Reiknar með gjaldeyriskaupum Seðlabankans á næstunni 13. maí 2013 14:24
Greining Arion banka reiknar með því að á næstunni, eða fyrr eða síðar, taki Seðlabanki Íslands aftur til við að kaupa gjaldeyri á millibankamarkaði til að styrkja óskuldsettann gjaldeyrisforða sinn. Raunar furðar greiningin sig á því að Seðlabankinn sé ekki þegar farinn að kaupa gjaldeyri á ný. Fjallað er um málið í Markaðspunktum greiningarinnar. Þar segir að erfitt sé að finna rök sem styðja þá ákvörðun að aðhafast ekkert og leyfa krónunni að styrkjast enn frekar. Í inngangi Seðlabankastjóra að síðasta Fjármálastöðugleikariti bankans kom t.a.m. fram að miðað við óbreytt gengi myndi fyrirsjáanlegur undirliggjandi viðskiptaafgangur næstu ára ekki nægja til að fjármagna samningsbundnar afborganir erlendra lána. “Með inngripum á kauphlið væri hægt að draga úr styrkingunni, slá þannig á vöxt í innflutningi og auka afgang af utanríkisviðskiptum, samhliða því að safna gjaldeyri. Allt bendir því til þess að fyrr en síðar muni Seðlabankinn tilkynna um regluleg gjaldeyriskaup á nýjan leik eða sambærileg inngrip til að styrkja óskuldsettan gjaldeyrisforða bankans,” segir í Markaðspunktunum. “Við teljum að í þeim styrkingarfasa sem staðið hefur yfir nánast samfellt frá lokum febrúar síðastliðins hafi falist talsvert svigrúm til gjaldeyriskaupa sem hefði gert Seðlabankanum kleift að endurheimta þann gjaldeyri sem hann hefur varið til stuðnings krónunni frá áramótum. Alls hefur bankinn selt um 78 milljónum evra á gjaldeyrismarkaði síðan þá, að meðtöldum framvirkum samningum, en hann þarf auk þess að standa skil á vaxtagreiðslum að andvirði um 22 milljörðum kr. vegna forðans á næstu 12 mánuðum. Síðasta sumar, nánar tiltekið í lok júlí þegar krónan var upp á sitt sterkasta, brást bankinn einmitt við styrkingarfasanum með því að auka regluleg kaup sín úr 1,5 milljónum evra í 3 milljónir evra vikulega."
Mest lesið Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Viðskipti innlent Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Viðskipti innlent Daníel Þór frá Kviku til Reita Viðskipti innlent Greiðsluáskorun Samstarf Úrvalsdekk hönnuð fyrir Tesla og hátækni rafbíla nú fáanleg á Íslandi Samstarf Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Viðskipti innlent Ætla að opna verslunarkjarna á Korputúni Viðskipti innlent Eru greiðsludreifingar virkilega jafn hentugar og allir segja? Viðskipti innlent Gjaldskrá Strætó hækkuð á ný Neytendur Allt að 35% ódýrari leigubílaferðir með Hopp Samstarf Fleiri fréttir Daníel Þór frá Kviku til Reita Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Ætla að opna verslunarkjarna á Korputúni Eru greiðsludreifingar virkilega jafn hentugar og allir segja? Höfðar til ábyrgðar olíufélaga og segir verðið nú þegar óeðlilegt Atvinnulausum verkamönnum fjölgar um fjörutíu prósent Tækifæri fylgi flugi frá Kína en einnig hættur Upptaka evru myndi ekki einungis hafa áhrif á vexti Opna fjórðu SPAR-verslunina á morgun Rammagerðin leitar nauðasamninga Sameinaður sjóður ætti rúma þúsund milljarða Bláa lónið eykur hlut sinn í þremur baðlónum Dóra Björt ráðin deildarstjóri Hækkun á heilsugæslu auki verðbólgu í ágúst Tvær stöndugar fasteignasölur sameinast Plantan kveður Norræna húsið: „Dæmið er ekki alveg að ganga upp“ Nýr kokteilbar opnaður á Hverfisgötu: „Okkur langaði bara að opna dyrnar sem fyrst“ Kristinn V. Jóhannsson er látinn Hugrún nýr markaðsstjóri Defend Iceland Kaupa allt hlutafé í Nicetravel Fluttu eitt prósent færri farþega en í júní á síðasta ári Fá AA- í einkunn Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Loka Te og kaffi á Suðurlandsbraut Eitt app fyrir ferðamenn til að skemmta sér og forðast hættur Of snemmt að draga fram heykvíslar Sjá meira