Næsta sunnudag fer Pikes Peak fjallaklifurskeppnin fram í Colorado fylki í Bandaríkjunum. Hingað til hefur þátttakendum boðist 3 æfingadagar fyrir keppnina en nú var einum degi bætt við og var fyrsti dagurinn í gær.
Máttu keppendur á bílum æfa sig á neðri helmingi leiðarinnar, en mótorhjólamenn máttu fara alla leið upp. Dagurinn var ekki tíðindalaus, en tveimur ökumönnum tókst að gereyðileggja bíla sína með útafakstri.
Fréttnæmara er þó að Sebastian Loeb rústaði núverandi meti Rhys Millen á neðri hlutanum. Hann rann skeiðið á 3:30,768 mínútum en Rhys náði í fyrra 3:54,835 á Hyundai Genesis Coupe Unlimited Racer bílnum.
Þarna munar svo miklu að svo gæti farið að Loeb bætti met Millen um hátt í eina mínútu á sunnudaginn, þegar öll leiðin verður farin. Allavega hefur Leob bæði hæfileikana og bílinn til þess, 875 hestafla
Peugeot 208 T16.
