Framkvæmdir í Gálgahrauni hafnar þrátt fyrir stefnu um ólögmæti Hanna Rún Sverrisdóttir skrifar 16. ágúst 2013 16:45 Framkvæmdir við Áltanesveg hófust í dag. mynd/365
Vegamálastjóra var stefnt fyrir hönd Vegagerðarinnar til viðurkenningar á því að framkvæmdin sem hófst í dag um gerð Álftanesvegar milli Hafnarfjarðar og Bessastaðavegar um þvert Gálgahraun sé ólögmæt. Vísir fjallaði um málið fyrr í sumar. Það voru Landvernd, Náttúruverndarsamtök Íslands, Náttúruverndarsamtök Suðvesturlands og Hraunavinir sem stefndu vegamálastjóra. „Það mál er enn í gangi og hefur engin áhrif á framkvæmdirnar,“ segir Stefán Erlendsson lögfræðingur hjá Vegagerðinni. Það er tiltölulega nýbúið að stefna Vegagerðinni, það var gert núna fyrr í sumar." „Málið er fyrir héraðsdómi og Vegagerðin fékk frest til 10. september næstkomandi til þess að skila inn greinargerð í málinu. Í kjölfarið tekur héraðsdómur málið fyrir og það fer eftir málshraðanum þar hvenær málinu lýkur," segir Stefán.„Þegar málið var höfðað var búið að bjóða verkið út. Þá skapast skylda á Vegagerðina að semja við þann verktaka sem á hagstæðasta tilboðið. Ef að málið yrði stoppað er nokkuð víst að Vegagerðin yrði skaðabótaskyld gagnvart þeim verktaka sem átti hagstæðasta tilboðið." Stefán segir að afstaða Vegagerðarinnar sé sú að þessi málsókn eigi ekki við rök að styðjast og Vegagerðin sjái ekki tilefni til þess að fara í þá aðgerð að hætta við útboðið þrátt fyrir málsóknina.„Það er ekki hægt að segja til um það á þessu stigi hvernig Vegagerðin myndi bregðast við ef framkvæmdin yrði dæmd ólögmæt,“ segir Stefán að lokum.
Mest lesið Ólík sýn á hvort Íslandi eigi að styðja vörn Úkraínumanna Innlent „Við höfum ekki séð þetta á Íslandi áður“ Innlent Friðartillaga Ísraela sem Biden kynnti virðist fá hljómgrunn Erlent Skítkast í „skrýtinni og óvæginni“ kosningabaráttu Innlent VÍS þarf að bæta hluta jarðýtu í mannskæðu vinnuslysi Innlent „Við útrýmum ekki ofbeldi með hatri“ Innlent Hefði „slátrað“ dóttur sinni byggju þau í „arabalandi“ Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Mótmælin í dag þau hörðustu í mörg ár Innlent Ný könnun sýnir stefna í æsispennandi kjördag Innlent Fleiri fréttir Ólík sýn á hvort Íslandi eigi að styðja vörn Úkraínumanna „Við útrýmum ekki ofbeldi með hatri“ Skítkast í „skrýtinni og óvæginni“ kosningabaráttu „Við höfum ekki séð þetta á Íslandi áður“ Mótmælin í dag þau hörðustu í mörg ár Sækja veikan jeppamann á Langjökli VÍS þarf að bæta hluta jarðýtu í mannskæðu vinnuslysi Lokasprettur fyrir kosningar og umræða um kynbundið ofbeldi Ný könnun sýnir stefna í æsispennandi kjördag Hvar áttu að kjósa í forsetakosningum? Fyrirskipar forsætisráðuneytinu að fara yfir ferla „Heiðurstengt ofbeldi er ekki okkar stærsta vandamál“ Eldgosið í beinni útsendingu Taka aftur við eignum í Grindavík eftir helgi Páll sýknaður Tuttugu sendlar Wolt eiga yfir höfði sér kæru Þorvaldur tekur undir goslokaspá Haraldar Gætu gloprað niður sigrinum eða tryggt sér hann í kvöld Hefði „slátrað“ dóttur sinni byggju þau í „arabalandi“ Viðhald eigna og verðmætabjörgun í Grindavík í dag Piparúða beitt gegn mótmælendum í Skuggasundi Maðurinn sem féll í Fnjóská fannst látinn Lífið brosir við mæðgum eftir áralangt einelti Þakkar fyrir að hafa ekki þurft að beita kylfum Notuðu piparúða á mótmælendur Hvattur til að draga sig til hlés til að klekkja á Katrínu Sérfræðingar í straumvatnsleit aðstoða við leit í Fnjóská Gekk misvel að tala um kvótakerfið á fjörutíu sekúndum á ensku Bjarni fundar með Selenskí í Stokkhólmi Alþjóðasamfélagið sé að klikka á Gasa Sjá meira