Raforkukostnaður heimila hefur aukist um allt land Óli Kristán Ármannsson skrifar 16. ágúst 2013 12:28 Hluti skýringar á hærra raforkuverði liggur í fimm prósenta hækkun á skatti á raforkusölu um síðustu áramót. Fréttablaðið/Vilhelm
Heildarkostnaður við raforku hjá heimilum landsins hefur hækkað um land allt síðastliðna tólf mánuði. Fram kemur í samantekt hagdeildar Alþýðusambands Íslands að miðað við 4.000 kílówattastunda notkun á ári sé hækkunin mest hjá viðskiptavinum Orkubús Vestfjarða í þéttbýli. „Heildar raforkukostnaður þeirra hefur hækkað um 6,6 prósent,“ segir á vef ASÍ. Minnst er hækkunin hjá heimilum á svæði Rarik þéttbýli/Orkusalan, 1,2 prósent. Bent er á að hluta skýringarinnar á hækkuninni sé að finna í því að skattur á raforkusölu hafi hækkað um fimm prósent um síðustu áramót. Raforkukostnaður heimila skiptist annars vegar í gjald fyrir rafmagnið og hins vegar kostnað við flutning og dreifingu. Sá kostnaður, til almennra heimilisnota, er sagður mestur hjá viðskiptavinum Rarik þéttbýli/Orkusalan, 73.069 krónur. Minnisti flutnings- og dreifingarkostnaðurinn er hjá Norðurorku/Fallorku, 62.299 krónur. Þar munar 17 prósentum. Þegar tekið er saman verð á rafmagni og dreifingu þá segir ASÍ að ekki muni nema fjórum prósentum á hæsta og lægsta verði. Möguleg seðilgjöld gætu því gert að engu ávinninginn af því að kaupa rafmagn á einum stað og dreifingu á öðrum. „Það er bagalegt fyrir samkeppni á orkusölumarkaði að ekki skuli vera mögulegt að innheimta allan raforkukostnað á einum reikningi, óháð samsetningu á sölufyrirtæki og dreifiveitu sem skipt er við,“ segir í umfjöllun ASÍ. „Þessu til viðbótar er ávallt erfiðara fyrir neytendur að fá góða yfirsýn yfir heildarkostnað sinn þegar tveir reikningar berast mánaðarlega.“ Hér má finna samantekt ASÍ með töflum á PDF-formi.
Mest lesið Eftirlitið á að hefjast á morgun en verður mótað eftir helgi Viðskipti innlent Útsendarar FDA í átta daga fyrirvaralausri úttekt hjá Alvotech Viðskipti innlent Ferð í Silfru valin sú besta af því besta á heimsvísu Viðskipti innlent Sigrún ráðin aðalbókari Viðskipti innlent Búast við hærri vöxtum á óverðtryggðum lánum Viðskipti innlent Enn meiri breytingar: Yfirmenn klónaðir með gervigreind Atvinnulíf Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur ásamt Reitum Viðskipti innlent Lúxusbílaframleiðandi bauð íslenskum bræðrum í draumaferð til Kína Samstarf Atvinnuleysi minnkar milli mánaða Viðskipti innlent Icelandair tapaði 5,6 milljörðum króna Viðskipti innlent Fleiri fréttir Eftirlitið á að hefjast á morgun en verður mótað eftir helgi Útsendarar FDA í átta daga fyrirvaralausri úttekt hjá Alvotech Arion banki hækkar vexti Búast við hærri vöxtum á óverðtryggðum lánum Sigrún ráðin aðalbókari Atvinnuleysi minnkar milli mánaða Ferð í Silfru valin sú besta af því besta á heimsvísu Húsnæði Kjötborgar til sölu Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur ásamt Reitum Óvissa með nöfnin og reynt að róa uggandi starfsmenn Vara við svikapóstum um lén frá DMS Iceland Telur enn að stýrivextir verði hækkaðir Fjárfestahagsmunir fremur en gervigreind skýri fækkun hjá Íslandsbanka Edda Rut tekur við af Ragnari Þór eftir tuttugu ár í brúnni Ráða þrjá í tengslum við stofnun nýs sjóðs Verðbólga hjaðnar Afkoma í samræmi við áætlanir hjá Símanum Horfa á eftir Steingrími og spara 180 milljónir á ári Icelandair tapaði 5,6 milljörðum króna Íslandsbanki fækkar starfsmönnum um fimmtíu Hagnaður jókst um 21 prósent á fyrsta ársfjórðungi Rekstur borgarinnar neikvæður um 5,3 milljarða í fyrra Sektað vegna auglýsinga fyrir „nikótínpúðajóladagatal“ Lýsa magnesíumverksmiðju sem „andstæðu loftslagsverkfræði“ Innkalla nautahakk vegna gruns um salmonellu Færðu Finnum Jónsbók Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Vara við svikaherferð í nafni bankans Sjá meira
Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur ásamt Reitum Viðskipti innlent
Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur ásamt Reitum Viðskipti innlent