Bréf Össurar hækkuðu mest Óli Kristján Ármannsson skrifar 5. desember 2013 07:00 Nasdaq OMX Iceland. Fréttablaðið/Stefán
Gengi hlutabréfa Össurar hækkaði mest af félögum Kauphallarinnar eftir að uppgjör vegna þriðja ársfjórðungs var birt. Þetta kemur fram í umfjöllun Greiningar Íslandsbanka í gær. „Öll félögin birtu uppgjör í lok október eða nóvember og hafði birtingin mismikil áhrif á gengi félaganna,“ segir í umfjölluninni í Morgunkorni bankans. Bréf Össurar hækkuðu um 3,9 prósent daginn eftir birtingu. „Næstmest var hækkun bréfa í Vodafone, eða um 3,2 prósent, en segja má að með uppgjöri þriðja ársfjórðungs hafi félagið loksins fengið uppreisn æru eftir töluvert ýkt viðbrögð við slæmu uppgjöri á fyrsta ársfjórðungi.“ Bent er á að yfir nóvembermánuð hafi bréf Vodafone samtals hækkað um 4,8 prósent og hafi gengi félagsins staðið í 29,75 krónum á hlut í lok hans. „Í kjölfar árásar á vef félagsins um síðustu helgi lækkaði gengi félagsins hins vegar töluvert aftur og stendur nú í kringum 26 krónur á hlut.“ Um leið er bent á að gengi félagsins hafi hækkað verulega bæði í október og nóvember. Lækkunin nú í byrjun mánaðarins hafi ekki náð að þeirri hækkun að fullu. Í umfjöllun Greiningar er jafnframt vísað í nýbirtar tölur Kauphallarinnar um veltu í nóvember. Hún nam tæpum 20 milljörðum króna, örlítið meiri en að jafnaði í september og október. Mest viðskipti voru með bréf Icelandair, sem stóðu undir 31 prósenti veltunnar. Um leið bendir Greining Íslandsbanka á að bréf Marel hafi tekið „óvæntan kipp“ og félagið því með næstmesta veltu í Kauphöllinni þann mánuð.
Mest lesið Óvissa með nöfnin og reynt að róa uggandi starfsmenn Viðskipti innlent Verðbólga hjaðnar Viðskipti innlent Vill 22 billjónir frá OpenAI: „Það er ekki í lagi að stela góðgerðafélagi“ Viðskipti erlent Horfa á eftir Steingrími og spara 180 milljónir á ári Viðskipti innlent Telur enn að stýrivextir verði hækkaðir Viðskipti innlent Edda Rut tekur við af Ragnari Þór eftir tuttugu ár í brúnni Viðskipti innlent Fjárfestahagsmunir fremur en gervigreind skýri fækkun hjá Íslandsbanka Viðskipti innlent Lúxusbílaframleiðandi bauð íslenskum bræðrum í draumaferð til Kína Samstarf Vara við svikapóstum um lén frá DMS Iceland Viðskipti innlent Ráða þrjá í tengslum við stofnun nýs sjóðs Viðskipti innlent Fleiri fréttir Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur Óvissa með nöfnin og reynt að róa uggandi starfsmenn Vara við svikapóstum um lén frá DMS Iceland Telur enn að stýrivextir verði hækkaðir Fjárfestahagsmunir fremur en gervigreind skýri fækkun hjá Íslandsbanka Edda Rut tekur við af Ragnari Þór eftir tuttugu ár í brúnni Ráða þrjá í tengslum við stofnun nýs sjóðs Verðbólga hjaðnar Afkoma í samræmi við áætlanir hjá Símanum Horfa á eftir Steingrími og spara 180 milljónir á ári Icelandair tapaði 5,6 milljörðum króna Íslandsbanki fækkar starfsmönnum um fimmtíu Hagnaður jókst um 21 prósent á fyrsta ársfjórðungi Rekstur borgarinnar neikvæður um 5,3 milljarða í fyrra Sektað vegna auglýsinga fyrir „nikótínpúðajóladagatal“ Lýsa magnesíumverksmiðju sem „andstæðu loftslagsverkfræði“ Innkalla nautahakk vegna gruns um salmonellu Færðu Finnum Jónsbók Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Vara við svikaherferð í nafni bankans Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Endurræsing hafin hjá Norðuráli B12 Space gjaldþrota Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Sjá meira