Vilja kæra brot stjórnenda Valitors til lögreglu 13. maí 2013 11:13
Kortaþjónustan hefur sent áskorun til Samkeppniseftirlitsins um að kæra samkeppnislagabrot stjórnenda Valitors til lögreglu. Í tilkynningu segir að um leið séu stjórnvöld hvött til að tryggja Samkeppniseftirlitinu auknar heimildir þannig að eftirlitið geti ekki aðeins vísað málum til lögreglu eins og nú er heimilt heldur einnig til annarra opinberra eftirlitsaðila, t.d. til Fjármálaeftirlits og skattayfirvalda, svo lög um fjármálafyrirtæki virki sem skyldi. Í áskoruninni segir m.a.: „Í ljósi ákvörðunar Samkeppniseftirlitsins nr. 08/2013 þar sem eftirlitið lagði 500 milljóna króna sekt á Valitor vegna alvarlegra, langvarandi og síendurtekinna brota Valitor gegn samkeppnislögum skorar Kortaþjónustan á Samkeppniseftirlitið að nýta heimildir samkeppnislaga og kæra málið til lögreglu til rannsóknar. Í ákvörðuninni kemur fram að brotin hafi verið mjög alvarleg og að þau varði mikilvæga markaði, bæði fyrir neytendur og atvinnulífið. Jafnframt sé með þeim brotið gegn skilyrðum sem Valitor undirgekkst í sátt við Samkeppniseftirlitið árið 2007, eftir að hafa þá viðurkennt brot sín. Það eitt bendir til einbeitts brotavilja. Augljóst má því vera að þau úrræði sem Samkeppniseftirlitið hefur lögum samkvæmt til að leggja sektir á brotleg fyrirtæki eða ljúka málum með sátt duga einfaldlega ekki til að stöðva Valitor í því að brjóta ítrekað gegn samkeppnislögum. Þess vegna hvetur Kortaþjónustan, sem fyrr segir, Samkeppniseftirlitið til að vísa málinu til lögregluyfirvalda til rannsóknar.“ Jafnframt er vísað til laga um fjármálafyrirtæki og krafna um hæfi stjórnarmanna og framkvæmdastjóra. Kortaþjónustan vill með lögreglurannsókn m.a. fá úr því skorið hvort stjórnarmenn og framkvæmdastjóri Valitor fullnægi hæfisskilyrðum laga um fjármálafyrirtæki. Þá er vísað til þess að bankastjóri Arion banka var framkvæmdastjóri Valitor á þeim tíma sem umrædd brot voru framin og bent á að nauðsynlegt sé að bæði lögreglan og Fjármálaeftirlitið rannsaki sérstaklega hæfi hans til að gegna þeirri stöðu. Þá segir einnig í áskoruninni að Kortaþjónustan hafi nú verið starfandi í rétt rúm tíu ár. Á þeim tíma hafa félög í samkeppni við Kortaþjónustuna samtals greitt 1.235 milljónir króna í sektir til Samkeppniseftirlitsins vegna brota gegn fyrirtækinu og enn fleiri mál eru í rannsókn. „Kortaþjónustan telur einsýnt að úrræði Samkeppniseftirlitsins hafi hingað til ekki dugað og því verði stofnunin að leita leiða til að draga stjórnendur til ábyrgðar fyrir gjörðir sínar. Fjársektir á fyrirtækjakennitölur virðast einfaldlega ekki duga til að koma á heiðarlegri samkeppni á kortamarkaðnum,“ segir í áskoruninni.
Mest lesið Ingólfur kaupir Ísbúð Vesturbæjar Viðskipti innlent Verðbólga eykst lítillega Viðskipti innlent Þórunn og Svali til Íslandsbanka Viðskipti innlent Rukka ekki lengur foreldra fyrir að sitja við hlið barna sinna Viðskipti erlent Langflestir gera þessi mistök áður en þeir byrja að mála Samstarf Bryndís frá Danmörku til Ölgerðarinnar Viðskipti innlent „Þessu verður ekki breytt af Seðlabankanum einum“ Viðskipti innlent Einungis sjö bílar kallaðir inn Neytendur Missir stöðu sína sem eini billjónamæringur heims Viðskipti erlent Súkkulaði hækkað um tæpan þriðjung á tveimur árum Neytendur Fleiri fréttir Þórunn og Svali til Íslandsbanka Verðbólga eykst lítillega Ingólfur kaupir Ísbúð Vesturbæjar Vara við aðskotaefni í tei Bryndís frá Danmörku til Ölgerðarinnar Innkalla Land Rover-bíla vegna brunahættu „Þessu verður ekki breytt af Seðlabankanum einum“ Vélfagsmenn fóru bónleiðir til búðar frá Hæstarétti Setja 630 milljónir í að markaðssetja Ísland sem áfangastað Atvinnuleysi 5,6 prósent í maí Hagnaður Samherja nam um 8,5 milljörðum Stefna að uppbyggingu baðlóns og hótels í Grundarfirði Hafa samið um aukin raforkukaup á Blönduósi Ráðnir forstöðumenn hjá OK Sameining tveggja lífeyrissjóða samþykkt Gissur ráðinn framkvæmdastjóri OBHM Brynja til Fastus frá Samkaupum Efla ráðgjöf við nemendur HR um kjaramál „Hvað haldið þið að þetta kosti? Milljarða, milljarða, milljarða“ Klára kaupin á Ofar og leita að nýjum framkvæmdastjóra Laufey nýr sérfræðingur hjá Landsbankanum Eykur strandveiðikvóta og gerir vertíðina þá „stærstu frá upphafi“ Tæplega 4,6 milljarða tap á rekstri borgarinnar Lægsta matvöruverðið enn oftast að finna í Prís Rakel nýr framkvæmdastjóri hjá Íslandsbanka Segir ríkar ástæður fyrir því að flugmenn eigi að vera vel launaðir Alvotech aflaði 20,6 milljarða í útboði og áskriftum John Strickland: Icelandair þarf að vera snjallt þegar nýjar þotur breyta leiknum Samkeppnishæfni Íslands og annarra Norðurlanda fellur milli ára Þróunin í þá átt að verða enn meiri kaupendamarkaður Sjá meira