Síldveiðiskip skemma ítrekað bláskeljarækt Lovísa Eiríksdóttir skrifar 22. júlí 2013 06:00 Síldveiðiskip soga upp bláskeljar við veiðar sínar sem veldur bláskeljabónda miklu tjóni.
Grunur leikur á að stórir síldveiðibátar leggi á mið þar sem bláskeljaræktun fer fram með þeim afleiðingum að ræktunin eyðileggst. Símon Már Sturluson, eigandi fyrirtækisins Íslensk bláskel og sjávargróður ehf. í Stykkishólmi, fullyrðir að síldveiðibátarnir hafi valdið tugmilljóna tjóni. „Þeir sigla inn á svæði sem okkur hefur verið úthlutað og kasta yfir burðarlínuna sem heldur skelinni fastri. Þannig rífa þeir bláskelina af línunum og hún fellur til botns og týnist. Ég er búinn að leita og leita að þeim. Krossfiskarnir eru líklega búnir að éta þær. Bátarnir eyðilögðu 30 tonna ræktun í fyrrahaust sem hefur valdið um 40 milljón króna tjóni fyrir okkur,“ segir Símon og bendir á að þetta sé í þriðja skipti sem bátarnir soga upp skelina. „Þetta er svakalegt áfall fyrir okkur og með ólíkindum hvernig þessir skipstjórar haga sér,“ bætir Símon við. Þó svo að Símoni hafi verið úthlutað svæði til ræktunar á bláskel stendur hvergi í lögum að öðrum skipum sé bannaður aðgangur að svæðinu. Hins vegar gerast skipstjórar brotlegir ef skipin valda tjóni. Símon segir að málið sé í rannsókn hjá lögreglu, en ekki sé búið að yfirheyra skipstjóra síldarbátanna. „Þeir gefa sér bara ekki tíma til að koma í yfirheyrslur og komast upp með það. Ég sá þá sigla yfir miðinn og það ætti að vera nóg,“ segir Símon og bætir við að hann sé búinn að fá það staðfest hjá Landhelgisgæslunni. Kristján Berg, eigandi fiskbúðarinnar Fiskikóngurinn, segir að hann sakni þess að geta boðið viðskiptavinum upp á skelina. „Við erum algjörlega uppiskroppa með bláskel í búðinni vegna þessa tjóns,“ segir Kristján. Símon hefur þurft að segja upp fimm starfsmönnum vegna tjónsins, þar sem fyrirtækið hefur engar skeljar til vinnslu lengur.
Mest lesið Ætla að opna verslunarkjarna á Korputúni Viðskipti innlent Úrvalsdekk hönnuð fyrir Tesla og hátækni rafbíla nú fáanleg á Íslandi Samstarf Eru greiðsludreifingar virkilega jafn hentugar og allir segja? Viðskipti innlent Gjaldskrá Strætó hækkuð á ný Neytendur Allt að 35% ódýrari leigubílaferðir með Hopp Samstarf Upptaka evru myndi ekki einungis hafa áhrif á vexti Viðskipti innlent Out of Office póstarnir: Þeir bestu og þeir glötuðustu Atvinnulíf Lite-æðið hafi Íslendinga að fíflum Neytendur Vekja athygli á innköllun leikfangs Neytendur Tækifæri fylgi flugi frá Kína en einnig hættur Viðskipti innlent Fleiri fréttir Ætla að opna verslunarkjarna á Korputúni Eru greiðsludreifingar virkilega jafn hentugar og allir segja? Höfðar til ábyrgðar olíufélaga og segir verðið nú þegar óeðlilegt Atvinnulausum verkamönnum fjölgar um fjörutíu prósent Tækifæri fylgi flugi frá Kína en einnig hættur Upptaka evru myndi ekki einungis hafa áhrif á vexti Opna fjórðu SPAR-verslunina á morgun Rammagerðin leitar nauðasamninga Sameinaður sjóður ætti rúma þúsund milljarða Bláa lónið eykur hlut sinn í þremur baðlónum Dóra Björt ráðin deildarstjóri Hækkun á heilsugæslu auki verðbólgu í ágúst Tvær stöndugar fasteignasölur sameinast Plantan kveður Norræna húsið: „Dæmið er ekki alveg að ganga upp“ Nýr kokteilbar opnaður á Hverfisgötu: „Okkur langaði bara að opna dyrnar sem fyrst“ Kristinn V. Jóhannsson er látinn Hugrún nýr markaðsstjóri Defend Iceland Kaupa allt hlutafé í Nicetravel Fluttu eitt prósent færri farþega en í júní á síðasta ári Fá AA- í einkunn Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Loka Te og kaffi á Suðurlandsbraut Eitt app fyrir ferðamenn til að skemmta sér og forðast hættur Of snemmt að draga fram heykvíslar Alvarlegt að forstjóri Samkeppniseftirlitsins taki undir með ASÍ og FÍB Fríverslunarsamningur EFTA og Víetnam í höfn Hægt að ráðstafa séreign í október frá og með 1. janúar Samkeppniseftirlitið hugsi yfir verðbreytingum olíufélaganna Sjá meira