Ísfélagið greiddi 1,2 milljarða króna í arð Óli Kristján Ármannsson skrifar 11. september 2013 07:00 Guðbjörg M. Matthíasdóttir, aðaleigandi Ísfélagsins, á ársfundi LÍÚ á síðasta ári. Fréttablaðið/Anton
Í nýlega birtum ársreikningi Ísfélagsins í Vestmannaeyjum kemur fram að félagið hafi hagnast um 28,3 milljónir Bandaríkjadala á síðasta rekstrarári. Í íslenskum krónum nemur hagnaðurinn rúmlega 3,4 milljörðum króna. Hagnaður félagsins dróst saman um rúm 23 prósent milli ára. Þá kemur einnig fram í reikningnum að arður til hluthafa á síðasta ári hafi numið 9,9 milljónum dala, eða sem svarar 1,2 milljörðum króna. Stærsti eigandi Ísfélagsins með 88 prósenta hlut er ÍV fjárfestingarfélag, en samkvæmt upplýsingum Creditinfo á Fram ehf. þann hlut að fullu. Fram ehf. er að 91,7 prósentum í eigu Guðbjargar M. Matthíasdóttur, sem samkvæmt því hefur í fyrra fengið tæpar 970 milljónir króna greiddar í arð. Greiddur arður á síðasta ári var heldur meiri en árið áður. Þá námu arðgreiðslur 6,9 milljónum dala, eða sem svarar tæpum 840 milljónum króna. Fram kemur í ársreikningnum að stjórn Ísfélagsins hafi einnig ætlað að leggja til við aðalfund í sumar að greiddur yrði út arður á þessu ári. Í skýrslu stjórnar Ísfélagsins er vísað til þess að samkvæmt efnahagsreikningi nemi eignir félagsins ríflega 231 milljón dala, eða sem svarar um 28 milljörðum króna. Bókfært eigið fé Ísfélagsins í lok síðasta rekstrarárs var 101,4 milljónir dala, eða 12,3 milljarðar króna og eiginfjárhlutfallið 43,9 prósent. Fram kemur að í árslok 2012 hafi 136 átt hlut í Ísfélaginu, en ÍV fjárfestingarfélag er eini hluthafinn sem á yfir tíu prósenta hlut. Áður hefur komið fram að önnur útgerðarfyrirtæki hafa skilað umtalsverðum hagnaði á síðasta rekstrarári. Síldarvinnslan í Neskaupstað hagnaðist um sjö milljarða króna og greiddi eigendum sínum tvo milljarða í arð. Samherji skilaði hagnaði upp á 16 milljarða á síðasta starfsári og HB Grandi hagnaðist um sem svarar 2,4 milljörðum króna. Alþingi samþykkti í sumar lög um lækkun veiðigjalds. Það hefur í för með sér að tekjur ríkissjóðs af veiðigjöldum fyrir aflaheimildir verða 3,2 milljörðum króna lægri á árinu 2013 en upphaflega var ráð fyrir gert í fjárlögum.
Mest lesið Eigandinn greiddi sér hundruð milljóna í arð Viðskipti innlent Hvernig bæti ég fjárhagslegt öryggi þegar ég verð eldri? Viðskipti innlent „Þennan vítahring þarf að rjúfa“ Viðskipti innlent Kappahl og Newbie opna á Íslandi Viðskipti innlent „Hvers vegna þarf ég að vera bara verkfræðingur eða bara smiður?“ Atvinnulíf Úr útvarpinu í orkumálin Viðskipti innlent Eitt besta leitarárið á norska landgrunninu Viðskipti erlent Segir komið í veg fyrir að starfsmenn Vélfags fái greitt Viðskipti innlent Skipta um forstjóra hjá Origo Viðskipti innlent Spá verulega aukinni verðbólgu vegna breytinga Viðskipti innlent Fleiri fréttir „Þennan vítahring þarf að rjúfa“ Of mikið A-vítamín í barnavítamíninu Veitti Vélfagi leyfi til að greiða laun Leggja til að Heiðar verði stjórnarformaður Íslandsbanka Skrá Styrkás í Kauphöllina á næsta ári Eigandinn greiddi sér hundruð milljóna í arð Leita að nafni á farþegamiðstöð fyrir skemmtiferðaskip Kappahl og Newbie opna á Íslandi Verðbólguaukning vegna vörugjalda: „Þetta er nú nokkuð meira en við gerðum ráð fyrir“ Vélfagsmálið beint í Hæstarétt Hulda til Basalt arkitekta Hvernig bæti ég fjárhagslegt öryggi þegar ég verð eldri? Úr útvarpinu í orkumálin Spá verulega aukinni verðbólgu vegna breytinga Skipta um forstjóra hjá Origo Segir komið í veg fyrir að starfsmenn Vélfags fái greitt Úthluta rúmlega þrjátíu þúsund tonna loðnukvóta Íslendingar aldrei farið í fleiri utanlandsferðir Eldur segir Bandaríkjastjórn íhuga fjárfestingu og Amaroq tekur stökk S4S-veldið tekur við Lindex Nýr íslenskur rekstraraðili tekur við Lindex Eldur og Amaroq í sviðsljósi erlendra fjölmiðla Bíllinn þremur milljónum dýrari Lindex lokað á Íslandi Ólafur Orri Ólafsson Ólafssonar nýr forstjóri Samskipa Fjörutíu ára sögu American Style í Skipholti lokið Síðasta Heilsuhúsinu brátt lokað Auddi og Rakel hafa valið nafn og leita að starfskröftum Engin innköllun á NAN þurrmjólk á Íslandi Freyr lætur af störfum sem forstjóri Kapps Sjá meira