Maórar draga lærdóm af reynslu Íslendinga Óli Kristján Ármannsson skrifar 4. september 2013 11:00 Hér má sjá hátíðarsýningu maóra fyrir siglingakeppni árið 2007. Maórar eru stórtækir í Nýsjálenskum sjávarútvegi og áhugasamir um hvernig Íslendingar nýta aukaafurðir á boðr við hausa, bein, roð og innyfli. Nordicphotos/AFP
Maórar á Nýja Sjálandi leitast við að draga lærdóm af reynslu Íslendinga við stjórn sjávarútvegs og vinnslu sjávarafurða. Te Putea Whakatupu sjóðurinn bauð Ögmundi Knútssyni, forseta viðskipta- og raunvísindasviðs Háskólans á Akureyri, til Waitangi á Nýja Sjálands, þar sem hann flutti fyrirlestur á ráðstefnu í gærmorgun. Að sögn Ögmundar hefur Háskólinn á Akureyri átt í samstarfi við háskólann í Auckland á Nýja Sjálandi. „Þeir hafa komið upp til okkar þrisvar sinnum. Og síðasta vor kom hópur frá maóra-samfélaginu, sem á 40 prósent af kvóta Nýsjálendinga, að skoða íslenskan sjávarútveg,“ segir hann. Vandamál maóra virðist hins vegar svipuð og takast hafi þurft á við á Íslandi á milli áranna 1990 og 2000. „Það var ekki nógu mikil verðmætasköpun og menn voru fastir í lágverðs- og iðanaðarvörum.“ Í erindi sínu fór Ögmundur yfir þróunina í íslenskum sjávarútvegi frá því um 1990 og til dagsins í dag.Ögmundur Knútsson„Frá því að vera veiða- og framleiðsludrifinn sjávarútvegur yfir í að vera markaðsdrifinn sjávarútvegur og hvað það hefur þýtt fyrir okkur í aukinni verðmætasköpun, hvort sem það er í ferskum flökum eða aukaafurðum.“ Ögmundur segir aðstæður sjávarútvegs um margt svipaðar á Nýja Sjálandi og hér. Kvótakerfið sé byggt á sömu fyrirmynd og markaðir í Ástralíu séu í tveggja til tveggja og hálfs tíma fjarlægð með flugi, ekki ósvipað og Bretlandsmarkaður hér. „Þetta eru önnur nöfn og aðrar tegundir, en umhverfið er raunverulega mjög svipað.“ Í dag fer Ögmundur til Auckland þar sem hann ræðir við háskólamenn næstu þrjá daga, áður en leiðin liggur til Malasíu þar sem hann heldur erindi. Hann er svo boðinn aftur til Nýja Sjálands í desember. „Það er gaman að horfa til þess að útlendingar koma heim og hrífast af því sem við gerum og hversu mikil verðmæti okkur tekst að skapa úr sjávarafurðum.“ Á fréttavef Waatea news á Nýja Sjálandi er greint frá heimsókn Ögmundar. Þar er haft eftir Richard Jefferies, formanni Te Putea Whakatupu sjóðsins, að heilmikinn lærdóm megi draga af reynslu Íslendinga, bæði í umgengni við auðlyndina og uppbyggingu þekkingarklasa í rannsóknum og þróun. Á ráðstefnunni í Waitangi komu einnig fulltrúar sjávarútvegsfyrirtækja frumbyggja í Kanada og Alaska, auk Maóra.
Mest lesið Eru greiðsludreifingar virkilega jafn hentugar og allir segja? Viðskipti innlent Ætla að opna verslunarkjarna á Korputúni Viðskipti innlent Gjaldskrá Strætó hækkuð á ný Neytendur Out of Office póstarnir: Þeir bestu og þeir glötuðustu Atvinnulíf Vekja athygli á innköllun leikfangs Neytendur Allt að 35% ódýrari leigubílaferðir með Hopp Samstarf Atvinnulausum verkamönnum fjölgar um fjörutíu prósent Viðskipti innlent Upptaka evru myndi ekki einungis hafa áhrif á vexti Viðskipti innlent Innkalla vegna „óöruggs kjöts“ Neytendur Tækifæri fylgi flugi frá Kína en einnig hættur Viðskipti innlent Fleiri fréttir Ætla að opna verslunarkjarna á Korputúni Eru greiðsludreifingar virkilega jafn hentugar og allir segja? Höfðar til ábyrgðar olíufélaga og segir verðið nú þegar óeðlilegt Atvinnulausum verkamönnum fjölgar um fjörutíu prósent Tækifæri fylgi flugi frá Kína en einnig hættur Upptaka evru myndi ekki einungis hafa áhrif á vexti Opna fjórðu SPAR-verslunina á morgun Rammagerðin leitar nauðasamninga Sameinaður sjóður ætti rúma þúsund milljarða Bláa lónið eykur hlut sinn í þremur baðlónum Dóra Björt ráðin deildarstjóri Hækkun á heilsugæslu auki verðbólgu í ágúst Tvær stöndugar fasteignasölur sameinast Plantan kveður Norræna húsið: „Dæmið er ekki alveg að ganga upp“ Nýr kokteilbar opnaður á Hverfisgötu: „Okkur langaði bara að opna dyrnar sem fyrst“ Kristinn V. Jóhannsson er látinn Hugrún nýr markaðsstjóri Defend Iceland Kaupa allt hlutafé í Nicetravel Fluttu eitt prósent færri farþega en í júní á síðasta ári Fá AA- í einkunn Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Loka Te og kaffi á Suðurlandsbraut Eitt app fyrir ferðamenn til að skemmta sér og forðast hættur Of snemmt að draga fram heykvíslar Alvarlegt að forstjóri Samkeppniseftirlitsins taki undir með ASÍ og FÍB Fríverslunarsamningur EFTA og Víetnam í höfn Hægt að ráðstafa séreign í október frá og með 1. janúar Samkeppniseftirlitið hugsi yfir verðbreytingum olíufélaganna Sjá meira