Getgátur um mútugreiðslu á þriðja degi réttarhalda Freyr Bjarnason skrifar 6. nóvember 2013 23:00 Halldór Bjarkar Lúðvígsson í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. fréttablaðið/gva
Halldór Bjarkar Lúðvígsson, fyrrverandi viðskiptastjóri á útlánasviði Kaupþings, sagðist fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun hafa talið að fimmtíu milljón dala lán sem Al Thani fékk í gegnum Kaupþing í Lúxemburg hafi verið eins konar mútugreiðsla fyrir að ljá nafn sitt við kaup á 5,01% hlut í Kaupþingi. Þriðji dagurinn í Al Thani-réttarhöldunum fór fram í dag. Halldór Bjarkar er eitt af lykilvitnum saksóknara. „Það var engin ábyrgð á fimmtíu milljónum dollara. Hann átti að fá peninginn til baka. Ég held að það hafi aldrei komið króna frá sjeiknum,“ sagði Halldór Bjarkar í hljóðrituðu símtali við Lilju Steinþórsdóttur, fyrrverandi innri endurskoðanda Kaupþings, sem saksóknari í málinu spilaði. Varðandi það að Al Thani hafi átt að fá hagnaðinn greiddan fyrirfram, sem saksókarinn telur að 50 milljón dala greiðslan hafi verið, sagði Halldór Bjarkar: „Það má kalla það mútur, þegar ég horfði á strúktúrinn eftir á. Þetta voru mínar getgátur en mér þótti sérkennilegt að hann fengi greitt.“ Saksóknari spurði hvort reynt hafi verið að fela þátt Ólafs Ólafssonar í málinu og sagðist Halldór telja að svo hefði verið. „Þetta voru Maggi [Magnús Guðmundsson, fyrrverandi forstjóri Kaupþings í Lúxemborg] og Hreiðar [Guðmundsson, fyrrverandi forstjóri Kaupþings] sem voru að semja allt saman.“ Saksóknari spurði Halldór Bjarkar hver hefði samþykkt að Al Thani fengi lánið. Svaraði hann því til að Hreiðar Már hefði gert það. „Hreiðar Már gaf mér þau fyrirmæli að greiða þetta út strax. Hann sagði að ég þyrfti ekki að hafa áhyggjur af samþykktum.“ Hreiðar Már er ósammála því að þetta samtal hafi átt sér stað og verjandi hans benti á að engin gögn væru til um samskipti Halldórs og Hreiðars Más. Verjandinn reyndi að rýra trúverðugleika Halldórs með því að sýna frétt frá breska blaðinu The Guardian sem birtist þegar Halldór starfaði hjá slitastjórn Kaupþings. Í greininni stóð að starf hans hjá stjórninni væri vandræðaleg vegna aðildar hans að Al Thani-málinu. Eftir rannsókn sérstaks saksóknara var Halldór ekki lengur í réttarstöðu sakbornings. Hann er núna framkvæmdastjóri Arion banka. Verjandi spurði hvort hann hefði fengið það starf ef hann hefði haft réttarstöðu sakbornings. „Mér þykir það ólíklegt,“ svaraði Halldór.- Fyrsta vitnið í morgun var Lara E. Schweiger sem starfaði sem lögmaður í Lúxemborg. Saksóknari spurði hana á hvaða forsendum 50 milljóna dala lánið sem Al Thani fékk hafði verið veitt. „Ég vissi ekki fyrst hverjar ástæður lánveitingarinnar voru. Svo var mér sagt að grundvöllurinn fyrir láninu væri fyrirframgreiðsla hagnaðar lánshæfistengds skuldabréfs,“ sagði hún. Spurð hvort hún hafi verið undrandi á þessu játaði hún því. „Vegna þess að okkur virtist ekkert vit vera í þessu.“- Vörubílstjórinn Sturla Jónsson, sem var áberandi í fjölmiðlum í kringum hrunið, gekk inn í réttarsalinn skömmu áður en skýrslutökunni yfir Halldóri Bjarkari lauk um hádegisbilið. Hann fékk sér sæti á fremsta bekk og hlýddi með athygli á það sem fram fór.- Gianni De Bortoli, fyrrverandi starfsmaður á lagasviði hjá Kaupþingi í Lúxemborg, bar vitni í gegnum síma. Dómtúlkurinn Torfi Tulinius sá til þess að allar upplýsingar kæmust til skila á milli Bortoli annars vegar og hins vegar dómara, saksóknara og verjenda.
Mest lesið Spá verulega aukinni verðbólgu vegna breytinga Viðskipti innlent „Hvers vegna þarf ég að vera bara verkfræðingur eða bara smiður?“ Atvinnulíf Ætluðu að nýta greidd sæti en fengu ekki Neytendur Úr útvarpinu í orkumálin Viðskipti innlent Skipta um forstjóra hjá Origo Viðskipti innlent Fullt af nýjum bílum hjá Toyota Samstarf Leigja frekar en að kaupa: „Ég þarf ekki að eiga allt“ Atvinnulíf Segir komið í veg fyrir að starfsmenn Vélfags fái greitt Viðskipti innlent Afsökunum fyrir að drekka ekki kaffi fer fækkandi Atvinnulíf „Algjört siðleysi“ Neytendur Fleiri fréttir Úr útvarpinu í orkumálin Spá verulega aukinni verðbólgu vegna breytinga Skipta um forstjóra hjá Origo Segir komið í veg fyrir að starfsmenn Vélfags fái greitt Úthluta rúmlega þrjátíu þúsund tonna loðnukvóta Íslendingar aldrei farið í fleiri utanlandsferðir Eldur segir Bandaríkjastjórn íhuga fjárfestingu og Amaroq tekur stökk S4S-veldið tekur við Lindex Nýr íslenskur rekstraraðili tekur við Lindex Eldur og Amaroq í sviðsljósi erlendra fjölmiðla Bíllinn þremur milljónum dýrari Lindex lokað á Íslandi Ólafur Orri Ólafsson Ólafssonar nýr forstjóri Samskipa Fjörutíu ára sögu American Style í Skipholti lokið Síðasta Heilsuhúsinu brátt lokað Auddi og Rakel hafa valið nafn og leita að starfskröftum Engin innköllun á NAN þurrmjólk á Íslandi Freyr lætur af störfum sem forstjóri Kapps Ingvar Freyr nýr hagfræðingur BHM Sonur tekur við af föður hjá Klöppum Útgáfu ViðskiptaMogga hætt og deildum fækkað Fjögurra milljarða gjaldið gæti hækkað verði ekkert úr áframhaldandi undanþágu Um fimm prósenta hækkun fasteignaverðs spáð á árinu Til í að taka á móti FDA hvenær sem er Grímur hættir hjá Bláa lóninu og Sigríður Margrét tekur við Róbert hættir sem forstjóri Alvotech 54 sagt upp í tveimur hópuppsögnum Icelandair setur nokkur met Lögmenn frá Juris til LEX Visa velur íslenskt félag í þróunarverkefni Sjá meira