Frumtak kaupir hlut í Cintamani fyrir 320 milljónir 12. apríl 2013 10:01
Frumtak hefur lokið kaupum á 30% hlut í Cintamani af Kristni Má Gunnarssyni eiganda fyrirtækisins. Verðið á hlutnum nam 320 milljónum króna. Í tilkynningu segir að Cintamani sé íslenskt fyrirtæki sem hannar, framleiðir og selur útivistarfatnað á alþjóðamarkaði. Fyrirtækið var stofnað fyrir 20 árum og hefur vaxið hratt allra síðustu ár. „Það er okkur alltaf sérstök ánægja þegar við getum fjárfest í íslenskri hönnun," segir dr. Eggert Claessen, framkvæmdastjóri Frumtaks í tilkynningunni. „Cintamani byggir á sterkum grunni og hefur skipað sér sérstakan stað í hugum margra Íslendinga. Félagið hefur á að skipa úrvals hönnuðum og hefur náð að byggja upp traust viðskiptasambönd bæði í sölu og framleiðslu og náð góðum árangri hérlendis í sölu til erlendra ferðamanna. Árangurinn er gott orðspor erlendis og í því felast mikil tækifæri, sem nú á að nýta." Kristinn Már Gunnarsson, stjórnarformaður Cintamani segir að vöxtur Cintamani hefur verið hraður frá því að við hófum útflutning og sölu fyrir tveimur árum. "Við höfum fengið afar góða svörun við vörumerkinu jafnt erlendis og á heimamarkaði. Aðkoma Frumtaks skapar svigrúm til að fullnýta þá möguleika sem blasa við á erlendum mörkuðum, enda er þar um fjárfrek verkefni að ræða sem tengjast markaðssetningu, opnun eigin verslana og auknu úrvali. Fjárfestingin gerir Cintamani kleift að vaxa í stökkum fremur en skrefum. Innkoma Frumtaks er mikil viðurkenning á því starfi sem unnið hefur verið hjá Cintamani ehf. undanfarin ár. Okkar mat er einnig að Frumtak sé um leið að setja sinn gæðastimpil á íslenska hönnun og þau miklu tækifæri sem felast í hugviti íslenskra hönnuða," segir Kristinn Már.
Mest lesið „Biðröðin er löng“ Viðskipti innlent Þarf stundum að kalla á eiginkonuna „komdu að sofa ástin“ Atvinnulíf Hætta flugi til Istanbúl eftir að flugmenn drógu undanþágu til baka Viðskipti innlent Kappahl og Newbie opna á Íslandi Viðskipti innlent Eigandinn greiddi sér hundruð milljóna í arð Viðskipti innlent Bein útsending: Skattadagurinn 2026 Viðskipti innlent Of mikið A-vítamín í barnavítamíninu Viðskipti innlent Veitti Vélfagi leyfi til að greiða laun Viðskipti innlent Grillhúsinu á Sprengisandi lokað Viðskipti innlent Hjá lækninum: Pikk, pikk, pikk og klikk, klikk, klikk Atvinnulíf Fleiri fréttir „Biðröðin er löng“ Hætta flugi til Istanbúl eftir að flugmenn drógu undanþágu til baka Grillhúsinu á Sprengisandi lokað Spá blússandi verðbólgu næstu mánuði Bein útsending: Skattadagurinn 2026 „Þennan vítahring þarf að rjúfa“ Of mikið A-vítamín í barnavítamíninu Veitti Vélfagi leyfi til að greiða laun Leggja til að Heiðar verði stjórnarformaður Íslandsbanka Skrá Styrkás í Kauphöllina á næsta ári Eigandinn greiddi sér hundruð milljóna í arð Leita að nafni á farþegamiðstöð fyrir skemmtiferðaskip Kappahl og Newbie opna á Íslandi Verðbólguaukning vegna vörugjalda: „Þetta er nú nokkuð meira en við gerðum ráð fyrir“ Vélfagsmálið beint í Hæstarétt Hulda til Basalt arkitekta Hvernig bæti ég fjárhagslegt öryggi þegar ég verð eldri? Úr útvarpinu í orkumálin Spá verulega aukinni verðbólgu vegna breytinga Skipta um forstjóra hjá Origo Segir komið í veg fyrir að starfsmenn Vélfags fái greitt Úthluta rúmlega þrjátíu þúsund tonna loðnukvóta Íslendingar aldrei farið í fleiri utanlandsferðir Eldur segir Bandaríkjastjórn íhuga fjárfestingu og Amaroq tekur stökk S4S-veldið tekur við Lindex Nýr íslenskur rekstraraðili tekur við Lindex Eldur og Amaroq í sviðsljósi erlendra fjölmiðla Bíllinn þremur milljónum dýrari Lindex lokað á Íslandi Ólafur Orri Ólafsson Ólafssonar nýr forstjóri Samskipa Sjá meira