Viðskipti innlent

Bein tenging til Bandaríkjanna og aðgangur að nýjum markaðssvæðum

Erla Björg Gunnarsdóttir skrifar
Sæstrengur lagður með sérstöku kapalskipi
Sæstrengur lagður með sérstöku kapalskipi Mynd/ABB
Þriðja stærsta fjarskiptafyrirtæki Bandaríkjanna, CenturyLink, hefur samið um afnot af Emerald Express gagnaflutningsstrengnum.

Emeral Networks ráðgerir að leggja nýjan gagnaflutningsstreng milli Bandaríkjanna og Evrópu með tengingu við Ísland.

Stefnt er að því að strengurinn verði tekinn í notkun síðla árs 2014 en hann er til þess fallinn að auka öryggi fjarskiptasambanda Íslands við umheiminn og mæta eðlilegri endurnýjunarþörf núverandi sæstrengja.

Með strengnum fæst bein tenging til Bandaríkjanna og þar með beinn aðgangur að nýjum markaðssvæðum með tilheyrandi tækifærum. Strengurinn er einnig stoð fyrir gagnaver, en Ísland hefur lent aftarlega í alþjóðlegum samanburði þegar kemur að öflugum nettengingum.

„Með lagningu Emerald Express sæstrengsins til Íslands skapast samkeppni þar sem einokun hefur ríkt hingað til,“ segir í fréttatilkynningu frá Emeral Networks.

Samið hefur verið við bandaríska fyrirtækið TE SubCom um lagningu strengsins, sem áætlað er að komi í land við Grindavík. 

Íslenska fjárfestingafélagið Thule Investments sér um fjármögnun strengsins á Íslandi






Fleiri fréttir

Sjá meira


×