Kristmann í Skírni Örn Ólafsson skrifar 26. júní 2013 06:00 Gunnþórunn Guðmundsdóttir ævisögusérfræðingur skrifaði grein um Kristmann Guðmundsson í hausthefti Skírnis 2012 og rekur þar m.a. tal Kristmanns um samsæri gegn sér, gróusögur og hvernig gert sé lítið úr honum sem rithöfundi. Þetta afgreiðir hún sem vænisýki. En hér vantar alveg að líta út fyrir sjálfsævisögu Kristmanns og kanna hvort þessar hugmyndir hans um ofsóknir eigi sér einhverja stoð í umhverfinu. Nú er ég töluvert eldri en Gunnþórunn en ég man greinilega þessar gróusögur um Kristmann, sem altalaðar voru. Ég hefi skrifað lítillega um þær áður, og undarlegt er að sjá af hvaða tagi þær voru. Þær snerust fyrst og fremst um kynlíf! Kristmann átti að hafa bitið geirvörtu af konu sinni í algleymi samfara, og var þetta sagt um ýmsar af eiginkonum hans, hverja eftir aðra. Í annan stað átti hann að vera náriðill. Kristmann vék sjálfur að þessum sögum, þeirri fyrrtöldu í sjálfsævisögu sinni, en að þeirri síðartöldu í sjónvarpsviðtali við Steinar J. Lúðvíksson. Og eins og ég benti á (í TMM 2000), þá lýsa þessar sögur best upphafsmönnum sínum. Kristmann hafði verið örsnauður atvinnuleysingi á götum Reykjavíkur en með aðstoð Þorsteins Gíslasonar ritstjóra komst hann til Noregs, og fékk verkamannavinnu þar um miðjan 3. áratuginn. Og fór að skrifa. Með aðstoð Gyldendalsforlagsins varð hann smám saman metsölurithöfundur þegar um 1930, þýddur á fjölmörg tungumál. Bækur hans seldust í milljónum eintaka, hann varð auðugur. Þá þekki ég landa mína illa hafi þetta ekki vakið öfund og illvild, enda talar Kristmann um fjandskap ókunnra manna þegar hann kom til Íslands 1935. Þegar nú við bættist að maðurinn var myndarlegur og bjó við kvenhylli þá varð þetta alveg óþolandi. Níu hjónabönd! Það var bæði hneykslanlegt og öfundsvert. Mér er til efs að nokkur maður á Íslandi hafi verið jafnmikið rægður og Kristmann var um miðja 20. öld. Varðandi mat á sögum Kristmanns, þá ætla ég ekki að lofa þær. Það eru bjórar í sumum bókum hans, einkum lýsingar á náttúruhamförum (svo sem ég hefi rakið í fyrrnefndir grein í TMM og í bók minni Guðbergur, bls 228-230), en persónusköpun lét honum ekki. T.d. í Gyðjunni og nautinu hleður hann hrósi á persónur í stað þess að skapa þær. Hann var róttækur, deildi á misskiptingu auðs í sögum sínum og sýndi fram á að sú misskipting bækli fólk andlega. Sú var enn hneigð fyrstu sögunnar sem hann gaf út eftir að hann fluttist til Íslands, Nátttröllið glottir, 1943. En lausnin var, rétt eins og í sögu hans, Sigmar (1930), stéttasamvinna, þ.e. að auðmaður deili eigum sínum með fátæklingum og að þeir berjist ekki gegn auðmanninum. Fyrir „skilningsleysi á vandamálum nútímans og þeim hinum sálrænu öflum sem sterkasta þættina spinna í örlagaþræði mannanna” var hann gagnrýndur árið 1931 af helsta bókmenntagagnrýnanda kommúnista þá, sr. Gunnari Benediktssyni. Það túlka ég sem ádeilu á skilningsleysi höfundar á gildi verkalýðsbaráttu, faglegrar og pólitískrar. Samt liðu nær tveir áratugir þangað til ráðist var á Kristmann frá vinstri (það gerði Steinn Steinarr 1948), og ég hefi leitt rök að því að í þeim andstæðum hafi Kristmann sjálfur átt frumkvæðið í gengisleysi sínu og fátækt upp úr miðri 20. öld. Rótgróna og útbreidda illvildina í garð sinn fór hann að skýra sem samsæri kommúnista upp úr seinni heimstyrjöld, í kalda stríðinu, einmitt þegar íslenskt bókmenntalíf var tvískipt pólitískt, og