðumaður skrifstofunnar.
Eimskip mun opna nýja skrifstofu í Gdynia í Póllandi frá og með 1. mars næstkomandi. Piotr Grezenkowicz hefur verið ráðinn í starf forstöðumanns þar. Piotr hefur mikla reynslu á sviði flutninga og flutningsmiðlunar. Hann hefur starfað hjá Morska Agencja Gdynia, síðastliðin 20 ár og var nú síðast yfirmaður flutningasviðs. Piotr umboðsmaður fyrir Hapag-Lloyd Container Line í Póllandi á árunum 1995- 2005. Piotr útskrifaðist með MSc gráðu frá Háskólanum í Gdansk árið 1994 í viðskiptafræðum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×