Viðskipti innlent

Telja verðbólgu aukast í 4,3%

Óli Kristján Ármannsson skrifar
Greiningardeild Íslandsbanka gerir ráð fyrir að verð á matvöru hafi hækkað síðsumars.
Greiningardeild Íslandsbanka gerir ráð fyrir að verð á matvöru hafi hækkað síðsumars. Fréttablaðið/Hrönn
Tólf mánaða verðbólga fer í 4,3 prósent í mánuðinum gangi eftir ný spá Greiningar Íslandsbanka. Hækkunin nemur 0,3 prósentum frá fyrra mánuði, þegar verðbólga mældis 3,8 prósent.

Bent er á í umfjöllun greiningar að verðbólga hafi þá ekki verið meiri síðan í febrúar síðastliðnum, gangi spáin eftir. Það kemur í ljós 28. ágúst þegar Hagstofan birtir mælingu sína á vísitölu neysluverðs.

Helsta ástæðan fyrir aukinni verðbólgu telur greiningardeidlin vera útsölulok, en þær setji jafnan mark sitt á mælingu á verðbólgu í ágúst. Spáð er tæplega sex prósenta hækkun á verði á fötum og skóm, auk þess sem gert er ráð fyrir að matvara hafi hækkað í verði, ekki síst fiskur og ýmsar landbúnaðarafurðir.

Greining Íslandsbanka segir jafnframt að verðbólguhorfur fyrir seinni hluta ársins hafi versnað lítillega. „Við gerum ráð fyrir að verðbólga verði um og yfir fjórum prósentum út árið. Við spáum 0,5 prósenta hækkun vísitölu neysluverðs í september,“ segir í umfjölluninni.

Helstu áhrifaþættir í þeim mánuði eru sagðir vera áframhaldandi útsölulok, hækkun húsnæðisliðar og árviss hækkun skólagjalda og verðs á ýmiskonar tómstundum og afþreyingu þar sem nýtt starfsár hefjist á haustin.

Í október er svo gert ráð fyrir 0,4 prósent hækkun verðbólguvísitölunni vegna árstíðarbundinnar hækkunar á vetrarvörum, árstíðarhækkun flugfargjalda og húsnæðisverðs. „Spáum við því að verðbólga mælist 4,0 prósent í lok 3. ársfjórðungs og 4,4 prósent í árslok.“

Síðan gerir Greining Íslandsbanka ráð fyrir því að verðbólguþrýstingur verði áfram talsverður.

„Kjarasamningar eru lausir í nóvemberlok, og er líklegt að samið verði til skamms tíma. Samningarnir munu væntanlega taka mið af verðbólgunni um það leyti sem þeir eru gerðir og teljum við líklegt að fast verði sótt að ná fram einhverri kaupmáttaraukningu. Innlendur kostnaðarþrýstingur á vöru- og þjónustuverð mun því verða til staðar næstu misserin.“

Þá er gert ráð fyrir að íbúðaverð haldi áfram að hækka þótt lát virðist vera á um þessar mundir.

„Síðast en ekki síst mun krónan áfram leika lykilhlutverk í verðlagsþróun hér á landi, en þar teljum við að undirliggjandi leitni í átt til nokkurrar veikingar verði til staðar næstu ár.“

Spá Greiningar gerir ráð fyrir 3,9 prósenta verðbólgu að jafnaði á næsta ári og að verðbólgan mælist 4,1 prósent í desember 2014.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×