Eyrir tapar á fyrri helmingi árs Óli Kristján Ármannsson skrifar 2. september 2013 15:38 Árni Oddur Þórðarson
Allnokkur viðsnúningur er í hálfsársuppgjöri fjárfestingarfélagsins Eyris Invest á milli ára. Tap félagsins fyrst sex mánuði ársins nemur 25,4 milljónum evra (um fjórum milljörðum króna), miðað við 18,3 milljóna evra (2,9 milljarða króna) hagnað á fyrri helmingi 2012. Fram kemur í tilkynningu félagsins til Kauphallar að heildareignir félagsins nemi 355 milljónum evra, eða 56,3 milljörðum króna. Eigið fé er sagt um 162 milljónir evra (25,7 milljarðar króna) og eiginfjárhlutfallið 46 prósent. Kjarnaeignir Eyris Invest eru 29 prósenta hlutur í Marel 17 prósenta hlutur í Stork TS og Fokker í Hollandi. Að auki fjárfestir Eyrir í sprotafyrirtækjum í gegn um dótturfélag sitt, Eyrir Sprotar. Haft er eftir Árna Oddi Þórðarsyni, forstjóra Eyris Invest, að þótt niðurstaðan fyrstu sex mánuði ársins séu óviðunandi þá trúi félagið á að virðisauki fáist úr eignasafninu á næstu tveimur til þremur árum. „Kjarnaeignir okkar eru allar í iðnaði þar sem er vöxtur og samkeppnisstaða þeirra er góð,“ er eftir honum haft. Afkomutölur Eyris litast af lækkuðu bókfærðu virði Stork TS, en breytingin er gerð vegna slaks rekstrar Stork á fyrsta ársfjórðungi.
Mest lesið Ætla að opna verslunarkjarna á Korputúni Viðskipti innlent Gjaldskrá Strætó hækkuð á ný Neytendur Allt að 35% ódýrari leigubílaferðir með Hopp Samstarf Eru greiðsludreifingar virkilega jafn hentugar og allir segja? Viðskipti innlent Out of Office póstarnir: Þeir bestu og þeir glötuðustu Atvinnulíf Vekja athygli á innköllun leikfangs Neytendur Innkalla vegna „óöruggs kjöts“ Neytendur Atvinnulausum verkamönnum fjölgar um fjörutíu prósent Viðskipti innlent Upptaka evru myndi ekki einungis hafa áhrif á vexti Viðskipti innlent Ný gervigreindarlausn opnar fyrir sólarhringsþjónustu 1819 Viðskipti innlent Fleiri fréttir Ætla að opna verslunarkjarna á Korputúni Eru greiðsludreifingar virkilega jafn hentugar og allir segja? Höfðar til ábyrgðar olíufélaga og segir verðið nú þegar óeðlilegt Atvinnulausum verkamönnum fjölgar um fjörutíu prósent Tækifæri fylgi flugi frá Kína en einnig hættur Upptaka evru myndi ekki einungis hafa áhrif á vexti Opna fjórðu SPAR-verslunina á morgun Rammagerðin leitar nauðasamninga Sameinaður sjóður ætti rúma þúsund milljarða Bláa lónið eykur hlut sinn í þremur baðlónum Dóra Björt ráðin deildarstjóri Hækkun á heilsugæslu auki verðbólgu í ágúst Tvær stöndugar fasteignasölur sameinast Plantan kveður Norræna húsið: „Dæmið er ekki alveg að ganga upp“ Nýr kokteilbar opnaður á Hverfisgötu: „Okkur langaði bara að opna dyrnar sem fyrst“ Kristinn V. Jóhannsson er látinn Hugrún nýr markaðsstjóri Defend Iceland Kaupa allt hlutafé í Nicetravel Fluttu eitt prósent færri farþega en í júní á síðasta ári Fá AA- í einkunn Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Loka Te og kaffi á Suðurlandsbraut Eitt app fyrir ferðamenn til að skemmta sér og forðast hættur Of snemmt að draga fram heykvíslar Alvarlegt að forstjóri Samkeppniseftirlitsins taki undir með ASÍ og FÍB Fríverslunarsamningur EFTA og Víetnam í höfn Hægt að ráðstafa séreign í október frá og með 1. janúar Samkeppniseftirlitið hugsi yfir verðbreytingum olíufélaganna Sjá meira