stalínistar höfðu mikil áhrif á það. Og þetta tókst honum, bókmenntaklúbbur hægrimanna, Almenna bókmenntafélagið, tók hann upp á arma sína, Morgunblaðið líka, og hann fékk hlutverk píslarvotts í þessu stríði. Og heimildir eru um að kommar ginu yfir þessu agni. Jón Óskar hefur lýst því í sínum endurminningum (1971, bls. 176-187), hvernig talað var um helstu skáld hægrimanna á kaffihúsi komma á Þórsgötu 1 á 6. áratug 20. aldar (bls. 182)…. Þar er m.a. vísað til þess að Thor Vilhjálmsson sagði um miðja öldina að þegar menntamálaráðherra lét Kristmann annast bókmenntakynningu í skólum landsins væri það eins og að láta Kristmann spræna yfir þjóðina. Kristmann höfðaði þá meiðyrðamál gegn Thor og vann. Hvað sem mönnum finnst um það verða viðbrögð Kristmanns ekki kölluð vænisýki, hann hafði ærna ástæðu til að finnast hamast gegn sér. Allar þessar heimildir voru og eru auðfundnar. Mér finnst að Gunnþórunn hefði átt að skyggnast í þær heimildir, út fyrir sjálfsævisögu Kristmanns. Það eru óboðleg vinnubrögð að stimpla manninn vænisjúkan við að líta hjá samtímaheimildum um málið. Heimildir: Gunnar Benediktsson: Kristmann Guðmundsson: Sigmar....Iðunni 1931, bls. 193-5. Gunnþórunn Guðmundsdóttir: „Hvorki annálar né vísindaleg sagnfræði“ Skyggnst um í sjálfsævisögu Kristmanns Guðmundssonar. Skírni 2012, bls. 396-404. Jón Óskar: Gangstéttir í rigningu. Rvík 1971. Örn Ólafsson: Kommúnistar og borgaralegir höfundar. Tímarit Máls og menningar 2000, 4. hefti, bls. 35-38. Þar er vísað í heimildir. Örn Ólafsson: Guðbergur. Rvík 2012. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Norræna módelið: Af hverju refsum við kaupendum en ekki þeim sem selja? Drífa Snædal Skoðun Sundlaugin er ekki vandamálið Unnur Helga Óttarsdóttir Skoðun Burt með bölvað ofstækið Hjörtur Magni Jóhannsson Skoðun Eru andstæðingar þjóðarmorðs í Palestínu sérlegir stuðningsmenn Hamas-samtakanna? Finnur G Olguson Skoðun Halldór 31.10.26 Halldór Þroskahjálp 50 ára: Krefjumst þess að stjórnvöld standi við þau réttindi sem þau hafa sjálf lögfest Bryndís Snæbjörnsdóttir Skoðun Hvað hafa börnin gert fyrir okkur? Skoðun Brjóstaskimun enn mikilvæg? Anna Kristín Höskuldsdóttir,Helga Tryggvadóttir,Inga Reynisdóttir,Ólöf Kristjana Bjarnadóttir,Þórður Tryggvason Skoðun Það sem allir vilja hafa – en enginn vill sjá S. Hjörtur Guðjónsson Skoðun Viðey – perla í dvala Gunnar Salvarsson Skoðun Skoðun Skoðun Þroskahjálp 50 ára: Krefjumst þess að stjórnvöld standi við þau réttindi sem þau hafa sjálf lögfest Bryndís Snæbjörnsdóttir skrifar Skoðun Norræna módelið: Af hverju refsum við kaupendum en ekki þeim sem selja? Drífa Snædal skrifar Skoðun Hvað hafa börnin gert fyrir okkur? skrifar Skoðun Hugmyndakassinn Perla Hafþórsdóttir skrifar Skoðun Losun Íslands á jarðefnaeldsneyti og ómarkviss og ósanngjörn skattheimt Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Hvar endar ráðaleysið? Þegar sveitarfélögin eru komin í gildru skammtímaniðurskurðar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Hvers virði er verndarskyldan ef upplýsingagjöfin skapar hættuna? Herdís Ósk Sveinbjörnsdóttir skrifar Skoðun Óðinn heldur fyrir heila augað Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Hneykslan og hræsni: Hvers vegna sum hatursorðræða er ásættanleg en önnur ekki Ian McDonald skrifar Skoðun Samstaða um Suðurnesin sem drifkraft vaxtar skrifar Skoðun Eru andstæðingar þjóðarmorðs í Palestínu sérlegir stuðningsmenn Hamas-samtakanna? Finnur G Olguson skrifar Skoðun Sundlaugin er ekki vandamálið Unnur Helga Óttarsdóttir skrifar Skoðun Það er ekki nóg að hækka róminn Þorgrímur Sigmundsson skrifar Skoðun Má manneskja skipta um trú — og halda lífi? