Meint svik starfsfólks í skattaskjólum könnuð 27. maí 2013 07:00 Lúxemborg er meðal þeirra skattaskjóla sem rannsökuð hafa verið.
Rannsókn er hafin á meintum skattsvikum tuga einstaklinga sem störfuðu hjá aflandsfélögum í eigu íslenskra aðila í erlendum skattaskjólum. Rannsóknin leiðir af athugun á félögunum sem slíkum. „Við erum yfirleitt ekki að skattleggja aflandsfélög heldur einstaklinga vegna þess ávinnings sem þeir höfðu af því að setja starfsemi sína í aflandsfélög,“ segir Gunnar Thorberg, forstöðumaður rannsóknasviðs. „Við rannsókn okkar á örfáum aflandsfélögum úti í heimi kom í ljós að hjá þeim störfuðu margir án þess að greiða skatt hér. Þessum málum erum við að vinna í núna.“ Á fimmta tug svokallaðra skattaskjólsmála hafa verið til rannsóknar hjá skattrannsóknarstjóra frá því skömmu eftir hrun. Rannsókn á fjórða tug mála er lokið og hafa flest fengið endurákvörðun hjá ríkisskattstjóra. Sjö voru send sérstökum saksóknara. Þremur málum var lagt, að sögn Gunnars. Hann greinir frá því að í sumum málanna sé um að ræða hundraða og jafnvel milljarða króna hagnað sem ekki hafi verið greiddur réttur skattur af. „Rannsóknir þessara mála hafa gengið vel þrátt fyrir að mörg hver hafi verið umfangsmikil og flókin.“ Starfsmönnum embættis skattrannsóknarstjóra var fjölgað fljótlega eftir hrun. „Við vorum um 20 og fengum fjármagn til að ráða tíu starfsmenn til viðbótar. Þetta hefur hjálpað gríðarlega mikið en æskilegt væri að við værum fleiri í ljósi verkefnastöðu embættisins. Ég hef starfað hér í 20 ár og hef aldrei upplifað jafnmikinn fjölbreytileika í málum.“ Auk skattaskjólsmála og afleiðuviðskipta, til dæmis gjaldmiðlaskiptasamninga, eru fjöldamörg önnur skattsvikamál til rannsóknar. „En það er sérstaklega í sambandi við skattaskjólsmálin sem mörg önnur mál hafa verið opnuð hjá okkur.“
Mest lesið Alþjóðlegt bílafyrirtæki kaupir Öskju og systurfélög Viðskipti innlent Gengi Play í frjálsu falli Viðskipti innlent HBO Max streymisveitan komin til Íslands Viðskipti innlent Róðurinn þungur en hefur ekki áhyggjur af Play Viðskipti innlent Að líða ömurlega í andrúmslofti jákvæðrar sálfræði Atvinnulíf Svona verður hægt að horfa á enska boltann í vetur Neytendur Fyrsta íslenska grænkera ostagerðin í hættu Viðskipti innlent Orri til liðs við Íslandsbanka Viðskipti innlent Tæpur milljarður í höfundarréttartekjur Viðskipti innlent Búast við tveggja milljarða tapi Viðskipti innlent Fleiri fréttir Róðurinn þungur en hefur ekki áhyggjur af Play HBO Max streymisveitan komin til Íslands Gengi Play í frjálsu falli Alþjóðlegt bílafyrirtæki kaupir Öskju og systurfélög Búast við tveggja milljarða tapi Samruninn muni taka langan tíma Orri til liðs við Íslandsbanka Tæpur milljarður í höfundarréttartekjur Erlendir farþegar á bak við 81 prósent tekna Icelandair Auður leiðir nýja samsteypu á íslenskum markaði Virði Icelandair hrapar eftir uppgjör „Við erum alls ekki í nokkru stríði“ Plötuðu erlent fyrirtæki til að greiða sér tugi milljóna: Annar sagður hrokafullur en hinn sýndi iðrun Vaka stýrir Collab Hagnaður Arion flaug fram úr væntingum Fjárfestar í sjávarútvegi fari að líta annað Hvenær er skynsamlegt að taka út viðbótalífeyrissparnað? Stígur til hliðar vegna „ólíkrar sýnar“ á breytingar Davíð nýr framkvæmdastjóri áfangastaða hjá Arctic Adventures Seldi íbúðina og keypti Bitcoin í staðinn Íbúðum í byggingu fækkar Selja Lagarfoss með tæplega hálfs milljarðs tapi Ójafnrétti að konur þurfi að ganga á veikindarétt vegna barneigna Fyrirtæki í vopnaframleiðslu eru á rauðum lista Völdu Noreg fram yfir Ísland þrátt fyrir að besta lausnin væri hér Eiginkona stjórnarmanns keypti óvart í bankanum Raunverð íbúða hefur þrefaldast frá aldamótum Atli Óskar ráðinn rekstrarstjóri framleiðslu Engin U-beygja hjá Play Veitingamenn verulega óánægðir með eftirlitið Sjá meira
Plötuðu erlent fyrirtæki til að greiða sér tugi milljóna: Annar sagður hrokafullur en hinn sýndi iðrun