Unnið að afnámi hafta á heimili og rekstrarfyrirtæki ÞSJ skrifar 4. janúar 2013 08:00 Mynd úr safni.
Unnið er að leiðum til að losa heimili og rekstrarfyrirtæki undan gjaldeyrishöftum og láta þau fyrst og fremst hvíla á fjármálaviðskiptum, samkvæmt heimildum Fréttablaðsins. Þá er stefnt að því að leggja fram frumvarp í þessum mánuði um breytingar á lögum um gjaldeyrishöft, þess efnis að afnám þeirra verði bundið efnahagslegum skilyrðum í stað þess að þau verði afnumin á ákveðnum tíma. Nefnd fulltrúa allra þingflokka sem vinnur að hugmyndum um afnám hafta mun auk þess koma á framfæri hugmyndum til Seðlabanka Íslands um leiðir sem hún telur að muni hjálpa til við afnám haftanna. Fréttablaðið greindi hinn 21. desember frá bréfi nefndarinnar til formanna stjórnmálaflokkanna. Þar kom fram að nefndarmenn væru sammála um að gjaldeyrishöft skyldu vera ótímabundin og að afnám þeirra yrði þess í stað háð efnahagslegum skilyrðum. Í kjölfarið fundaði nefndin með formönnunum. Heimildir Fréttablaðsins herma að þverpólitísk sátt sé um þær leiðir sem tíundaðar eru í bréfinu og að frumvarp um breytingarnar verði lagt fram snemma á komandi þingi, sem hefst 14. janúar. Samhliða verður lagt til við Seðlabanka Íslands að flýta sér hægt í að veita undanþágur fyrir þrotabú gömlu bankanna, Kaupþings og Glitnis, til gjaldeyrisviðskipta. Bæði þrotabúin hafa óskað eftir slíkum undanþágum til að geta klárað nauðasamninga. Nefndin vinnur auk þess að leiðum til að koma á umhverfi frjálsra fjármagnsflutninga fyrir heimili og rekstrarfyrirtæki eins fljótt og auðið er. Með því á að reyna að móta tillögur um hvernig hægt verði að afmarka höftin við fjármálaviðskipti. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins eru það helst aflandskrónur og endurgreiðslur úr þrotabúum föllnu bankanna sem höftin eiga áfram að ná til.
Mest lesið Nýir eigendur taka við svæðismiðlinum Trölla.is Viðskipti innlent Dóttirin föst á amerískum tíma og minningar um ást og andarteppu Atvinnulíf Lágjaldaflugfélagið Spirit Airlines hættir rekstri Viðskipti erlent Bensínverð hefur lækkað Viðskipti innlent Ætlar að hækka tolla á bíla frá Evrópu í 25 prósent Viðskipti erlent Atvinnuleysi minnkar milli mánaða Viðskipti innlent Arion banki hækkar vexti Viðskipti innlent Lúxusbílaframleiðandi bauð íslenskum bræðrum í draumaferð til Kína Samstarf Olían ekki verið dýrari síðan Pútín réðst inn í Úkraínu Viðskipti erlent Óvissa með nöfnin og reynt að róa uggandi starfsmenn Viðskipti innlent Fleiri fréttir Nýir eigendur taka við svæðismiðlinum Trölla.is Bensínverð hefur lækkað Eftirlitið á að hefjast á morgun en verður mótað eftir helgi Útsendarar FDA í átta daga fyrirvaralausri úttekt hjá Alvotech Arion banki hækkar vexti Búast við hærri vöxtum á óverðtryggðum lánum Sigrún ráðin aðalbókari Atvinnuleysi minnkar milli mánaða Ferð í Silfru valin sú besta af því besta á heimsvísu Húsnæði Kjötborgar til sölu Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur ásamt Reitum Óvissa með nöfnin og reynt að róa uggandi starfsmenn Vara við svikapóstum um lén frá DMS Iceland Telur enn að stýrivextir verði hækkaðir Fjárfestahagsmunir fremur en gervigreind skýri fækkun hjá Íslandsbanka Edda Rut tekur við af Ragnari Þór eftir tuttugu ár í brúnni Ráða þrjá í tengslum við stofnun nýs sjóðs Verðbólga hjaðnar Afkoma í samræmi við áætlanir hjá Símanum Horfa á eftir Steingrími og spara 180 milljónir á ári Icelandair tapaði 5,6 milljörðum króna Íslandsbanki fækkar starfsmönnum um fimmtíu Hagnaður jókst um 21 prósent á fyrsta ársfjórðungi Rekstur borgarinnar neikvæður um 5,3 milljarða í fyrra Sektað vegna auglýsinga fyrir „nikótínpúðajóladagatal“ Lýsa magnesíumverksmiðju sem „andstæðu loftslagsverkfræði“ Innkalla nautahakk vegna gruns um salmonellu Færðu Finnum Jónsbók Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Sjá meira