Tölvupósturinn var dýrkeyptur Jóhannes Stefánsson skrifar 20. júlí 2013 07:00 Senda þarf bréf til að lýsa kröfum.
Þýski fjárfestingasjóðurinn Hansa Spezial tapaði í gær máli fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur gegn þrotabúi Kaupþings banka hf. Málið snerist um hvort kröfu sem nam sex milljónum evra, jafnvirði tæplega milljarðs íslenskra króna, hefði verið rétt lýst í þrotabúið og þar með hvort eitthvað fengist greitt upp í kröfuna. Málsatvik voru þau að slitastjórn Kaupþings hf. gaf út innköllun til kröfuhafa þann 30. júní 2009. Kröfulýsing hafði ekki borist þann 29. desember og starfsmaður slitastjórnar sendi kröfuhafanum Hansa Spezial áminningu þess efnis í tölvupósti og benti á að einungis yrði litið á frumrit kröfulýsingar sem bærist bréflega sem fullnægjandi kröfulýsingu. Þá benti starfsmaðurinn Hansa Spezial á að leysa mætti málið með því að ráða íslenskan lögmann til að útbúa kröfulýsinguna hið snarasta. Kröfuhafinn fór hins vegar ekki að þessum leiðbeiningum heldur sendi tölvupóst og fór þess á leit að krafan yrði tekin til greina. Bréf þess efnis barst svo slitastjórninni þann 4. janúar 2010, fjórum dögum eftir að kröfulýsingarfrestur rann út. Í niðurstöðu dómsins segir að samkvæmt lögum þurfi kröfulýsing að vera skrifleg og það eigi sér styrka stoð í réttarframkvæmd og sé engum vafa undirorpið. Kröfulýsing með tölvupósti sé því ekki gild og kröfu Hansa Spezial hafnað. Ekki náðist í lögmann Hansa Spezial við vinnslu fréttarinnar.
Mest lesið Ætla að opna verslunarkjarna á Korputúni Viðskipti innlent Úrvalsdekk hönnuð fyrir Tesla og hátækni rafbíla nú fáanleg á Íslandi Samstarf Eru greiðsludreifingar virkilega jafn hentugar og allir segja? Viðskipti innlent Gjaldskrá Strætó hækkuð á ný Neytendur Allt að 35% ódýrari leigubílaferðir með Hopp Samstarf Upptaka evru myndi ekki einungis hafa áhrif á vexti Viðskipti innlent Out of Office póstarnir: Þeir bestu og þeir glötuðustu Atvinnulíf Lite-æðið hafi Íslendinga að fíflum Neytendur Vekja athygli á innköllun leikfangs Neytendur Tækifæri fylgi flugi frá Kína en einnig hættur Viðskipti innlent Fleiri fréttir Ætla að opna verslunarkjarna á Korputúni Eru greiðsludreifingar virkilega jafn hentugar og allir segja? Höfðar til ábyrgðar olíufélaga og segir verðið nú þegar óeðlilegt Atvinnulausum verkamönnum fjölgar um fjörutíu prósent Tækifæri fylgi flugi frá Kína en einnig hættur Upptaka evru myndi ekki einungis hafa áhrif á vexti Opna fjórðu SPAR-verslunina á morgun Rammagerðin leitar nauðasamninga Sameinaður sjóður ætti rúma þúsund milljarða Bláa lónið eykur hlut sinn í þremur baðlónum Dóra Björt ráðin deildarstjóri Hækkun á heilsugæslu auki verðbólgu í ágúst Tvær stöndugar fasteignasölur sameinast Plantan kveður Norræna húsið: „Dæmið er ekki alveg að ganga upp“ Nýr kokteilbar opnaður á Hverfisgötu: „Okkur langaði bara að opna dyrnar sem fyrst“ Kristinn V. Jóhannsson er látinn Hugrún nýr markaðsstjóri Defend Iceland Kaupa allt hlutafé í Nicetravel Fluttu eitt prósent færri farþega en í júní á síðasta ári Fá AA- í einkunn Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Loka Te og kaffi á Suðurlandsbraut Eitt app fyrir ferðamenn til að skemmta sér og forðast hættur Of snemmt að draga fram heykvíslar Alvarlegt að forstjóri Samkeppniseftirlitsins taki undir með ASÍ og FÍB Fríverslunarsamningur EFTA og Víetnam í höfn Hægt að ráðstafa séreign í október frá og með 1. janúar Samkeppniseftirlitið hugsi yfir verðbreytingum olíufélaganna Sjá meira