Samsung auglýsingin kærð - sögð vega að samkeppnisaðila Nanna Elísa Jakobsdóttir skrifar 15. júlí 2013 09:00 Umdeild auglýsing. Skjáskot.
Kæra hefur borist Neytendastofu vegna Samsung-auglýsingar fyrirtækisins Tæknivara. Kærandinn er Skakkiturn ehf., fyrirtæki sem flytur inn og selur vörur frá bandaríska fyrirtækinu Apple [ísl. epli], og er þess krafist að bann verði lagt við birtingu auglýsingarinnar á grundvelli þess meðal annars að hún brjóti gegn reglum um samanburð í auglýsingum.Páll Rúnar M. Kristjánsson„Á Íslandi eru samanburðarauglýsingar almennt bannaðar nema að uppfylltum mjög ströngum skilyrðum. Það er fortakslaust bann lagt við því að vegið sé að samkeppnisaðila með því að kasta rýrð á vöru hans eða sýna henni lítilsvirðingu,“ segir Páll Rúnar M. Kristjánsson, lögmaður kæranda, og annar eigandi Málflutningsstofu Reykjavíkur. Auglýsingin, sem ber heitið „Fáðu þér síma sem skilur þig“, hefur vakið heimsathygli. Var meðal annars fjallað um hana á Vísi fyrr í vikunni. Umdeild auglýsing „Eplinu er haldið í lófa líkt og snjallsíma og gefnar skipanir sem eru dæmigerðar fyrir notkun þeirra. Að því loknu er eplinu haldið við eyra líkt og síma en af viðbrögðum notandans að dæma virkar eplið ekki sem skyldi,“ segir í kærunni en eftir að aðalpersónan í auglýsingunni kemst yfir Samsung Galaxy-síma tekur hún gleði sína á ný. „Þrátt fyrir að auglýsingin sé sett fram á nokkuð óhlutbundinn hátt er hún rík af myndmáli,“ segir í kærunni. Er þar vísað í tvö atriði, annars vegar sjálft eplið, sem kærandi segir augljóst að eigi við vörumerki fyrirtækisins Apple og snjallsímann iPhone frá Apple, og hins vegar í birtingarmynd íslensku sauðkindarinnar í auglýsingunni. „Sauðkindin táknar notanda Apple iPhone. Hann fylgir hjörðinni en tekur ekki þátt í gleðinni sem fylgir notkun á vöru kærða,“ er útskýrt í kærunni. Páll Rúnar segir að í auglýsingunni sé vegið að umbjóðanda hans með ólögmætum hætti. „Það má sjá af ummælum á samskiptamiðlum að mörgum sárnar þetta myndmál og skilaboð auglýsingarinnar.“ Hann segir niðurstöðu Neytendastofu fyrirsjáanlega en leggur áherslu á að málshraðinn sé hinn eiginlegi prófsteinn á réttlæti málsins. „Það var því mjög ánægjulegt að sjá snör og fagleg viðbrögð Neytendastofu við kærunni. Alvarleiki málsins endurspeglast vel í því hversu hratt stofnunin hefur brugðist við og hversu knappir allir frestir eru,“ segir hann og leggur áherslu á að auglýsingin hafi tjón í för með sér fyrir umbjóðanda hans sem ágerist með hverjum deginum.Sveinn TryggvasonSveinn Tryggvason, framkvæmdastjóri Tæknivara, sagðist ekki kannast við kæruna. Hann tók engu að síður fram að sér þætti langsótt að kæra auglýsinguna. „Þetta fjallar ekkert um okkar samkeppnisaðila heldur bara okkar vöru. Einhverjir hafa lesið í það myndmál að það séu ávextir í túnfætinum hjá dönsurunum og sauðfénu en það er óþarfa tilfinningasemi ef menn láta sér þetta koma til hugar. Menn hafa ekki mikla kímnigáfu ef þeir láta sér detta í hug að kæra svona.“ Ákvörðun í málinu mun að öllum líkindum liggja fyrir um mánaðamótin. Auglýsinguna má sjá hér.
Mest lesið Myndir: Allt á floti í Kringlunni Innlent Umfangsmikið mengunarslys vegna rútuslyssins Innlent „Sumar búðir hafa sloppið vel, aðrar ekki“ Innlent Náði ekki að loka búðinni áður en henni var sagt að koma sér út Innlent „Við munum ekkert hreyfa okkur í sumar“ Innlent Konungsskip Dana í Reykjavík Innlent Leiðinlegt fyrir útskriftarnema sem er hent út áður en þeir taka sopa Innlent Sumarveður fyrir sunnan en annars staðar skýjað Veður Sigurður Ingi ekki búinn að undirrita Isavia-samning Innlent Björgunarsveitir sinntu reiðslysi og gönguslysi í gær Innlent Fleiri fréttir Björgunarsveitir sinntu reiðslysi og gönguslysi í gær Myndir: Allt á floti í Kringlunni Umfangsmikið mengunarslys vegna rútuslyssins Konungsskip Dana í Reykjavík „Sumar búðir hafa sloppið vel, aðrar ekki“ Safnað fyrir gróðurskála á Kirkjubæjarklaustri „Við munum ekkert hreyfa okkur í sumar“ Flókið verkefni og mikið tjón í Kringlunni Leiðinlegt fyrir útskriftarnema sem er hent út áður en þeir taka sopa Eldur í Kringlunni og Kristján Loftsson um hvalveiðileyfið Náði ekki að loka búðinni áður en henni var sagt að koma sér út Héldu fyrst að þetta væri brunaæfing Sigurður Ingi ekki búinn að undirrita Isavia-samning Eldur logar í þaki Kringlunnar Björgunarsveit kölluð út í Þórsmörk Áhyggjur af vanda drengja í menntakerfinu óþarfar Þyrlan kölluð út vegna reiðslyss Kjósendur Jóns Gnarr líklegastir til að vera ósáttir með Höllu Vilja banna hvalveiðar með lögum Áttatíu prósent af plasti í fjörum landsins kemur frá útlöndum Efast um að ráðherrar nái fram markmiði sínu Tveimur haldið sofandi vegna slyssins Rútuslys í Öxnadal og meintar rangfærslur ráðherra Guðni snýr aftur í sagnfræðina Leita að nýju húsnæði fyrir kaffistofu Samhjálpar Öxnadalsheiði opin á ný Harma banaslysið og hafa uppfært verkferla Bein útsending: Brautskráningar Háskóla Íslands Svandís og Sigurður Ingi sögð bakka upp bílastæðagjöldin Of snemmt að kenna bikblæðingum um Sjá meira