Íslenski Expo-skálinn settur upp í Brim-húsinu 24. júlí 2013 08:45 Guðmundur í Brim opnaði Expo-skálann um helgina.
Íslenski Expo skálinn frá heimssýningunni í Shanghai 2010 og Bókamessunni í Frankfurt 2011 hefur verið settur upp í Brim-húsinu á Miðbakka við Reykjavíkurhöfn. Í skálanum er sýnd einstök 360 gráðu kvikmynd þar sem veggir og loft mynda sjónræna heild en myndin var framleidd af Sagafilm. Myndin er fimmtán mínútur að lengd og sýnir Ísland í öllum sínum fjölbreytileika. Myndskeiðum frá náttúru og borg er varpað á fjórar hliðar og loft skálans sem saman mynda tening utan um gesti skálans. Ný tækni, þróuð af Sagafilm var notuð við upptökur. Fjórar samtengdar tökuvélar festu landið á filmu, frá lofti, láði og legi og útkoman er kvikmyndaupplifun sem lætur engan ósnortinn. Markmið myndarinnar er að skapa einfalda og áhrifaríka undraveröld sem fær gesti til að nema staðar, draga djúpt að sér andann og upplifa Ísland í návígi. Veggir og loft mynda sjónræna, lifandi heild og mannlíf Íslands er speglað í sterkum tengslum við frumkrafta náttúrunnar.Magnús StefánTónlistin við kvikmyndina er eftir Hilmar Örn og er órjúfanlegur hluti af verkinu. Yfir þrjár milljónir manna hafa nú þegar séð myndina og hófust sýningar í Brim-húsinu síðastliðna helgi. Eldgos í 360 gráðum.Aðsóknin fór fram úr björtustu vonum og sáu hátt í þrjú hundruð manns myndina þessa fyrstu sýningarhelgi. Þess má geta að skálinn var settur upp í Hörpu í fyrra og vakti gríðarlega lukku.Skálinn er opinn frá 10 til 22 alla daga og er aðgangseyrir 1500 krónur. Myndin er sýnd á heila og hálfa tímanum. Nánari upplýsingar er að finna á Facebook-síðu skálans.
Mest lesið Aukin skattheimta og aukin samkeppni í boði ríkisins Viðskipti innlent Uggandi yfir afstöðu VR Viðskipti innlent Nýir veitingastaðir opnaðir á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju Viðskipti innlent Stýrivextir áfram átta prósent Viðskipti innlent Tölvuþrjótarnir hafi ekki komist yfir kortanúmer Viðskipti erlent Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðun sína Viðskipti innlent Sonur Kristjáns í hans stað á hvalveiðiráðstefnu Viðskipti innlent Notendur ASOS fá tilkynningu frá meintum tölvuþrjótum Viðskipti erlent Vill að þak verði sett á álagningu olíufélaga Viðskipti innlent Nýtt gæðakerfi Michelin Expert center hjá N1 Samstarf Fleiri fréttir Aukin skattheimta og aukin samkeppni í boði ríkisins Nýir veitingastaðir opnaðir á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju Uggandi yfir afstöðu VR Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðun sína Stýrivextir áfram átta prósent Sonur Kristjáns í hans stað á hvalveiðiráðstefnu Vill að þak verði sett á álagningu olíufélaga Eru ríkisskuldabréfasjóðir öruggir? Tæplega þrjátíu sagt upp Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Ráðinn sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Fastus Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Enn lækkar Ísland í nýsköpunarvísitölunni Boðaði til starfsmannafundar og mætti í stjórnarráðið Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Spá óbreyttum vöxtum Minnsta hlutabréfavelta frá faraldursárinu 2020 Sjá meira