Útlit fyrir að svartsýnustu hagvaxtarspár rætist Þorbjörn Þórðarson skrifar 16. ágúst 2013 10:33
Útlit er fyrir að svartsýnustu spár um lítinn hagvöxt hér á landi rætist og hagvöxturinn verði rétt rúmlega eitt prósent. Lítill hagvöxtur skýrist meðal annars af samdrætti í útflutningi. Hagvöxturinn, þ.e vöxtur vergri í landsframleiðslu, er nauðsynlegur til að skapa hér bætt lífskjör. Eins og sést á þessu grafi (sjá myndskeið) varð algjört hrun í landsframleiðslu 2009, árið eftir hrun bankakerfisins, en hún dróst saman um 6,5 prósent. Ári síðar var hagvöxturinn enn neikvæður um 4,1 prósent, en 2011 var svo ár viðsnúnings þar sem hagvöxturinn nam 2,9 prósentum. Síðasta ár var undir væntingum en þá var 1,6 prósenta hagvöxtur.Horfurnar ekki bjartar Horfurnar eru ekki bjartar fyrir þetta ár. Eina svartsýnasta hagvaxtarspáin var sett fram af greiningu Íslandsbanka en hún hljóðaði upp á 1,2 prósenta hagvöxt á þessu ári. Nú er útlit fyrir að hún rætist meðal annars vegna samdráttar í útflutningi. Á mannamáli: Við framleiðum ekki nógu mikið og seljum ekki nægilega mikið af afurðum út. Ingólfur Bender, aðalhagfræðingur Íslandsbanka, segir að ástæður fyrir samdrætti í útflutningi séu einkum tvíþættar. „Annars vegar er það álútflutningurinn sem hefur verið að dragast saman, en á fyrri helmingi ársins sáum við afar slakar tölur, aðeins betri tölur reyndar fyrir júlí. Þar er samdráttur og að einhverju leyti eru það viðbrögð við stöðu heimsmarkaðsverðs á áli. Og hins vegar er það almennur iðnaðarvöruútflutningur sem einnig hefur verið að dragast saman,“ segir Ingólfur.Væntingar almennings hafa hrunið á tveimur mánuðumHefur ríkisstjórninni mistekist að skapa væntingar til að ýta undir hagvöxtinn? „Það er spurning. Hagvöxturinn á þessu ári stefnir allavega í að verða mjög lítill. Bæði sögulega séð og miðað við það sem við þyrftum til að ná hagkerfinu upp úr þeirri lægð sem það er í.“ Væntingar fólks þarf að setja í samhengi við neyslu og fjárfestingar. Lítill hagvöxtur núna skýrist einnig af lítilli einkaneyslu, en það er staðreynd að væntingar almennings hafa hrunið á síðustu tveimur mánuðum. Væntingarvísitala Gallup stóð í 101 stigi í maí 2013, rétt eftir kosningar, en var komin niður í 78,5 stig í júlí sem er lægra en hún var í febrúar þegar síðasta ríkisstjórn var enn við völd.
Mest lesið Vodafone, Stöð 2, Stöð 2+ og Stöð 2 Sport sameinast undir merki Sýnar Viðskipti innlent SVEIT þarf að greiða milljón á dag þar til gögn eru afhent Viðskipti innlent Búinn að afnema regluverkið sem tafði fyrir opnun Kastrup Viðskipti innlent Segir ljóst að SVEIT hafi eitthvað að fela Viðskipti innlent Skúli og félagar aftur sýknaðir af milljarðakröfum Viðskipti innlent Starbucks frestar opnun fram í lok sumars Viðskipti innlent Mjög mikilvægt að eiga besta vin í vinnunni Atvinnulíf Húsgagnahöllin sektuð fyrir ósanngjarnar auglýsingar Neytendur Stórfyrirtæki flýi borgina vegna skatta Viðskipti innlent SVEIT kærir dagsektir Samkeppniseftirlitsins Viðskipti innlent Fleiri fréttir Stórfyrirtæki flýi borgina vegna skatta Skúli og félagar aftur sýknaðir af milljarðakröfum Magnús Þór leggur Samtökum iðnaðarins ráð Búinn að afnema regluverkið sem tafði fyrir opnun Kastrup Segir ljóst að SVEIT hafi eitthvað að fela Íris nýr sviðsstjóri hjá VSB verkfræðistofu SVEIT kærir dagsektir Samkeppniseftirlitsins Vodafone, Stöð 2, Stöð 2+ og Stöð 2 Sport sameinast undir merki Sýnar Starbucks frestar opnun fram í lok sumars SVEIT þarf að greiða milljón á dag þar til gögn eru afhent Embla Medical hlaut útflutningsverðlaun forsetans og Ragnar Kjartans heiðraður Aukinn samdráttur á flugi til Íslands með breyttu Play Skattur á atvinnuhúsnæði hækkað um helming á áratug Tekur við fyrirtækjaráðgjöf Arion banka Hlutabréf Play ruku upp við opnun markaða „Erum bara að hætta þeirri starfsemi sem hefur gengið illa“ Áttatíu milljóna gjaldþrot Heimabakarís á Húsavík Vilja taka yfir Play Boða komu HBO Max til landsins á ný Pála ráðin kynningarfulltrúi BHM Bjarki og Axel Valdemar nýir forstöðumenn hjá atNorth Umsóknir í HA aldrei verið fleiri Keyptu Brauðhúsið til að fara ekki á hausinn 118 ára sögu Hans Petersen að ljúka Boða tæp 10% þjóðarinnar á hluthafafund Miðeind festir kaup á Snöru Keypti hús við Sóleyjargötu af borginni á 310 milljónir Minni þorskafli kosti fleiri milljarða Verður nýr yfirlögfræðingur SFF Ráðin forstöðumaður hjá Eimskip Sjá meira