Viðskipti innlent

Ætla að einfalda viðskiptaumhverfi til að stemma stigu við flótta

Haraldur Guðmundsson skrifar
Fulltrúar margra tækni- og hugverkafyrirtækja voru samankomnir á Startup Reykjavík í ágúst.
Fulltrúar margra tækni- og hugverkafyrirtækja voru samankomnir á Startup Reykjavík í ágúst. Fréttablaðið/GVA
„Mér finnst þetta mjög sláandi dæmi og það sýnir vel hversu vondur skattur auðlegðarskatturinn er,“ segir Ragnheiður Elín Árnadóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, spurð út í viðbrögð hennar við sögu Friðriks Skúlasonar, fyrrverandi eiganda hugbúnaðarfyrirtækisins Frisk Software.

Friðrik sagði í viðtali við Fréttablaðið á miðvikudag að auðlegðarskattur stjórnvalda væri aðalástæðan fyrir því að hann ákvað að selja fyrirtæki sitt úr landi. Þar gerði Friðrik grein fyrir því hvernig hann og eiginkona hans þurftu að selja fyrirtækið vegna þess að þau vildu ekki nota arð úr fyrirtækinu til að greiða skattinn, heldur nota hann til að byggja fyrirtækið upp.

„Mér finnst sárt að sjá á eftir svona fyrirtækjum til útlanda og því er það mikilvægt að auðlegðarskatturinn verður ekki framlengdur á næsta ári,“ segir Ragnheiður.

Salan á Frisk Software er einungis eitt af mörgum dæmum um tækni- og hugverkafyrirtæki sem hafa annaðhvort flutt höfuðstöðvar sínar til útlanda á undanförnum árum eða verið seld.

Gjaldeyrishöftin eru oft sögð vera ein aðalástæðan fyrir þeirri þróun því innan þeirra eiga þesssi fyrirtæki erfiðara með að nálgast nauðsynlegt fjármagn til að vaxa.

„Gjaldeyrishöftin eru stóra einstaka vandamálið. Fjármálaráðherra vinnur nú að því að finna leiðir til að komast undan þeim en á meðan þurfum við að aðstoða fyrirtækin við að starfa innan haftanna. Það er aftur á móti snúið viðfangsefni því við viljum ekki gera kerfið þannig að það verði svo gott að starfa innan haftanna að hvatinn til að losna við þau hverfi,“ segir Ragnheiður.

Spurð hvort ríkisstjórnin sé að vinna að öðrum leiðum til að bæta rekstrarumhverfi tækni- og hugverkafyrirtækja segir Ragnheiður að unnið sé að úrbótum á almennu viðskiptaumhverfi fyrirtækja og þá einkum lítilla og meðalstórra fyrirtækja.

„Fyrirtækin gagnrýna að regluverkið hér sé of flókið og tímafrekt. Við í mínu ráðuneyti erum markvisst að fara yfir allt regluverk sem undir okkur heyrir, með það að markmiði að einfalda það og draga úr kostnaði og tíma.“

Ragnheiður nefnir einnig breytingar á skattkerfinu sem leið í átt að bættu rekstrarumhverfi.

„Ég trúi því staðfast að einfalt skattkerfi og hóflegir skattar séu betur til þess fallnir að skila tekjum inn í ríkissjóð og tryggja efnahagslegar framfarir. Báðir stjórnarflokkarnir deila þeirri skoðun. Þó þetta séu lítil skref eru þau mikilvæg í því að snúa skipinu við.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×