Innleiða mannréttindareglur Óli Kristján Ármannsson skrifar 12. desember 2013 07:00 Höfuðstöðvarnar Landsvirkjun er til húsa í Austurveri í Reykjavík. Fréttablaðið/Vilhelm
Með undirritun viðmiða Sameinuðu þjóðanna um samfélagsábyrgð (UN Global Compact) skuldbindur Landsvirkjun sig til að virða og innleiða tíu reglur um mannréttindi, vinnurétt, umhverfismál og varnir gegn spillingu. Fram kemur í tilkynningu Landsvirkjunar að Global Compact séu útbreiddustu viðmið um samfélagsábyrgð í heiminum. Rúmlega 8.000 fyrirtæki og stofnanir um allan heim hafi undirritað Global Compact. Aðild Landsvirkjunar er sagt eðlilegt framhald af innleiðingu á stefnu um samfélagsábyrgð sem fyrirtækið hafi unnið að undanfarin ár. „Með undirritun Global Compact skuldbindur Landsvirkjun sig til að skila árlegri samantekt um framvindu og árangur á sviði samfélagsábyrgðar,“ segir í tilkynningunni.Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar.„Landsvirkjun hefur frá stofnun lagt mikla áherslu á samfélagslega ábyrgð fyrirtækisins. Með undirritun Global Compact tökum við enn eitt skrefið og vonumst til þess að aðildin styðji okkur í því að gera áherslur og aðgerðir okkar enn sýnilegri og markvissari,“ er haft eftir Herði Arnarsyni, forstjóra Landsvirkjunar. Þá kemur fram í tilkynningunni að Landsvirkjun hafi á haustdögum 2011 sett sér stefnu um samfélagsábyrgð og hafi síðan unnið að innleiðingu og framkvæmd stefnunnar í fyrirtækinu. „Með stefnunni hefur Landsvirkjun einsett sér að starfa eftir ábyrgum stjórnarháttum, vinna með ábyrgum viðskiptavinum og birgjum, leggja áherslu á sjálfbæra nýtingu náttúruauðlinda, eiga gott samstarf við samfélagið, stuðla að heilbrigði og öryggi starfsfólks og vinna markvisst að miðlun þekkingar og nýsköpun.“
Mest lesið Uggandi yfir afstöðu VR Viðskipti innlent Stýrivextir áfram átta prósent Viðskipti innlent Tölvuþrjótarnir hafi ekki komist yfir kortanúmer Viðskipti erlent Aukin skattheimta og aukin samkeppni í boði ríkisins Viðskipti innlent Nýir veitingastaðir opnaðir á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju Viðskipti innlent Sonur Kristjáns í hans stað á hvalveiðiráðstefnu Viðskipti innlent Vill að þak verði sett á álagningu olíufélaga Viðskipti innlent Notendur ASOS fá tilkynningu frá meintum tölvuþrjótum Viðskipti erlent Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðun sína Viðskipti innlent Eru ríkisskuldabréfasjóðir öruggir? Viðskipti innlent Fleiri fréttir Aukin skattheimta og aukin samkeppni í boði ríkisins Nýir veitingastaðir opnaðir á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju Uggandi yfir afstöðu VR Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðun sína Stýrivextir áfram átta prósent Sonur Kristjáns í hans stað á hvalveiðiráðstefnu Vill að þak verði sett á álagningu olíufélaga Eru ríkisskuldabréfasjóðir öruggir? Tæplega þrjátíu sagt upp Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Ráðinn sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Fastus Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Enn lækkar Ísland í nýsköpunarvísitölunni Boðaði til starfsmannafundar og mætti í stjórnarráðið Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Spá óbreyttum vöxtum Minnsta hlutabréfavelta frá faraldursárinu 2020 Sjá meira