Lífeyrissjóðir munu eignast Skipti 25. janúar 2013 07:00 Stefnt er að því að ljúka endurskipulagningunni á fyrsta eða öðrum ársfjórðungi 2013. Fréttablaðið/stefán
Gangi áætlanir um fjárhagslega endurskipulagningu Skipta hf. eftir munu eigendur skuldabréfaflokks félagsins eignast það að langmestu leyti. Þeir eru aðallega íslenskir lífeyrissjóðir og smærri fagfjárfestar. Skipti, sem er móðurfélag Símans, Skjásins og Mílu, tilkynnti í gær að fjárhagsleg endurskipulagning væri að hefjast. Alls nema skuldir samstæðunnar um 62 milljörðum króna. Stærstur hluti skuldanna er vegna sambankaláns sem veitt var þegar Síminn, langstærsta eign Skipta, var einkavæddur árið 2005. Gangi áformin eftir verður sá hluti skuldanna endurfjármagnaður en sambankalánið er sem stendur á gjalddaga í desember 2013. Gert er ráð fyrir að endurskipulagningin lækki skuldir Skipta um tugi milljarða króna. Björtustu vonir standa til þess að endurskipulagningunni muni ljúka á fyrsta ársfjórðungi þessa árs, eða innan rúmlega mánaðar.Með veð í öllum eignum Skipti er stærsta íslenska fyrirtækjasamsteypan sem er augljóslega með allt of háar skuldir en hefur ekki verið endurskipulögð eftir bankahrun. Alls námu skuldirnar um 62 milljörðum króna um síðustu áramót. Þar af er sambankalán sem er á gjalddaga í desember 2013 upp á um 30 milljarða króna. Það er nú leitt af Arion banka en auk þess koma Íslandsbanki og erlendir bankar að því. Sá hópur lánveitenda á veð í öllum undirliggjandi eignum Skipta og er því tiltölulega öruggur með sína stöðu. Að auki voru greiddir 17,2 milljarðar króna inn á lánið í apríl 2011. Það var gert vegna þess að ýmsir skilmálar lánsins höfðu verið brotnir. Alls skuldar Skipti fjármálastofnunum um 40 milljarða króna. Lífeyrissjóðir verða eigendur Til viðbótar gaf félagið á sínum tíma út skuldabréfaflokk sem er á gjalddaga í apríl 2014. Skipti hefur greitt vexti af þeim flokki. Höfuðstóll hans er nú um 22 milljarðar króna. Stærstu eigendur þeirra skuldabréfa eru Lífeyrissjóður verzlunarmanna (LV), Lífeyrissjóðir starfsmanna ríkisins (LSR), Gildi lífeyrissjóður og Almenni lífeyrissjóðurinn. Auk þess eiga smærri fagfjárfestar bréf. Skuldabréfaflokkurinn er óveðtryggður og því gengur fjárhagslega endurskipulagningin sem nú stendur til að ráðast í út á að fá ofangreindan hóp til að breyta kröfum sínum í hlutafé. Við það yrði hann að mestu eigandi Skipta. Núverandi eigandi, Klakki (áður Exista), myndi þynnast út samhliða.Rekstrarhagnaður en tap Undirliggjandi rekstur Skipta hefur verið góður og rekstrarhagnaður fyrir afskriftir og fjármagnsliði (EBITDA) hefur farið vaxandi. Hann var samtals 11,5 milljarðar króna á árunum 2010 og 2011. Samanlagt tap Skipta á sömu árum var hins vegar 13,4 milljarðar króna, aðallega vegna gríðarlega mikils fjármagnskostnaðar. Á árinu 2012 hækkaði rekstrarhagnaðurinn fyrir afskriftir og fjármagnsliði enn. Samkvæmt bráðabirgðauppgjöri nam hann um átta milljörðum króna. Samt sem áður var endanlegt tap samstæðunnar yfir tveimur milljörðum króna. Þar skipti fjármagnskostnaður upp á tæpa sex milljarða króna miklu máli. Ljóst hefur verið að til lengri tíma skerða þessar aðstæður samkeppnishæfi og fjárfestingagetu Skipta-samstæðunnar. Árið 2011 voru skuldirnar enda um tífaldur rekstrarhagnaður hennar. Til samanburðar þá skulda símafyrirtæki í Evrópu að jafnaði tvöfaldan árlegan rekstrarhagnað sinn.
Mest lesið Bíóstólarnir í Álfabakka til sölu Viðskipti innlent Bærinn bótaskyldur og þarf að bjóða líkamsræktarstöð út aftur Viðskipti innlent Húðflúrari fór frá hálfkláruðum fugli á hálsi Neytendur Virðist ekki vera hægt á Íslandi Viðskipti innlent „Áhyggjuefni ef fyrirtækin mæta þessu með semingi“ Neytendur Flogin frá Icelandair til Nova Viðskipti innlent Bíóinu í Álfabakka lokað í janúarlok Viðskipti innlent Range Rover Sport er lúxusjeppi sem tekið er eftir Samstarf Sigga Lund lenti illa í „Vefstól Svanhildar“ og varar aðra við Neytendur „Ég verð að segja að ég er svolítið hlessa“ Neytendur Fleiri fréttir Bíóstólarnir í Álfabakka til sölu Bærinn bótaskyldur og þarf að bjóða líkamsræktarstöð út aftur Flogin frá Icelandair til Nova Virðist ekki vera hægt á Íslandi Minni líkur á vaxtalækkun: „Þeim verður vandi á höndum, seðlabankafólkinu“ Skattleysismörk barna yngri en 16 ára hækka Frosti og Arnþrúður fá styrki Verðbólga eykst verulega Hefja sölu á fyrstu hliðstæðu við Simponi í heiminum Stefán útvarpsstjóri gáttaður á Stefáni útvarpsstjóra Framkvæmdastjóri Lyfjavals hættur Eyða óvissu á lánamarkaði strax á mánudag Ljúka kaupum á Hreinsitækni og HRT þjónustu Gréta María um starfslokin: „Ég geng stolt frá borði“ Síminn fær heimild til að reka áfram 2G og 3G þjónustu Breyta nafni Ölgerðarinnar Jón Ingi nýr forstjóri PwC Tekur við sem hagfræðingur Viðskiptaráðs Gréta María óvænt hætt hjá Prís Ráðinn nýr fjármála- og rekstrarstjóri Lyfja og heilsu Þrír eða færri skoða eign í fyrstu viku á sölu Byrjunarverð hjá NiceAir tæplega sextíu þúsund krónur Leigan rukkuð mánaðarlega en ekki í lokin Frá Logos til Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi Alcoa stefnir Eimskip að nýju í samráðsmáli Aron Kristinn stofnar goðsagnakennt fyrirtæki Vill verða stjórnarformaður Íslandsbanka: „Hvaða sirkus er þetta?“ Geta þurft að greiða hátt verð fyrir póstsendar gjafir Segja ráðherra fórna íslenskum hagsmunum í makrílsamningi Ísland gerir samkomulag um makrílveiðar í fyrsta skipti Sjá meira