Tekjuauki nemur 57 prósentum Óli Kristján Ármannsson skrifar 30. október 2013 07:00 Actavis áætlar að tekjur fyrir 2013 nemi um 8,6 milljörðum bandaríkjadala og hagnaður á hlut verði 9,26 til 9,39 dalir. Fréttablaðið/ÓKÁ
Actavis plc, móðurfélag Actavis á Íslandi, hagnaðist um 65,6 milljónir Bandaríkjadala á þriðja ársfjórðungi samkvæmt árshlutauppgjöri sem birt var í Kauphöllinni í New York í gær. Upphæðin samsvarar 7,9 milljörðum króna. Um er að ræða 14,5 prósenta samdrátt á milli ára, en fyrirtækið hagnaðist um 76,7 milljónir dala á sama tímabili í fyrra. Tekjur félagsins eru í tilkynningu sagðar hafa aukist um 57 prósent og hafi numið 2,01 milljarði dala samanborið við 1,29 milljarða á þriðja fjórðungi 2012. „Hagnaður á hlut á þriðja ársfjórðungi 2013 jókst um 55 prósent í 2,09 dali samanborið við 1,35 dali á þriðja ársfjórðungi í fyrra.” Niðurstöðurnar eru sagðar án áhrifa kaupa Actavis á Warner Chilcott fyrsta október síðastliðinn. Hagnaður án afskrifta (EBITDA) jókst um 61 prósent og nam 489,2 milljónum dala á þriðja fjórðungi samanborið við 304,6 milljónir á sama tíma 2012. Tekjur Actavis Pharma, sem er samheitalyfjasvið fyrirtækisins (þ.m.t. Medis), jukust um 69 prósent og námu 1,55 milljörðum dala á þriðja ársfjórðungi 2013. "Fjárfesting í þróun og rannsóknum samheitalyfja á alþjóðavísu nam 111,1 milljón dala. Fyrstu níu mánuði ársins setti félagið 509 vörur á samheitalyfjasviði á markað og sótti um yfir 980 markaðsleyfi um allan heim." Actavis plc. áætlar að tekjur fyrir árið 2013 nemi um 8,6 milljörðum dala og hagnaður á hlut verði á bilinu 9,26 og 9,39 dalir. "Þá er áætlað að hagnaður á hlut á árinu 2014 muni verða á bilinu 12,25 og 13,00 dalir sem væri umtalsverð aukning miðað við árið 2013."
Mest lesið Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur Viðskipti innlent Húsnæði Kjötborgar til sölu Viðskipti innlent Óvissa með nöfnin og reynt að róa uggandi starfsmenn Viðskipti innlent Verðbólga hjaðnar Viðskipti innlent Afkoma í samræmi við áætlanir hjá Símanum Viðskipti innlent Telur enn að stýrivextir verði hækkaðir Viðskipti innlent Fjárfestahagsmunir fremur en gervigreind skýri fækkun hjá Íslandsbanka Viðskipti innlent Edda Rut tekur við af Ragnari Þór eftir tuttugu ár í brúnni Viðskipti innlent Hagnaður jókst um 21 prósent á fyrsta ársfjórðungi Viðskipti innlent Lúxusbílaframleiðandi bauð íslenskum bræðrum í draumaferð til Kína Samstarf Fleiri fréttir Húsnæði Kjötborgar til sölu Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur Óvissa með nöfnin og reynt að róa uggandi starfsmenn Vara við svikapóstum um lén frá DMS Iceland Telur enn að stýrivextir verði hækkaðir Fjárfestahagsmunir fremur en gervigreind skýri fækkun hjá Íslandsbanka Edda Rut tekur við af Ragnari Þór eftir tuttugu ár í brúnni Ráða þrjá í tengslum við stofnun nýs sjóðs Verðbólga hjaðnar Afkoma í samræmi við áætlanir hjá Símanum Horfa á eftir Steingrími og spara 180 milljónir á ári Icelandair tapaði 5,6 milljörðum króna Íslandsbanki fækkar starfsmönnum um fimmtíu Hagnaður jókst um 21 prósent á fyrsta ársfjórðungi Rekstur borgarinnar neikvæður um 5,3 milljarða í fyrra Sektað vegna auglýsinga fyrir „nikótínpúðajóladagatal“ Lýsa magnesíumverksmiðju sem „andstæðu loftslagsverkfræði“ Innkalla nautahakk vegna gruns um salmonellu Færðu Finnum Jónsbók Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Vara við svikaherferð í nafni bankans Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Endurræsing hafin hjá Norðuráli B12 Space gjaldþrota Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Sjá meira