Stærðfræðin vísaði á óverðtryggt lán fremur en verðtryggt 16. mars 2013 06:00 Sveinn og Björk Þau Björk og Sveinn færðu sig á síðasta ári úr tveggja herbergja íbúð í Vesturbænum í fjögurra herbergja íbúð í Hlíðunum. Fréttablaðið/Vilhelm
Björk Ellertsdóttir og Sveinn Eiríkur Ármannsson stækkuðu nýverið við sig. Þau bjuggu áður í tveggja herbergja íbúð í gömlu Verkamannablokkunum í Vesturbænum en keyptu á síðasta ári fjögurra herbergja íbúð í Hlíðunum. „Við höfðum verið með augun opin eftir íbúð í tvö ár og reyndum á sama tíma að safna fyrir innborgun. Á þessu tímabili gerðum við nokkur kauptilboð en þetta gekk ekki upp fyrr en við fundum þessa íbúð í Hlíðunum,“ segir Sveinn. Björk segir að þau hafi tekið óverðtryggt fastvaxtalán hjá Arion fyrir íbúðakaupunum og bætir við að þau hafi hallast að óverðtryggðu láni eftir að hafa séð hve hratt verðtryggð lán geta hækkað þegar verðbólga fer af stað. „Fyrir fram vildum við skoða þann möguleika að taka óverðtryggt lán. Við reiknuðum þetta svo fram og til baka og það sem réði að lokum úrslitum var einfaldlega stærðfræðin,“ segir Björk og bætir við: „Þetta er mjög stór fjárhagsleg ákvörðun og það er því mikilvægt að vera með fjárhagslegu hliðina á hreinu og ana ekki út í neitt.“ Sveinn segir að það hafi í raun komið sér vel að finna ekki íbúð fyrr en eftir næstum tveggja ár leit. „Við fengum þarna góðan tíma til að spara. Það má líka benda á að það hjálpaði okkur að við höfum ekki rekið bíl, sem gerði okkur auðveldar fyrir en ella að leggja hluta af launum okkar til hliðar um hver mánaðamót.“ Björk bætir við að íbúðaleit geti verið stressandi enda nokkuð áreiti í ferlinu. „Fasteignasalarnir eru oft að pressa á fólk að hækka tilboðin sín. Þeir hringdu stundum og sögðu að það hefði komið annað tilboð sem væri aðeins hærra en okkar. Við erum hins vegar ekkert viss um að það hafi endilega verið satt alltaf. Þannig að það er mikilvægt að halda sér á jörðinni, æsast ekki upp við þetta og fara að bjóða einhverja vitleysu. Frekar að bíða lengur ef það kemur til greina.“
Mest lesið Skims opnar í Kringlunni Viðskipti innlent „Listamaðurinn“ leitar að þeim bestu í íslensku atvinnulífi Framúrskarandi fyrirtæki EX60: Sumarást eða samband til frambúðar Samstarf Hafi ekki sérhagsmuni að leiðarljósi um skráningarskyldu fjölmiðla Viðskipti innlent Uggandi yfir afstöðu VR Viðskipti innlent Nýir veitingastaðir opnaðir á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju Viðskipti innlent Aukin skattheimta og aukin samkeppni í boði ríkisins Viðskipti innlent Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðun sína Viðskipti innlent Stýrivextir áfram átta prósent Viðskipti innlent Tölvuþrjótarnir hafi ekki komist yfir kortanúmer Viðskipti erlent Fleiri fréttir Hafi ekki sérhagsmuni að leiðarljósi um skráningarskyldu fjölmiðla Skims opnar í Kringlunni Aukin skattheimta og aukin samkeppni í boði ríkisins Nýir veitingastaðir opnaðir á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju Uggandi yfir afstöðu VR Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðun sína Stýrivextir áfram átta prósent Sonur Kristjáns í hans stað á hvalveiðiráðstefnu Vill að þak verði sett á álagningu olíufélaga Eru ríkisskuldabréfasjóðir öruggir? Tæplega þrjátíu sagt upp Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Ráðinn sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Fastus Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Enn lækkar Ísland í nýsköpunarvísitölunni Boðaði til starfsmannafundar og mætti í stjórnarráðið Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Sjá meira