Ernst & Young á First North Óli Kristján Ármannsson skrifar 9. september 2013 11:42 Kauphöllin, eða Nasdaq OMX Iceland, eins og hún nefnist fullu nafni. Fréttablaðið/Stefán
Endurskoðunar- og ráðgjafarfyrirtækið Ernst & Young ehf. á Íslandi hefur fengið leyfi til að starfa sem viðurkenndur ráðgjafi á First North Iceland markaðstorginu sem rekið er af OMX kauphöllunum á Norðurlöndum. „Með þessu er Ernst & Young orðið fullgildur ráðgjafi fyrirtækja við skráningu verðbréfa á hlutabréfa- og skuldabréfamarkað First North Iceland og á meðan viðskipti eru með verðbréf viðkomandi fyrirtækja á markaðnum,“ segir í tilkynningu Kauphallarinnar. Haft er eftir Kristínu Rafnar, forstöðumanni skráningarsviðs NASDAQ OMX Iceland, að First North markaðurinn hafi alla burði til að vera blómlegur markaður sem styðji við fyrirtæki í vexti. Þá er haft eftir Guðjóni Norðfjörð, sviðsstjóra viðskiptaráðgjafar hjá Ernst & Young, að fyrirtækið sé stolt af því að vera orðin viðurkenndur ráðgjafi á First North markaðnum. „Við byggjum á breiðum og reynslumiklum hópi sérfræðinga við ráðgjöf og þjónustu til fyrirtækja og þetta er enn eitt skrefið hjá okkur að bæta og efla þjónustu við viðskiptavini okkar. Það verður spennandi að taka þátt í að efla First North markaðinn á Íslandi,“ er eftir honum haft. Hlutverk viðurkennds ráðgjafa er einkum sagt felast í að vera félögum til halds og trausts þegar skráningarferli standi yfir og vera ráðgjafi og milliliður í samskiptum við markaðinn meðan verðbréf félags eru í viðskiptum. „Það er á ábyrgð viðurkennds ráðgjafa að fylgjast með því að félög uppfylli ávallt þær aðgangskröfur og upplýsingaskyldur sem gilda á First North Iceland,“ segir í tilkynningu Kauphallarinnar. Um fyrirtæki á First North gilda ekki jafnýtarlegar reglur og fyrirtæki á aðallista Kauphallarinnar og kunna því fjárfestingar í þeim flokki að vera áhættusamari en á aðallistanum.
Mest lesið Ætla að opna verslunarkjarna á Korputúni Viðskipti innlent Gjaldskrá Strætó hækkuð á ný Neytendur Eru greiðsludreifingar virkilega jafn hentugar og allir segja? Viðskipti innlent Allt að 35% ódýrari leigubílaferðir með Hopp Samstarf Innkalla vegna „óöruggs kjöts“ Neytendur Out of Office póstarnir: Þeir bestu og þeir glötuðustu Atvinnulíf Vekja athygli á innköllun leikfangs Neytendur Atvinnulausum verkamönnum fjölgar um fjörutíu prósent Viðskipti innlent Upptaka evru myndi ekki einungis hafa áhrif á vexti Viðskipti innlent Tækifæri fylgi flugi frá Kína en einnig hættur Viðskipti innlent Fleiri fréttir Ætla að opna verslunarkjarna á Korputúni Eru greiðsludreifingar virkilega jafn hentugar og allir segja? Höfðar til ábyrgðar olíufélaga og segir verðið nú þegar óeðlilegt Atvinnulausum verkamönnum fjölgar um fjörutíu prósent Tækifæri fylgi flugi frá Kína en einnig hættur Upptaka evru myndi ekki einungis hafa áhrif á vexti Opna fjórðu SPAR-verslunina á morgun Rammagerðin leitar nauðasamninga Sameinaður sjóður ætti rúma þúsund milljarða Bláa lónið eykur hlut sinn í þremur baðlónum Dóra Björt ráðin deildarstjóri Hækkun á heilsugæslu auki verðbólgu í ágúst Tvær stöndugar fasteignasölur sameinast Plantan kveður Norræna húsið: „Dæmið er ekki alveg að ganga upp“ Nýr kokteilbar opnaður á Hverfisgötu: „Okkur langaði bara að opna dyrnar sem fyrst“ Kristinn V. Jóhannsson er látinn Hugrún nýr markaðsstjóri Defend Iceland Kaupa allt hlutafé í Nicetravel Fluttu eitt prósent færri farþega en í júní á síðasta ári Fá AA- í einkunn Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Loka Te og kaffi á Suðurlandsbraut Eitt app fyrir ferðamenn til að skemmta sér og forðast hættur Of snemmt að draga fram heykvíslar Alvarlegt að forstjóri Samkeppniseftirlitsins taki undir með ASÍ og FÍB Fríverslunarsamningur EFTA og Víetnam í höfn Hægt að ráðstafa séreign í október frá og með 1. janúar Samkeppniseftirlitið hugsi yfir verðbreytingum olíufélaganna Sjá meira