Gagnrýna 25 ára gamalt neysluviðmið Haraldur Guðmundsson skrifar 19. desember 2013 07:30 Innflutningur á kjúklingakjöti stóð einungis undir 0,8 prósentum af heildarneyslu árið 2010. Fréttablaðið/Hari.
Félag atvinnurekenda gagnrýnir að frumvarp um breytingar á tollalögum inniheldur engar breytingar á neysluviðmiði ákveðinna tollkvóta vegna innflutnings á landbúnaðarafurðum. Kvótarnir falla undir samning Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar (WTO) og miða við árin 1986-88 en ekki við núverandi neyslu á landbúnaðarvörum. „Samningurinn heimilar ákveðna tollvernd en segir einnig að það eigi að vera tryggt að tiltekið magn af innflutningi standi viðkomandi löndum til boða á ásættanlegu verði. Það magn sem heimilt er að flytja inn hljóðar einungis upp á fimm prósent af þessu neysluviðmiði frá níunda áratug síðustu aldar og neysluvenjur landans hafa breyst síðan þá og nægir að horfa til sölu á kjúklingi,“ segir Almar Guðmundsson, framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda. Frumvarpið, sem nú er til umræðu á Alþingi, miðar að því að sníða vankanta af breytingum á tollalögum sem voru gerðar í fyrra, en Umboðsmaður Alþingis komst að þeirri niðurstöðu að heimildir landbúnaðar- og sjávarútvegsráðherra til að ákveða tolla á innflutningskvóta brytu í bága við stjórnarskrá. Ólafur Friðriksson, skrifstofustjóri í atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, segir ástæðuna fyrir núverandi viðmiði vera þá að samningur WTO og lögin sem voru innleidd vegna hans miði við þetta tiltekna viðmið. „Það hefur ekki verið gerður nýr samningur. Það var næstum því búið árið 2008, en það slitnaði upp úr á elleftu stundu. Þau drög sem þar lágu fyrir miðuðu við allt annað ár. Menn geta gagnrýnt þetta en það sama á við um þessi 149 lönd innan WTO,“ segir hann og heldur áfram: „En þetta frumvarp sem er fyrir þinginu núna fjallar ekkert um þetta gamla neysluviðmið heldur um tollkvóta sem ráðherra hefur heimild til að úthluta og hvernig tollar séu stilltir af,“ segir Ólafur. Almar undirstrikar að gagnrýni félagsins sé tilkomin vegna þess að tollkvótarnir eru ekki á dagskrá í frumvarpinu. „Þetta á að vera á dagskrá ef ráðuneytið, þingið og atvinnuveganefnd eru að taka málaflokkinn til skoðunar. Þá er ekki valkostur að horfa þröngt á málið og setja lítinn plástur á flakandi sár,“ segir Almar.
Mest lesið Besti svefninn níu mínúturnar á milli snúsa Atvinnulíf X-ið hans Musk virðist liggja niðri Viðskipti erlent Kallar eftir virðingu eftir tollahótanir Trump Viðskipti erlent Alcoa fellur frá þriggja milljarða króna skaðabótakröfu Viðskipti innlent Ný forysta Félags kvenna í atvinnulífinu kjörin Viðskipti innlent Högnuðust ríkulega en draga samt saman seglin í heimabyggð Viðskipti innlent Þorsteinn Már hættir hjá Samherja Viðskipti innlent Landsbankinn og Arion lækka vexti Neytendur Íslendingar vongóðir um að finna heitt vatn á Tenerife Viðskipti innlent Hálf öld af ástríðu og kappsemi – Bílabúð Benna fagnar 50 ára afmæli Samstarf Fleiri fréttir Ný forysta Félags kvenna í atvinnulífinu kjörin Alcoa fellur frá þriggja milljarða króna skaðabótakröfu Högnuðust ríkulega en draga samt saman seglin í heimabyggð Íslendingar vongóðir um að finna heitt vatn á Tenerife Kaupa fasteignirnar sem hýsa starfsemi Samskipa Valgerður Hrund hættir hjá Sensa Sannfærður um að fjárfestingin standi undir sér Stefán endurkjörinn formaður Þorsteinn Már hættir hjá Samherja Samþykktu að selja Perluna fyrir 3,5 milljarða Einar Bárðarson tekur við umdeildu félagi Brynja yfirmaður markaðseftirlits Nasdaq Iceland Gísli Þór og Jón Garðar nýir framkvæmdastjórar hjá Terra Ráðin þjónustustjóri atNorth á Akureyri Gunnar Örn og Haraldur Hilmar nýir forstöðumenn hjá Arion Setja spurningarmerki við umfjöllun um Climeworks Íbúðaverð hækkað um 14,5 prósent á tveimur árum Stjórnarandstaðan í vasa hagsmunaaðila Af og frá að slakað sé á aðhaldi Ráðinn markaðsstjóri Bónuss Aka um Ísland í allt sumar og mynda vegakerfið í þrívídd Of snemmt að segja til um hvort vaxtalækkunarferlinu sé lokið í bili „Ég held að þú þurfir ný gleraugu“ Úthluta eftirstandandi hlutum í Íslandsbanka Bein útsending: Rökstyðja ákvörðun sína um lækkun vaxta Reitir fasteignafélag og HR efna til hugmyndasamkeppni fyrir nemendur Vaxtalækkunarferlið heldur áfram Birta nýja ákvörðun um stýrivexti í dag Ráðuneytið ógilti lóðaúthlutun fyrir milljarða Tólf milljarða hagnaður á fyrsta ársfjórðungi Sjá meira