Vilja draga úr kostnaði við opinbert eftirlit Þorbjörn Þórðarson skrifar 1. ágúst 2013 21:57
Áhugi er fyrir því innan ríkisstjórnarflokkanna að draga úr kostnaði við opinbert eftirlit og láta kostnaðinn samrýmast betur þörf. Þannig endurspegli stærð eftirlitsstofnana umfangi verkefna þeirra. Vilji er til þess innan ríkisstjórnarflokkanna að spara með því að draga úr opinberu eftirliti. Stöð 2 byggir þetta á samtölum við stjórnarþingmenn. Sparnaður næst fram skerðingum útgjalda til þeirra stofnana sem fjármagnaðar eru af ríkinu. Þá eru aðrar stofnanir sem fjármagnaður eru með sérstökum gjöldum, eins og Neytendastofa, Talsmaður neytenda og Samkeppnisstofnun. Fjármálaeftirlitið er ekki fjármagnað af ríkinu, enda greiðist kostnaðurinn af eftirlitsskyldum aðilum. Finnski bankasérfræðingurinn Kaarlo Jännäri lagði til í skýrslu sem hann vann fyrir íslensk stjórnvöld eftir hrun að Seðlabankinn og FME yrðu sameinuð að nýju. Þetta fór aldrei á neitt flug hjá fyrri ríkisstjórn þótt Steingrímur J. Sigfússon, fyrrum fjármálaráðherra, hafi tekið vel í slíkar hugmyndir í viðtali í Klinkinu á Stöð 2. FME er fjármagnað af eftirlitsskyldum aðilum, þ.e bönkum og tryggingafélögum. Hins vegar er talið að ná megi fram sparnaði með sameiningu við Seðlabankann. Guðlaugur Þór Þórðarson er í hagræðingarhópi ríkisstjórnarinnar. „Þetta er eitt af því sem þarf að skoða," segir Guðlaugur Þór um sameiningu FME og Seðlabankans.Myndi þetta leiða til sparnaðar? „Það þarf ekki fleiri skýrslur eða úttektir. Þær eru margar til. Það sem þarf að gera er að fara yfir þær og taka ákvörðun um hvort farið verði eftir leiðbeiningunum eða ekki. Þetta er bara eitt gott dæmi um það. Sömuleiðis þá ráðlagði sérfræðingurinn sem þú vísar til (Kaarlo Jännäri) að þessar stofnanir heyrðu undir sama ráðuneyti en því var breytt í tíð síðustu ríkisstjórnar."Fjármálaeftirlitið var eflt gríðarlega eftir hrun en stofnunin var dvergvaxin með hliðsjón af stærð bankakerfisins fyrir bankaáfallið. Sameining við Seðlabanka myndi stytta boðleiðir. Fjárhagslegur sparnaður fælist væntanlega í fækkun starfsmanna en fyrir 1998 var FME deild í Seðlabankanum. Ríkissjóður ber ábyrgð á öllum skuldbindingum Seðlabankans samkvæmt lögum um hann.Kostnaðurinn við opinbert eftirlit með fjármálastarfsemi á Íslandi þarf hins vegar að setja í samhengi. Á Íslandi voru afbrigðilegir tímar því allt fjármálakerfið hrundi, eitt stærsta tryggingafélag landsins fór á hausinn og önnur tryggingafélög voru leyst til kröfuhafa sinna. Hár kostnaður við opinbert eftirlit var í raun hörð viðbrögð stjórnvalda við mistökum fortíðar, en stofnanir eins og FME hafa það hlutverk eitt að gæta almannahagsmuna.Ath. fréttin var uppfærð kl. 11:14 hinn 2. ágúst. Í fyrri útgáfu fréttarinnar vantaði tengil á lög um Seðlabankann og þá féll út texti.
Mest lesið Eftirlitið á að hefjast á morgun en verður mótað eftir helgi Viðskipti innlent Útsendarar FDA í átta daga fyrirvaralausri úttekt hjá Alvotech Viðskipti innlent Búast við hærri vöxtum á óverðtryggðum lánum Viðskipti innlent Ferð í Silfru valin sú besta af því besta á heimsvísu Viðskipti innlent Sigrún ráðin aðalbókari Viðskipti innlent Enn meiri breytingar: Yfirmenn klónaðir með gervigreind Atvinnulíf Atvinnuleysi minnkar milli mánaða Viðskipti innlent Arion banki hækkar vexti Viðskipti innlent Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur ásamt Reitum Viðskipti innlent Telur enn að stýrivextir verði hækkaðir Viðskipti innlent Fleiri fréttir Eftirlitið á að hefjast á morgun en verður mótað eftir helgi Útsendarar FDA í átta daga fyrirvaralausri úttekt hjá Alvotech Arion banki hækkar vexti Búast við hærri vöxtum á óverðtryggðum lánum Sigrún ráðin aðalbókari Atvinnuleysi minnkar milli mánaða Ferð í Silfru valin sú besta af því besta á heimsvísu Húsnæði Kjötborgar til sölu Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur ásamt Reitum Óvissa með nöfnin og reynt að róa uggandi starfsmenn Vara við svikapóstum um lén frá DMS Iceland Telur enn að stýrivextir verði hækkaðir Fjárfestahagsmunir fremur en gervigreind skýri fækkun hjá Íslandsbanka Edda Rut tekur við af Ragnari Þór eftir tuttugu ár í brúnni Ráða þrjá í tengslum við stofnun nýs sjóðs Verðbólga hjaðnar Afkoma í samræmi við áætlanir hjá Símanum Horfa á eftir Steingrími og spara 180 milljónir á ári Icelandair tapaði 5,6 milljörðum króna Íslandsbanki fækkar starfsmönnum um fimmtíu Hagnaður jókst um 21 prósent á fyrsta ársfjórðungi Rekstur borgarinnar neikvæður um 5,3 milljarða í fyrra Sektað vegna auglýsinga fyrir „nikótínpúðajóladagatal“ Lýsa magnesíumverksmiðju sem „andstæðu loftslagsverkfræði“ Innkalla nautahakk vegna gruns um salmonellu Færðu Finnum Jónsbók Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Vara við svikaherferð í nafni bankans Sjá meira
Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur ásamt Reitum Viðskipti innlent
Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur ásamt Reitum Viðskipti innlent