Lýsing skoðar réttarstöðu í kjölfar álits frá ESA 27. maí 2013 00:01
Dómsmál Fjármögnunarfyrirtækið Lýsing hyggst skoða réttarstöðu sína vandlega í kjölfar álits Eftirlitsstofnunar EFTA (ESA) þess efnis að íslenskum stjórnvöldum hafi verið óheimilt að banna veitingu gengistryggðra lána í krónum. Stóru bankarnir hafa enga ákvörðun tekið um viðbrögð. Fréttablaðið greindi frá því á laugardag að álit ESA, sem gefið var út á miðvikudag, vekti upp spurningar um bótaábyrgð ríkisins gagnvart innlendum fjármálastofnunum. Hafði Fréttablaðið þá eftir Tómasi Hrafni Sveinssyni héraðsdómslögmanni að svo gæti farið að bankar sem orðið hafa fyrir tapi vegna endurreikninga gengistryggðra lána í krónum færu að skoða rétt sinn. Innlendar fjármálastofnanir töpuðu miklum fjárhæðum við gengislánadóma Hæstaréttar. Má nefna sem dæmi að Viðskiptablaðið mat það sem svo í janúar 2011 að dómarnir hefðu kostað Lýsingu 20,4 milljarða króna. Þór Jónsson, talsmaður Lýsingar, segir að fyrirtækið hafi kynnt sér álit ESA eftir að það var birt á miðvikudag. „Niðurstaða þess er í takti við það sem Lýsing taldi og það gefur augaleið að Lýsing skoðar núna stöðu sína með hliðsjón af þessari niðurstöðu ESA,“ segir Þór. Fréttablaðið sendi sömuleiðis fyrirspurnir á stóru bankana þrjá. Samkvæmt upplýsingum frá Íslandsbanka og Arion banka hafa bankarnir enga ákvörðun tekið um hvort brugðist verði við álitinu. Kristján Kristjánsson, upplýsingafulltrúi Landsbankans, segir að bankinn hafi fylgst með málinu en bætir við að því sé ekki lokið, enda þarf ríkið að svara ESA og svo getur málið farið fyrir EFTA-dómstólinn bregðist stjórnvöld ekki við. Þá segir Kristján að Landsbankinn muni einfaldlega fylgjast áfram með málinu og skoða það. - mþl
Mest lesið Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Viðskipti innlent Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Viðskipti innlent Daníel Þór frá Kviku til Reita Viðskipti innlent Greiðsluáskorun Samstarf Úrvalsdekk hönnuð fyrir Tesla og hátækni rafbíla nú fáanleg á Íslandi Samstarf Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Viðskipti innlent Ætla að opna verslunarkjarna á Korputúni Viðskipti innlent Eru greiðsludreifingar virkilega jafn hentugar og allir segja? Viðskipti innlent Gjaldskrá Strætó hækkuð á ný Neytendur Lite-æðið hafi Íslendinga að fíflum Neytendur Fleiri fréttir Daníel Þór frá Kviku til Reita Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Ætla að opna verslunarkjarna á Korputúni Eru greiðsludreifingar virkilega jafn hentugar og allir segja? Höfðar til ábyrgðar olíufélaga og segir verðið nú þegar óeðlilegt Atvinnulausum verkamönnum fjölgar um fjörutíu prósent Tækifæri fylgi flugi frá Kína en einnig hættur Upptaka evru myndi ekki einungis hafa áhrif á vexti Opna fjórðu SPAR-verslunina á morgun Rammagerðin leitar nauðasamninga Sameinaður sjóður ætti rúma þúsund milljarða Bláa lónið eykur hlut sinn í þremur baðlónum Dóra Björt ráðin deildarstjóri Hækkun á heilsugæslu auki verðbólgu í ágúst Tvær stöndugar fasteignasölur sameinast Plantan kveður Norræna húsið: „Dæmið er ekki alveg að ganga upp“ Nýr kokteilbar opnaður á Hverfisgötu: „Okkur langaði bara að opna dyrnar sem fyrst“ Kristinn V. Jóhannsson er látinn Hugrún nýr markaðsstjóri Defend Iceland Kaupa allt hlutafé í Nicetravel Fluttu eitt prósent færri farþega en í júní á síðasta ári Fá AA- í einkunn Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Loka Te og kaffi á Suðurlandsbraut Eitt app fyrir ferðamenn til að skemmta sér og forðast hættur Of snemmt að draga fram heykvíslar Sjá meira