Sóknarfæri gefast þegar námsskrár eru endurskoðaðar Óli Kristján Ármannsson skrifar 20. nóvember 2013 07:00 Fyrirtæki í örum vexti þarf stöðugt að vera á höttunum eftir fjármagni til að standa undir útþenslu starfseminnar. Vilborg Einarsdóttir, framkvæmdastjori Mentors, segir að nú sé kerfið til, það sem vanti sé fé til kynningar og markaðsstarfs. Fréttablaðið/Daníel
FréttaviðtalViðmótsbreyting sú sem nýverið var gerð á Mentor-námsumsjónarkerfinu er fyrsta skrefið í að innleiða nýja kynslóð hugbúnaðarins. Í nýrri útgáfu er að sögn Vilborgar Einarsdóttur, framkvæmdastjóra Mentors, að finna allmikla viðbót við kerfið og nýjar einingar. „Við byrjuðum á Íslandi, en viðmótið fyrir foreldra og nemendur er að koma út í öllum löndum. Síðan erum við að sérsníða kerfið að nýrri íslenskri aðalnámsskrá,“ segir Vilborg. Í þeirri vinnu segir hún líka byggt á aðlögun kerfisins að nýrri námsskrá Svía, Breta og Svisslendinga.Ný kynslóð á nýju ári „Við erum að gera kerfi sem getur aðlagast mismunandi námsskrám. Námsskráin er að segja má hjartað í kerfinu okkar og um hana snúast verkferlarnir í skólunum.“ Innleiðingu nýrrar námsskrár hér segist Vilborg telja eitt af mikilvægustu verkefnum þjóðarinnar. „Í grunninn snýst þetta um hvers konar nám við viljum veita börnunum okkar og hvers konar hæfni við viljum að börnin okkar búi yfir þegar þau koma út í lífið. Þetta snýst um framtíð lands og þjóðar, ekki bara einhver verkefni inni í ráðuneyti.“ Vilborg segir von á fyrstu einingum nýju kynslóðarinnar fyrir íslenska skóla í byrjun næsta árs. „Þetta kerfi hefur þegar verið tekið í notkun í Bretlandi og verður tilbúið í ágúst í Svíþjóð, en innleiðing er mislangt komin eftir mörkuðum.“Nýtt viðmót Mentors. Fyrsta skrefið í innleiðingu á nýrri kynslóð námsumsjónarhugbúnaðar Mentors var breyting á viðmóti í vefumhverfi notenda.Mynd/SkjáskotFimmtungshlutur í Svíþjóð Kerfið segir Vilborg hins vegar svo öflugt að það standi undir fleiri milljónum notenda. „Við hugsum þetta sem kerfi sem hægt er að fara með til Evrópu og erum að gera það.“ Núna er Mentor hins vegar starfandi í fimm löndum og sinnir um hálfri milljón notenda. „Við erum að stíga fyrstu skrefin inn á markaði eins og Bretland, Þýskaland og Sviss. Í Svíþjóð erum við í sterkri stöðu með um 20 prósenta markaðshlutdeild.“ Tækifæri Mentors segir Vilborg hins vegar byggjast á þeim breytingum sem unnið er að í kennsluumhverfi landanna og það kalli á aukið utanumhald kennara. Núna sé í auknum mæli notast við margvíslega nýmiðlun, rafræn kennslugögn, öpp og netið auk bóka. „Þeir eru að breyta námsskrám sínum og þá opnast gluggi til að koma inn á markaðinn með nýja og ferska lausn sem byggist á þekkingu frá fimm löndum.