Veltan eykst í Kauphöllinni Óli Kristján Ármannsson skrifar 2. september 2013 16:23 Í ágústlok nam virði skráðra félaga 489 milljörðum króna, 165 milljörðum meira en í ágúst í fyrra. Fréttablaðið/Stefán
Viðskipti með hlutabréf í Kauphöll Íslands (Nasdaq OMX Iceland) í ágúst námu 18.818 milljónum króna eða um 896 milljónum á dag. Fram kemur í tilkynningu Kauphallarinnar að aukningin nemi 70 prósentum á milli mánaða, en í júli nam dagveltan 527 milljónum króna. Aukningin er hins vegar 348 prósent á milli ára. Í ágúst í fyrra var hlutabréfavelta í Kauphöllinni um 200 milljónir króna á dag. Mest voru viðskipti með hlutabréf Icelandair Group 5.936 milljónir, Vátryggingafélags Íslands 3.568 milljónir, Marel 2.456 milljónir og Tryggingamiðstöðvarinnar 2.370 milljónir. „Úrvalsvísitalan (OMXI6) lækkaði um 1,98 prósent milli mánaða og stendur nú í 1.157 stigum,“ segir í tilkynningu Kauphallarinnar. Þá kemur fram að á aðalmarkaði Kauphallarinnar hafi Íslandsbanki með mestu hlutdeildina í ágúst 27,7 prósent. Þar á eftir koma Landsbankinn með 19,4 prósenta hlutdeild og og MP Banki með 18,2 prósent. Viðskipti með skuldabréf í ágúst námu 83 milljörðum króna, sem samsvarar 3,9 milljarða veltu á dag. „Þetta er 66 prósenta lækkun á milli ára, samanborið við 11,5 milljarða veltu á dag í ágúst 2012, og 8 prósent lækkun frá fyrri mánuði (viðskipti í júlí námu 4,3 milljörðum á dag).“ Í lok ágúst voru hlutabréf 17 félaga skráð á Aðalmarkað Kauphallarinnar og First North Iceland. Heildarmarkaðsvirði þeirra var 489 milljarðar króna, samanborði við 324 milljarða króna virði skráðra félaga í ágúst 2012. Frekari upplýsingar er að finna á vef Kauphallarinnar.
Mest lesið Ætla að opna verslunarkjarna á Korputúni Viðskipti innlent Eru greiðsludreifingar virkilega jafn hentugar og allir segja? Viðskipti innlent Gjaldskrá Strætó hækkuð á ný Neytendur Allt að 35% ódýrari leigubílaferðir með Hopp Samstarf Sif Jakobs: „Ekta demantar eru nú einfaldlega ræktaðir“ Atvinnulíf Vekja athygli á innköllun leikfangs Neytendur Out of Office póstarnir: Þeir bestu og þeir glötuðustu Atvinnulíf Tækifæri fylgi flugi frá Kína en einnig hættur Viðskipti innlent Upptaka evru myndi ekki einungis hafa áhrif á vexti Viðskipti innlent Lite-æðið hafi Íslendinga að fíflum Neytendur Fleiri fréttir Ætla að opna verslunarkjarna á Korputúni Eru greiðsludreifingar virkilega jafn hentugar og allir segja? Höfðar til ábyrgðar olíufélaga og segir verðið nú þegar óeðlilegt Atvinnulausum verkamönnum fjölgar um fjörutíu prósent Tækifæri fylgi flugi frá Kína en einnig hættur Upptaka evru myndi ekki einungis hafa áhrif á vexti Opna fjórðu SPAR-verslunina á morgun Rammagerðin leitar nauðasamninga Sameinaður sjóður ætti rúma þúsund milljarða Bláa lónið eykur hlut sinn í þremur baðlónum Dóra Björt ráðin deildarstjóri Hækkun á heilsugæslu auki verðbólgu í ágúst Tvær stöndugar fasteignasölur sameinast Plantan kveður Norræna húsið: „Dæmið er ekki alveg að ganga upp“ Nýr kokteilbar opnaður á Hverfisgötu: „Okkur langaði bara að opna dyrnar sem fyrst“ Kristinn V. Jóhannsson er látinn Hugrún nýr markaðsstjóri Defend Iceland Kaupa allt hlutafé í Nicetravel Fluttu eitt prósent færri farþega en í júní á síðasta ári Fá AA- í einkunn Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Loka Te og kaffi á Suðurlandsbraut Eitt app fyrir ferðamenn til að skemmta sér og forðast hættur Of snemmt að draga fram heykvíslar Alvarlegt að forstjóri Samkeppniseftirlitsins taki undir með ASÍ og FÍB Fríverslunarsamningur EFTA og Víetnam í höfn Hægt að ráðstafa séreign í október frá og með 1. janúar Samkeppniseftirlitið hugsi yfir verðbreytingum olíufélaganna Sjá meira