Nýr dómur Hæstaréttar hefur áhrif á 1000 lánasamninga Jón Hákon Halldórsson skrifar 17. janúar 2013 16:52 Birna Einarsdóttir bankastjóri Íslandsbanka.
Hæstiréttur komst í dag að þeirri niðurstöðu að lánasamningur sem fyrirtækið Umbúðamiðlun ehf. gerði við Íslandsbanka hefði verið í íslenskum krónum og bundinn við gengi erlendra mynta með ólögmætum hætti. Í tilkynningu frá Íslandsbanka segir að sérfræðingar bankans séu nú að yfirfara niðurstöðu dóms Hæstaréttar í máli Umbúðamiðlunar en ljóst sé að hann hefur áhrif á tæplega 1.000 lán hjá bankanum, að mestu fyrirtækjalán. Meirihluti lánanna sem dómurinn tekur til hafa fengið tilboð um endurútreikning á grundvelli laga sem kennd voru við Árna Pál Árnason, þáverandi efnahags- og viðskiptaráðherra. Íslandsbanki segir að öll þau lán sem dómurinn tekur til verði endurreiknuð á ný ef aðstaða lántaka er sambærileg þeirri sem um var fjallað í dómum Hæstaréttar frá 15. febrúar og 18. október á síðasta ári sem tóku til fullnaðarkvittana vegna ólögmætra lána. Samtals mun Íslandsbanki endurreikna um 15.000 ólögmæt gengistryggð lán einstaklinga og fyrirtækja í samræmi við dóma Hæstaréttar um fullnaðarkvittanir. Bankinn hafði áður fallið frá þremur dómsmálum til að flýta endurútreikningi. Meðal þeirra lána sem eru endurreiknuð eru uppgreidd lán, bílalán og lán sem hafa farið í gegnum úrræði sem bankinn bauð upp á. Íslandsbanki segir að dómurinn hafi ekki áhrif á lögmæti húsnæðislána Íslandsbanka í erlendri mynt en Hæstiréttur hafi skorið úr um að þau væru lögleg erlend lán þann 7. Júní 2012. Áhrif dómsins á efnahagsreikning bankans munu verða metin og koma fram í ársreikningi fyrir árið 2012. Bankinn segir að eiginfjárstaða hans sé sterk og eiginfjárhlutfallið muni áfram vera yfir þeim lágmörkum sem Fjármálaeftirlitið setur.
Mest lesið Bíóstólarnir í Álfabakka til sölu Viðskipti innlent Bandaríkjamenn banna innflutning dróna Viðskipti erlent Bærinn bótaskyldur og þarf að bjóða líkamsræktarstöð út aftur Viðskipti innlent Húðflúrari fór frá hálfkláruðum fugli á hálsi Neytendur Virðist ekki vera hægt á Íslandi Viðskipti innlent „Áhyggjuefni ef fyrirtækin mæta þessu með semingi“ Neytendur Flogin frá Icelandair til Nova Viðskipti innlent Bíóinu í Álfabakka lokað í janúarlok Viðskipti innlent Range Rover Sport er lúxusjeppi sem tekið er eftir Samstarf Sigga Lund lenti illa í „Vefstól Svanhildar“ og varar aðra við Neytendur Fleiri fréttir Bíóstólarnir í Álfabakka til sölu Bærinn bótaskyldur og þarf að bjóða líkamsræktarstöð út aftur Flogin frá Icelandair til Nova Virðist ekki vera hægt á Íslandi Minni líkur á vaxtalækkun: „Þeim verður vandi á höndum, seðlabankafólkinu“ Skattleysismörk barna yngri en 16 ára hækka Frosti og Arnþrúður fá styrki Verðbólga eykst verulega Hefja sölu á fyrstu hliðstæðu við Simponi í heiminum Stefán útvarpsstjóri gáttaður á Stefáni útvarpsstjóra Framkvæmdastjóri Lyfjavals hættur Eyða óvissu á lánamarkaði strax á mánudag Ljúka kaupum á Hreinsitækni og HRT þjónustu Gréta María um starfslokin: „Ég geng stolt frá borði“ Síminn fær heimild til að reka áfram 2G og 3G þjónustu Breyta nafni Ölgerðarinnar Jón Ingi nýr forstjóri PwC Tekur við sem hagfræðingur Viðskiptaráðs Gréta María óvænt hætt hjá Prís Ráðinn nýr fjármála- og rekstrarstjóri Lyfja og heilsu Þrír eða færri skoða eign í fyrstu viku á sölu Byrjunarverð hjá NiceAir tæplega sextíu þúsund krónur Leigan rukkuð mánaðarlega en ekki í lokin Frá Logos til Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi Alcoa stefnir Eimskip að nýju í samráðsmáli Aron Kristinn stofnar goðsagnakennt fyrirtæki Vill verða stjórnarformaður Íslandsbanka: „Hvaða sirkus er þetta?“ Geta þurft að greiða hátt verð fyrir póstsendar gjafir Segja ráðherra fórna íslenskum hagsmunum í makrílsamningi Ísland gerir samkomulag um makrílveiðar í fyrsta skipti Sjá meira