“ Keppinautarnir segir Vilborg að séu mestanpart staðbundin fyrirtæki, en sérstaða Mentors felist í víðfeðmari nálgun þar sem nýtt sé þekking á fleiri mörkuðum og svæðum. Núna segir Vilborg áherslu lagða á markaði þar sem fyrirtækið hafi náð fótfestu en stefnan sé hins vegar á starfsemi á heimsvísu.Peninga þarf í uppbyggingu „Tækifærin eru þarna. Í geiranum er gríðarlegur vöxtur, eins og sést til dæmis á notkun nýrrar tækni, hvort sem það eru spjaldtölvur eða krakkar að nota símana sína. Til þess að tryggja að unnið sé eftir markmiðum aðalnámsskrár í þessu nýja umhverfi þarf kerfi sem nær utan um alla þessa hluti.“ Vilborg segir stefnuna hjá Mentor setta á áframhaldandi uppbyggingu og það kalli á fjármagn. „Við erum eitt af þessum svokölluðu vaxtarfyrirtækjum með gríðarlega möguleika og erum að fjárfesta bæði í lausninni og í sókn inn á ný markaðssvæði.“ Að tryggja fjármagn til vaxtar geti aftur á móti verið þungur róður á stundum. „Við erum í þeirri stöðu að vera háð gjaldeyrishöftum og það er snúið fyrir erlenda fjárfesta. Svo erum við eitt af þessum fyrirtækjum sem geta bara tekið út vöxt á erlendum mörkuðum.“ Því sé fjár þörf, en það sé viðvarandi slagur. Fyrirtækið sé að verða komið með tæknilausnina, sem sé mikilvægt fyrir fjárfesta, en nú vanti fjármagn í sölu og markaðssetningu. „Og það er náttúrulega draumur fjárfesta að koma inn í þannig fyrirtæki.“
Mest lesið „Hvers vegna þarf ég að vera bara verkfræðingur eða bara smiður?“ Atvinnulíf Segir komið í veg fyrir að starfsmenn Vélfags fái greitt Viðskipti innlent Ætluðu að nýta greidd sæti en fengu ekki Neytendur Skipta um forstjóra hjá Origo Viðskipti innlent Afsökunum fyrir að drekka ekki kaffi fer fækkandi Atvinnulíf Milljónagreiðslur til Baldvins Jónssonar stöðvaðar Viðskipti innlent „Algjört siðleysi“ Neytendur Hafa umbreytt lífsskilyrðum fólks Lífið samstarf Fullt af nýjum bílum hjá Toyota Samstarf Samþykktu stofnun stærsta fríverslunarsvæðis í heimi Viðskipti erlent Fleiri fréttir Skipta um forstjóra hjá Origo Segir komið í veg fyrir að starfsmenn Vélfags fái greitt Úthluta rúmlega þrjátíu þúsund tonna loðnukvóta Íslendingar aldrei farið í fleiri utanlandsferðir Eldur segir Bandaríkjastjórn íhuga fjárfestingu og Amaroq tekur stökk S4S-veldið tekur við Lindex Nýr íslenskur rekstraraðili tekur við Lindex Eldur og Amaroq í sviðsljósi erlendra fjölmiðla Bíllinn þremur milljónum dýrari Lindex lokað á Íslandi Ólafur Orri Ólafsson Ólafssonar nýr forstjóri Samskipa Fjörutíu ára sögu American Style í Skipholti lokið Síðasta Heilsuhúsinu brátt lokað Auddi og Rakel hafa valið nafn og leita að starfskröftum Engin innköllun á NAN þurrmjólk á Íslandi Freyr lætur af störfum sem forstjóri Kapps Ingvar Freyr nýr hagfræðingur BHM Sonur tekur við af föður hjá Klöppum Útgáfu ViðskiptaMogga hætt og deildum fækkað Fjögurra milljarða gjaldið gæti hækkað verði ekkert úr áframhaldandi undanþágu Um fimm prósenta hækkun fasteignaverðs spáð á árinu Til í að taka á móti FDA hvenær sem er Grímur hættir hjá Bláa lóninu og Sigríður Margrét tekur við Róbert hættir sem forstjóri Alvotech 54 sagt upp í tveimur hópuppsögnum Icelandair setur nokkur met Lögmenn frá Juris til LEX Visa velur íslenskt félag í þróunarverkefni Úrvalsvísitalan lækkaði á nýliðnu ári Þetta var mest skráða einstaka bíltegundin 2025 Sjá meira