Reiknar með höfðun skaðabótamáls Haukur Viðar Alfreðsson skrifar 12. apríl 2013 17:22 Jóhannes Ingi Kolbeinsson, framkvæmdastjóri Kortaþjónustunnar Vísir/Arnþór Birkisson „
Ég reikna fastlega við því að við förum í skaðabótamál,“ segir Jóhannes Ingi Kolbeinsson, framkvæmdastjóri Kortaþjónustunnar, en Samkeppniseftirlitið lagði í dag 500 milljóna sekt á Valitor fyrir brot á samkeppnislögum. Samkeppniseftirlitið komst að þeirri niðurstöðu að Valitor hafi misnotað markaðsráðandi stöðu sína með aðgerðum sem beindust gegn keppinautum félagsins á markaði fyrir færsluhirðingu. Kortaþjónustan hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna úrskurðarins þar sem kemur fram að niðurstöðunni sé fagnað. Með henni vonist Kortaþjónustan til þess að „skref sé stigið í átt að eðlilegri samkeppni á kortamarkaðnum á Íslandi.“ Jóhannes segir fyrrverandi forstjóra Valitor hafa kallað Kortaþjónustuna „síkvartandi“ árið 2009 þegar kvörtun var lögð vegna brotanna, en nú sé ljóst að full ástæða hafi verið til þess að kvarta. „Það er alveg ljóst að við höfum skaðast á þessu. Við erum í öðru skaðabótamáli gegn þeim og þetta tekur allt svo ægilega langan tíma, en ég geri ráð fyrir því að við höfðum annað.“ Jóhannes segir mörg fyrirtæki í viðskiptum við Valitor á grundvelli ólöglegra tilboða. „Þeir undirverðlögðu okkur á ólöglegan hátt og náðu þannig viðskiptum af okkur. Maður vonar auðvitað að þessi fyrirtæki hugsi sig um hvort þau vilji vera áfram í viðskiptum við lögbrjóta.“ Yfirlýsing Kortaþjónustunnar í heild sinni:Yfirlýsing frá Kortaþjónustunni vegna úrskurðar Samkeppniseftirlitsins um brot ValitorsVegna úrskurðar Samkeppniseftirlitsins um brot Valitors á samkeppnislögum vill Kortaþjónustan koma eftirfarandi á framfæri:Kortaþjónustan fagnar úrskurði Samkeppniseftirlitsins. Með honum bindum við vonir um að skref sé stigið í átt að eðlilegri samkeppni á kortamarkaðnum á Íslandi.Því miður hafa gjörðir keppinauta okkar á markaði þó ekki bent til þess hingað til að þeir séu tilbúnir til að keppa heiðarlega við Kortaþjónustuna. Brotin sem Valitor er dæmt fyrir nú voru til að mynda framin strax eftir að Valitor ásamt Borgun og Greiðsluveitunni viðurkenndu í Kortasamráðsmálinu langvarandi og alvarleg brot á samkeppnislögum sem miðuðu að því að koma Kortaþjónustunni af markaði.Í ljósi þess að niðurstaða Kortasamráðsmálsins frá 2008 virðist ekki hafa haft meiri áhrif á starfshætti Valitors en raun ber vitni teljum við ljóst að nýja hugsun þarf í meðhöndlun og viðurlög samkeppnislagabrota. Það er ekki nóg að sekta félögin sjálf, heldur verða stjórnendur og stjórnir brotlegra fyrirtækja að vera ábyrg gjörða sinna. Ef stjórnendur eru ekki sóttir til saka er fælingarmáttur samkeppnislaganna ekki nægilega mikill og líklegra en ella að freistast sé til að beita ólöglegum aðferðum.Það er ljóst að lögbrot Valitors hefur skaðað Kortaþjónustuna fjárhagslega og gert stöðu fyrirtækisins á markaðnum lakari en ella. Kortaþjónustan áskilur sér rétt til að fara fram á skaðabætur vegna þessa máls, enda er ólíðandi að sitja undir endurteknum lögbrotum af hálfu keppinauta okkar á markaði.Þessi dómur sýnir fram á að Kortaþjónustan þurfti ekki einungis að þola alvarleg brot frá stofnun fyrirtækisins árið 2002 og fram að úrskurði í Kortasamráðsmálinu 2008 – brotin héldu áfram árin eftir það. Við þekkjum hversu erfitt er að starfa við slíkar aðstæður og óskum einskis þess sama. Því miður er hættan sú að á meðan íslensk fyrirtæki halda áfram að eiga viðskipti við lögbrjóta og markaðsníðinga versni ástandið frekar en að batna. Það þarf því hver og einn að líta í eigin barm og spyrja sig hvort eðlilegt sé að verðlauna viðskiptahætti þeirra sem hafa gerst brotlegir við samkeppnislög með áframhaldandi viðskiptum.
Mest lesið Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Viðskipti innlent Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Viðskipti innlent Greiðsluáskorun Samstarf Daníel Þór frá Kviku til Reita Viðskipti innlent Ætla að opna verslunarkjarna á Korputúni Viðskipti innlent Úrvalsdekk hönnuð fyrir Tesla og hátækni rafbíla nú fáanleg á Íslandi Samstarf Eru greiðsludreifingar virkilega jafn hentugar og allir segja? Viðskipti innlent Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Viðskipti innlent Allt að 35% ódýrari leigubílaferðir með Hopp Samstarf Gjaldskrá Strætó hækkuð á ný Neytendur Fleiri fréttir Daníel Þór frá Kviku til Reita Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Ætla að opna verslunarkjarna á Korputúni Eru greiðsludreifingar virkilega jafn hentugar og allir segja? Höfðar til ábyrgðar olíufélaga og segir verðið nú þegar óeðlilegt Atvinnulausum verkamönnum fjölgar um fjörutíu prósent Tækifæri fylgi flugi frá Kína en einnig hættur Upptaka evru myndi ekki einungis hafa áhrif á vexti Opna fjórðu SPAR-verslunina á morgun Rammagerðin leitar nauðasamninga Sameinaður sjóður ætti rúma þúsund milljarða Bláa lónið eykur hlut sinn í þremur baðlónum Dóra Björt ráðin deildarstjóri Hækkun á heilsugæslu auki verðbólgu í ágúst Tvær stöndugar fasteignasölur sameinast Plantan kveður Norræna húsið: „Dæmið er ekki alveg að ganga upp“ Nýr kokteilbar opnaður á Hverfisgötu: „Okkur langaði bara að opna dyrnar sem fyrst“ Kristinn V. Jóhannsson er látinn Hugrún nýr markaðsstjóri Defend Iceland Kaupa allt hlutafé í Nicetravel Fluttu eitt prósent færri farþega en í júní á síðasta ári Fá AA- í einkunn Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Loka Te og kaffi á Suðurlandsbraut Eitt app fyrir ferðamenn til að skemmta sér og forðast hættur Of snemmt að draga fram heykvíslar Sjá meira