Norðmenn stokka upp landbúnaðarkerfið Óli Kristján Ármannsson skrifar 11. október 2013 07:00 Erna Sólberg, formaður Hægriflokksins og Siv Jensen, formaður Framfaraflokksins, kynntu samkomulag sitt um stjórnarmyndun í Noregi 30. september síðastliðinn. Fréttablaðið/AP
Lagðar eru til gagngerar breytingar á landbúnaðarkerfi Norðmanna í nýjum stjórnarsáttmála Hægriflokksins og Framfaraflokksins. Meðal þess sem lagt er til í sáttmálanum er lækkun tolla og aukin samkeppni, afnám framleiðsluskerðinga og kvótasetningar sem hindri landnýtingu og framþróun í geiranum. „Stjórnin vill efla landbúnaðinn með því að einfalda lög, reglur og stuðning,“ segir í sáttmálanum. Um leið er tekið fram að breytingunum skuli smám saman komið á Þá skuli tengja stuðning við landbúnað í auknum mæli við framleiðslu, fremur en landrými, innan þess ramma sem alþjóðleg reglusetning heimili. „Landbúnaðurinn á að reiða sig minna á opinberan stuðning, draga á úr kostnaði í gerianum og opna bændum ný tækifæri til að afla tekna.“ Sérstaklega sé horft til þess að einfalda kerfið og draga úr skrifræði tengdu landbúnaði.Jón GunnarssonJón Gunnarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokks og formaður atvinnuveganefndar, segir ekki loku fyrir það skotið að ráðist verði í viðlíka breytingar á íslensku landbúnaðarkerfi. „Við erum auðvitað með samning sem er í gildi við Bændasamtökin, en framtíðarsýn okkar hlýtur að liggja í því að skoða með bændum alla möguleika á því með hvaða hætti við náum að efla íslenskan landbúnað.,“ segir Jón. Hann segir aukin tækifæri hafa komið upp í hefðbundnum landbúnaði hér, svo sem í tengslum við útflutning landbúnaðarvara. „Og með þeim breytingum og þróun sem er að eiga sér stað hljótum við að reyna, með íslenskum landbúnaði eða þeim sem að þar starfa, að efla hann og gera hann sjálfbærari í framtíðinni. Á því held ég að sé í raun gagnkvæmur áhugi meðal bænda og stjórnvalda.“ Í nýrri skýrslu Efnahags- og framfarastofnunarinnar (OECD) um landbúnaðarstefnu ríkja stofnunarinnar segir að þróunin hafi síðustu ár og áratugi verið í átt minni stuðnings í landbúnaði. Ljóst sé að tollamúrar og markaðshömlur einangri framleiðendur á heimamörkuðum og neytendur frá heimsmarkaði. Þröng sýn á sjálfbærni iðnaðarins innan hvers lands hafi í för með sér mikinn efnahags- og samfélagslegan kostnað.
Mest lesið Aukin skattheimta og aukin samkeppni í boði ríkisins Viðskipti innlent Uggandi yfir afstöðu VR Viðskipti innlent Nýir veitingastaðir opnaðir á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju Viðskipti innlent Stýrivextir áfram átta prósent Viðskipti innlent Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðun sína Viðskipti innlent Tölvuþrjótarnir hafi ekki komist yfir kortanúmer Viðskipti erlent Sonur Kristjáns í hans stað á hvalveiðiráðstefnu Viðskipti innlent Eru ríkisskuldabréfasjóðir öruggir? Viðskipti innlent Notendur ASOS fá tilkynningu frá meintum tölvuþrjótum Viðskipti erlent Vill að þak verði sett á álagningu olíufélaga Viðskipti innlent Fleiri fréttir Aukin skattheimta og aukin samkeppni í boði ríkisins Nýir veitingastaðir opnaðir á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju Uggandi yfir afstöðu VR Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðun sína Stýrivextir áfram átta prósent Sonur Kristjáns í hans stað á hvalveiðiráðstefnu Vill að þak verði sett á álagningu olíufélaga Eru ríkisskuldabréfasjóðir öruggir? Tæplega þrjátíu sagt upp Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Ráðinn sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Fastus Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Enn lækkar Ísland í nýsköpunarvísitölunni Boðaði til starfsmannafundar og mætti í stjórnarráðið Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Spá óbreyttum vöxtum Minnsta hlutabréfavelta frá faraldursárinu 2020 Sjá meira