Dominos einn aðalstyrktaraðili enska boltans 16. ágúst 2013 13:19 Magnús Hafliðason, markaðsstjóri Dominos, er harður stuðningsmaður Arsenal í ensku úrvalsdeildinni.
Dominos er orðinn einn af aðalstyrktaraðilum enska boltans sem sýndur verður á Stöð 2 Sport 2 í vetur. Dominos hefur tengst íslensku íþróttalífi á ýmsa vegu síðustu ár og hefur Úrvalsdeild karla og kvenna í körfubolta meðal annars borið nafnið Dominosdeildin. "Við höfum verið að tengja okkur æ meira við fótboltann og með enska boltanum eru við að stíga næsta skref í þeim efnum," segir Magnús Hafliðason, markaðsstjóri Dominos. "Enski boltinn er hrikalega flott efni og eitthvað sem margir láta sig dreyma um að tengja nafn sitt við." Auk Dominos eru Icelandair, Coca-Cola og 10 - 11 aðalstyrktaraðilar enska boltans á Stöð 2 Sport 2. Yfir 380 leikir verða í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport 2 og fjórum hliðarrásum í vetur. Þá verður Messan með Gumma Ben á hverjum mánudegi. Magnús segir það vissulega kosta sitt að styðja við bakið á enska boltanum. "Það eru gríðarlega mörg tækifæri falin í þessu fyrir okkur og svo er þetta jákvæð tenging við eitthvað flottasta sjónvarpsefni sem sýnt er á Íslandi. Það er líka ánægjulegt að sjá hvað 365 hefur gert með efnið - allar útsendingarnar og öll sú faglega þáttagerð sem unnin hefur verið í kringum enska boltann; til dæmis Messan með Gumma Ben." Magnús heldur sjálfur með Arsenal en kvíður svolítið komandi vetri. "Ég held að við séum búnir að losa okkur við einhverja tólf leikmenn en taka inn einn ungling. Ég veit ekki alveg hvernig það dæmi á að ganga upp. Það er vonandi að gamli Wenger opni veskið og losi aðeins um budduna á meðan glugginn er opin. Hann er búinn að vera helvíti nískur undanfarin ár. Hann fer varla að gera okkur þann óleik að kaupa ekki fleiri leikmenn," segir Magnús og hlær. "Okkur er spáð 5. sætinu en við endum að lágmarki í 4. sæti eins og undanfarin ár. Ég held allavega í vonina."
Mest lesið Aukin skattheimta og aukin samkeppni í boði ríkisins Viðskipti innlent Uggandi yfir afstöðu VR Viðskipti innlent Nýir veitingastaðir opnaðir á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju Viðskipti innlent Stýrivextir áfram átta prósent Viðskipti innlent Tölvuþrjótarnir hafi ekki komist yfir kortanúmer Viðskipti erlent Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðun sína Viðskipti innlent Sonur Kristjáns í hans stað á hvalveiðiráðstefnu Viðskipti innlent Notendur ASOS fá tilkynningu frá meintum tölvuþrjótum Viðskipti erlent Vill að þak verði sett á álagningu olíufélaga Viðskipti innlent Nýtt gæðakerfi Michelin Expert center hjá N1 Samstarf Fleiri fréttir Aukin skattheimta og aukin samkeppni í boði ríkisins Nýir veitingastaðir opnaðir á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju Uggandi yfir afstöðu VR Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðun sína Stýrivextir áfram átta prósent Sonur Kristjáns í hans stað á hvalveiðiráðstefnu Vill að þak verði sett á álagningu olíufélaga Eru ríkisskuldabréfasjóðir öruggir? Tæplega þrjátíu sagt upp Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Ráðinn sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Fastus Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Enn lækkar Ísland í nýsköpunarvísitölunni Boðaði til starfsmannafundar og mætti í stjórnarráðið Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Spá óbreyttum vöxtum Minnsta hlutabréfavelta frá faraldursárinu 2020 Sjá meira