Horfur Umami orðnar traustari Jóhannes Stefánsson skrifar 18. júlí 2013 07:00 Óli Valur Steindórsson stofnaði Umami árið 2010 „
Ég var kominn út úr þessu fyrir átta mánuðum en ég veit að félagið er í fullum rekstri. Það er verið að fóðra fullt af fiski og horfurnar eru góðar fyrir haustið,“ segir Óli Valur Steindórsson, stofnandi Umami, um stöðu félagsins í dag. Fréttablaðið greindi frá því á þriðjudaginn að staða félagsins væri ótrygg og engar upplýsingar fengjust frá forsvarsmönnum þess. „Ég er náttúrulega ekki innanbúðar í félaginu lengur en það er ljóst að lánardrottnar félagsins væru ekki að lána því 64 milljónir dollara nema þeir hefðu trú á félaginu,“ segir Óli. Félagið fékk lánveitinguna samþykkta þann 26. júní samkvæmt fréttatilkynningu. Atlantis, félag Óla Vals sem áður átti 62 prósent í Umami, varð gjaldþrota í janúar. Það skuldaði dótturfélaginu rúmlega 17,2 milljónir Bandaríkjadala, jafnvirði tæplega 2,2 milljarða króna, í júní í fyrra. Óli segir þessa skuld nú hafa verið gerða upp. Hann þurfti að láta af stöðu framkvæmdastjóra Umami í kjölfar fjandsamlegrar yfirtöku á félaginu á seinasta ári. „Þetta félag var eins og sjötta barnið mitt, þannig að þetta er dálítið leiðinlegt. Ég veit samt að félagið er tryggt í dag og það eru aðrir búnir að taka við þessu.“
Mest lesið Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Viðskipti innlent Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Viðskipti innlent Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Viðskipti innlent Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Viðskipti innlent Reynsluakstur: Mjúkur lúxus og moldarslettur í sama pakka Samstarf Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Viðskipti innlent Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Viðskipti innlent Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Viðskipti innlent Fleiri fréttir Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Sjá meira