Afgangur á vöruskiptum með minna móti í ágúst Óli Kristján Ármannsson skrifar 5. september 2013 09:18 Einhverjar breytingar geta orðið frá birtum bráðabirgðatölum Hagstofu og endurskoðuðum tölum.
Vöruskipti við útlönd í ágústmánuði voru hagstæð um tæpa þrjá milljarða króna samkvæmt bráðabirgðatölum Hagstofunnar. Í júlí nam vöruskiptaafgangur 4,5 milljörðum króna. Í tölunum, sem Hagstofan birti í morgun, kemur fram að útflutningur hafi numið tæpum 44,2 milljörðum króna og innflutningur 41,2 milljörðum. Í umfjöllun Greiningar Íslandsbanka um tölur Hagstofunnar kemur fram að afgangur af vöruskiptum gæti orðið nokkru minni í ár en raunin var í fyrra. "Á móti minnkandi gjaldeyrisinnflæði vegna vöruviðskipta vegur að horfur eru á talsvert auknu innflæði vegna þjónustujafnaðar þetta árið," segir í skrifum Greiningar. Afgangur af vöruskiptum er sagður hafa verið með minna móti í ágúst, ef miðað er við meðaltal 12 mánaðanna þar á undan. „Vöruútflutningurinn í ágúst var í minna lagi, og skrifast það að mestu leyti á lítinn útflutning iðnaðarvara, væntanlega áls að stærstum hluta. Nokkur sveifla getur verið milli mánaða í álútflutningi eftir því hvernig stendur á skipaferðum, en auk þess hefur álverð haldist lágt á erlendum mörkuðum. Útflutningur sjávarafurða var hins vegar í meðallagi miðað við undanfarna mánuði,“ segir Greining Íslandsbanka. Um leið er áréttað að raunar hafi vöruinnflutningur einnig verið lítill í ágúst og að þurfi að fara aftur um ár til að finna jafn lítinn innflutning í einum mánuði. „Innflutningur á öllum helstu vöruflokkum var með minna móti, en sér í lagi var lítið flutt inn af hrá- og rekstrarvörum. Þá var innflutningur bæði fjárfestingarvara og flutningatækja sá minnsti frá því í fyrrahaust.“ Bent er á að vöruskiptaafgangur það sem af er ári nemi 31,1 milljarði króna og til samanburðar að afgangur á sama tímabili í fyrra hafi verið 40,2 milljarðar. „Minni afgangur þetta árið skýrist alfarið af mun minni útflutningstekjum. Þær hafa dregist saman um 5% á milli ára en kostnaður vegna vöruinnflutnings hefur minnkað um rúm 3% á sama tíma.“ Minni útflutningstekjur eru sagðar skýrast af verðlækkun á sjávarafurðum og áli á milli ára. „Vöruskiptaafgangur mun væntanlega sækja nokkuð í sig veðrið á seinustu mánuðum ársins. Fiskverð hefur heldur verið að hækka erlendis og aukinn kvóti ætti að skila talsvert meira útfluttu magni í vetur en á síðasta fiskveiðiári," segir í umfjöllun Greiningar. „Á móti gæti innflutningur aukist nokkuð, ekki síst innflutningur fjárfestingarvara sem hefur verið lítill undanfarið auk þess sem innflutningur neysluvara mun líklega vaxa.“ Vöruskiptaafgangur er þó líklega sagður verða minni en í fyrra og vöruskipti skili því væntanlega minna gjaldeyrisinnflæði. „Á móti vegur að þjónustuafgangur verður líklega talsvert meiri en í fyrra og gjaldeyrisinnflæði vegna hans að sama skapi meira.“ Nýjustu tölur um inn- og útflutning má finna á vef Hagstofunnar.
Mest lesið Aukin skattheimta og aukin samkeppni í boði ríkisins Viðskipti innlent Uggandi yfir afstöðu VR Viðskipti innlent Nýir veitingastaðir opnaðir á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju Viðskipti innlent Stýrivextir áfram átta prósent Viðskipti innlent Tölvuþrjótarnir hafi ekki komist yfir kortanúmer Viðskipti erlent Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðun sína Viðskipti innlent Sonur Kristjáns í hans stað á hvalveiðiráðstefnu Viðskipti innlent Notendur ASOS fá tilkynningu frá meintum tölvuþrjótum Viðskipti erlent Vill að þak verði sett á álagningu olíufélaga Viðskipti innlent Eru ríkisskuldabréfasjóðir öruggir? Viðskipti innlent Fleiri fréttir Aukin skattheimta og aukin samkeppni í boði ríkisins Nýir veitingastaðir opnaðir á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju Uggandi yfir afstöðu VR Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðun sína Stýrivextir áfram átta prósent Sonur Kristjáns í hans stað á hvalveiðiráðstefnu Vill að þak verði sett á álagningu olíufélaga Eru ríkisskuldabréfasjóðir öruggir? Tæplega þrjátíu sagt upp Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Ráðinn sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Fastus Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Enn lækkar Ísland í nýsköpunarvísitölunni Boðaði til starfsmannafundar og mætti í stjórnarráðið Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Spá óbreyttum vöxtum Minnsta hlutabréfavelta frá faraldursárinu 2020 Sjá meira