Íslensk lagasetning fær uppáskrift ESB Óli Kristján Ármannsson skrifar 25. október 2013 07:00 Á meðan allt lék í lyndi. Haustið 2008 þegar bankarnir voru að falla gripu tveir franskir fjárfestar til þess ráðs að láta kyrrsetja eigur Landsbankans þar í landi. Um þá kyrrsetningu er enn tekist fyrir hæstarétti þar. Fréttablaðið/E.Ól.
Fjárfestar í útlöndum þurfa að sæta íslenskum lögum sem sett voru vegna falls bankanna. Evrópudómstóllinn kvað upp dóm sinn um þetta í gær. Hæstiréttur í Frakklandi skaut til dómstólsins álitamáli í tengslum við mál slitastjórnar LBI (gamla Landsbankans) á hendur franska fjárfestingarfyrirtækinu Kepler Capital Markets og frönskum kröfuhafa. Málareksturinn í Frakklandi er þannig til kominn að tveir kröfuhafar LBI ytra fengu kyrrsettar eignir bankans þar í landi eftir fall bankans í október 2008. LBI höfðaði síðan mál ytra til þess að fá kyrrsetningunni hnekkt, enda ættu allir kröfuhafar að sitja við sama borð. „Eignirnar sem um ræðir nema nokkrum milljónum evra,“ segir Halldór Helgi Backman hæstaréttarlögmaður, sem sæti á í slitastjórn LBI. Með dómnum nú sjái fyrir endann á málinu og milljónirnar sem festar voru ytra gætu farið að losna. Halldór segir Evrópudómstólinn í raun hafa tekið af vafa um hvort íslensk lagasetning frá vordögum 2009 stæðist, um að efnisreglur slitameðferðar væru í meginatriðum látnar gilda um fjármálafyrirtæki sem þá voru í greiðslustöðvun.Halldór Helgi Backman„Þetta tímabundna ástand var við lýði fram að annarri lagabreytingu í nóvember 2010 sem gerði að verkum að héraðsdómur gat úrskurðað um upphaf almennrar slitameðferðar.“ Tekist hafi verið á um hvort sú ráðstöfun íslenskra stjórnvalda, að færa reglur slitameðferðar inn í greiðslustöðvun, hefði verið lögmæt. „Okkur til fagnaðar og ánægju þá fellst Evrópudómstóllinn á það sem við höfum haldið fram alveg frá upphafi, að íslenski löggjafinn hafi heimild, svo fremi sem grundvallarreglur séu virtar, til þess að breyta leikreglum greiðslustöðvunarinnar.“ Staðfest sé að á tímabilinu frá apríl 2009 til nóvember 2010 hafi verið í gildi fullkomlega lögleg greiðslustöðvun, jafnvel þó að efnisreglur slitameðferðar giltu um hana.Stefán Már StefánssonStefán Már Stefánsson, prófessor við lagadeild Háskóla Íslands, segir dóm Evrópudómstólsins fyrst og fremst staðfestingu á því að alveg rétt hafi verið staðið að innleiðingu ákvæða Evrópusambandsins um slitameðferð í íslenskri lagasetningu. „Íslensk lög fá gæðastimpil. Reynt hefur verið að halda því fram að löggjafinn hafi ákveðið upphaf slita, í staðinn fyrir að dómstóll gerði það, líkt og Evróputilskipunin kveði á um og þetta væri ólögleg aðferð,“ segir Stefán. Með þetta hafi kröfuhafar verið gerðir afturreka.
Mest lesið Gleymdi að skrá sig úr stæðinu og því rukkuð um 48 þúsund Neytendur Ójafnrétti að konur þurfi að ganga á veikindarétt vegna barneigna Viðskipti innlent Hótar Kanadamönnum hærri tollgjöldum Viðskipti erlent Völdu Noreg fram yfir Ísland þrátt fyrir að besta lausnin væri hér Viðskipti innlent Um forvitna yfirmanninn Atvinnulíf Fyrsta íslenska grænkera ostagerðin í hættu Viðskipti innlent Eiginkona stjórnarmanns keypti óvart í bankanum Viðskipti innlent Fyrirtæki í vopnaframleiðslu eru á rauðum lista Viðskipti innlent Kaffi heldur áfram að hækka í verði Neytendur Linda tekur við sem framkvæmdastjóri fjármálasviðs Alvotech Atvinnulíf Fleiri fréttir Ójafnrétti að konur þurfi að ganga á veikindarétt vegna barneigna Fyrirtæki í vopnaframleiðslu eru á rauðum lista Völdu Noreg fram yfir Ísland þrátt fyrir að besta lausnin væri hér Eiginkona stjórnarmanns keypti óvart í bankanum Raunverð íbúða hefur þrefaldast frá aldamótum Atli Óskar ráðinn rekstrarstjóri framleiðslu Engin U-beygja hjá Play Veitingamenn verulega óánægðir með eftirlitið Hindranir í vegi þess að lífeyrissjóðirnir taki þátt í hernaðaruppbyggingu Evrópu Spá umtalsverðum samdrætti í byggingu nýrra íbúða Falsaði fleiri bréf Veltir því upp hvort eigendum hafi verið refsað fyrir að tjá sig Hætta við yfirtökuna Harpa og Linda ráðnar forstöðumenn Stærsti samruninn í áraraðir á borð Samkeppniseftirlitsins Sylvía Kristín ráðin forstjóri Nova Íslenskur pítsastaður í Kína: „Það verður skrítnara og skrítnara að segja frá þessu“ Farþegum til landsins fjölgaði um tuttugu prósent Kvika hafi grætt töluvert á því að hafna upphaflegum tilboðum „Sem betur fer eru aðrir fiskar í sjónum“ Arion og Kvika í samrunaviðræður Eyþór hættur sem framkvæmdastjóri Hopp Svona munu stækkuð Skógarböð og hótel líta út Skrautleg saga laganna hans Bubba Sætta sig ekki við höfnun Kviku Hagnaðist um tæpar sjötíu milljónir króna Lofar bongóblíðu við langþráð langborð Minnstu sparisjóðirnir sameinast Spá 2,2 prósent hagvexti í ár Trausti Sigurður og Jóhanna nýir forstöðumenn hjá VÍS Sjá meira