Gistinóttum í október fjölgaði um 12% milli ára Haraldur Guðmundsson skrifar 5. desember 2013 10:08 Gistinætur erlendra gesta voru 77 prósent af heildarfjölda gistinátta í október.
Gistinætur á hótelum í október voru 158.500 samanborið við 140.500 nætur í október 2012. Gistinóttum fjölgaði því um 12 prósent milli ára. Þetta kemur fram á vefsíðu Hagstofu Íslands. Þar segir að gistinætur erlendra gesta hafi verið 77 prósent af heildarfjölda gistinátta í mánuðinum, sem var aukning um ellefu prósent frá októbermánuði 2012. Gistinóttum Íslendinga fjölgaði um 17 prósent. Þegar tölur yfir einstaka landshluta eru skoðaðar sést að gistinætur á hótelum höfuðborgarsvæðisins voru 112.400, sem er aukning um 7 prósent frá sama mánuði í fyrra. Á Suðurlandi voru 17.400 gistinætur í júlí samanborið við 13.700 í október 2012, sem er aukning um 29 prósent. Á Austurlandi fjölgaði gistinóttum um 26 prósent milli ára, en þær fóru úr 3.300 í 4.300. Á Norðurlandi voru gistinæturnar 12.500, sem er þrjátíu prósenta aukning. Á samanlögðu svæði Vesturlands og Vestfjarða voru gistinæturnar 4.800 talsins, sem var aukning um 35 prósent. Að lokum voru gistinætur á Suðurnesjum 7.000, sem er um 23 prósenta aukning frá október 2012. „Gistinætur á hótelum fyrstu tíu mánuði ársins 2013 voru 1.792.879 til samanburðar við 1.589.796 fyrir sama tímabil árið 2012. Ef miðað er við sama tímabil árið 2012 þá hefur gistinóttum erlendra gesta hefur fjölgað um 13% á meðan gistinóttum Íslendinga hefur fjölgað um 11% Taka ber fram að hér er eingöngu átt við gistinætur á hótelum sem opin eru allt árið. Tölurnar segja því ekki til um gistinætur á gistiheimilum né hótelum sem eingöngu eru opin yfir sumartímann,“ segir á vef Hagstofu Íslands.
Mest lesið Óvissa með nöfnin og reynt að róa uggandi starfsmenn Viðskipti innlent Verðbólga hjaðnar Viðskipti innlent Vill 22 billjónir frá OpenAI: „Það er ekki í lagi að stela góðgerðafélagi“ Viðskipti erlent Horfa á eftir Steingrími og spara 180 milljónir á ári Viðskipti innlent Telur enn að stýrivextir verði hækkaðir Viðskipti innlent Edda Rut tekur við af Ragnari Þór eftir tuttugu ár í brúnni Viðskipti innlent Fjárfestahagsmunir fremur en gervigreind skýri fækkun hjá Íslandsbanka Viðskipti innlent Lúxusbílaframleiðandi bauð íslenskum bræðrum í draumaferð til Kína Samstarf Vara við svikapóstum um lén frá DMS Iceland Viðskipti innlent Ráða þrjá í tengslum við stofnun nýs sjóðs Viðskipti innlent Fleiri fréttir Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur Óvissa með nöfnin og reynt að róa uggandi starfsmenn Vara við svikapóstum um lén frá DMS Iceland Telur enn að stýrivextir verði hækkaðir Fjárfestahagsmunir fremur en gervigreind skýri fækkun hjá Íslandsbanka Edda Rut tekur við af Ragnari Þór eftir tuttugu ár í brúnni Ráða þrjá í tengslum við stofnun nýs sjóðs Verðbólga hjaðnar Afkoma í samræmi við áætlanir hjá Símanum Horfa á eftir Steingrími og spara 180 milljónir á ári Icelandair tapaði 5,6 milljörðum króna Íslandsbanki fækkar starfsmönnum um fimmtíu Hagnaður jókst um 21 prósent á fyrsta ársfjórðungi Rekstur borgarinnar neikvæður um 5,3 milljarða í fyrra Sektað vegna auglýsinga fyrir „nikótínpúðajóladagatal“ Lýsa magnesíumverksmiðju sem „andstæðu loftslagsverkfræði“ Innkalla nautahakk vegna gruns um salmonellu Færðu Finnum Jónsbók Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Vara við svikaherferð í nafni bankans Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Endurræsing hafin hjá Norðuráli B12 Space gjaldþrota Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Sjá meira