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Tilkoma gervigreindar – kötturinn í Undralandi? Ólafur Aron Sveinsson skrifar Skoðun Veistu hvaða netvíti á að varast? Vilhjálmur Alvar Þórarinsson skrifar Skoðun Borgarnesréttlætið – saga úr umferðinni Guðmundur H Guðjónsson skrifar Skoðun Viðskiptaráð og Láki jarðálfur Andri Snær Magnason skrifar Skoðun Fertugt félag sem ætlar ekki að setjast í helgan stein Guðrún Barbara Tryggvadóttir skrifar Skoðun Ráðherra innviða tók af skarið: Reglugerð um vanhæfismörk við stjórn ökutækis loks gefin út Vilhjálmur Hjálmarsson skrifar Skoðun Um fóbíu og hatur á Íslam Sverrir Agnarsson skrifar Skoðun Gerast enn kraftaverk á Íslandi? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Viðey – perla í dvala Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Er öryggi barna sökkvandi skip? Alfa Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Brjóstaskimun enn mikilvæg? Anna Kristín Höskuldsdóttir,Helga Tryggvadóttir,Inga Reynisdóttir,Ólöf Kristjana Bjarnadóttir,Þórður Tryggvason skrifar Skoðun Það sem allir vilja hafa – en enginn vill sjá S. Hjörtur Guðjónsson skrifar Skoðun Burt með bölvað ofstækið Hjörtur Magni Jóhannsson skrifar Skoðun Tíu ár af skattfrjálsri ráðstöfun Daði Már Kristófersson skrifar Skoðun Farsælt ferðalag fólks og villts fisks Ingvi Örn Þorsteinsson skrifar Skoðun Til hamingju, Runólfur! Ragnar Freyr Ingvarsson skrifar Sjá meira
Eru andstæðingar þjóðarmorðs í Palestínu sérlegir stuðningsmenn Hamas-samtakanna? Finnur G Olguson Skoðun
Þroskahjálp 50 ára: Krefjumst þess að stjórnvöld standi við þau réttindi sem þau hafa sjálf lögfest Bryndís Snæbjörnsdóttir Skoðun
Brjóstaskimun enn mikilvæg? Anna Kristín Höskuldsdóttir,Helga Tryggvadóttir,Inga Reynisdóttir,Ólöf Kristjana Bjarnadóttir,Þórður Tryggvason Skoðun
Skoðun Þroskahjálp 50 ára: Krefjumst þess að stjórnvöld standi við þau réttindi sem þau hafa sjálf lögfest Bryndís Snæbjörnsdóttir skrifar
Skoðun Norræna módelið: Af hverju refsum við kaupendum en ekki þeim sem selja? Drífa Snædal skrifar
Skoðun Losun Íslands á jarðefnaeldsneyti og ómarkviss og ósanngjörn skattheimt Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar
Skoðun Hvar endar ráðaleysið? Þegar sveitarfélögin eru komin í gildru skammtímaniðurskurðar Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Hvers virði er verndarskyldan ef upplýsingagjöfin skapar hættuna? Herdís Ósk Sveinbjörnsdóttir skrifar
Skoðun Hneykslan og hræsni: Hvers vegna sum hatursorðræða er ásættanleg en önnur ekki Ian McDonald skrifar
Skoðun Eru andstæðingar þjóðarmorðs í Palestínu sérlegir stuðningsmenn Hamas-samtakanna? Finnur G Olguson skrifar
Skoðun Ráðherra innviða tók af skarið: Reglugerð um vanhæfismörk við stjórn ökutækis loks gefin út Vilhjálmur Hjálmarsson skrifar
Skoðun Brjóstaskimun enn mikilvæg? Anna Kristín Höskuldsdóttir,Helga Tryggvadóttir,Inga Reynisdóttir,Ólöf Kristjana Bjarnadóttir,Þórður Tryggvason skrifar
Eru andstæðingar þjóðarmorðs í Palestínu sérlegir stuðningsmenn Hamas-samtakanna? Finnur G Olguson Skoðun
Þroskahjálp 50 ára: Krefjumst þess að stjórnvöld standi við þau réttindi sem þau hafa sjálf lögfest Bryndís Snæbjörnsdóttir Skoðun
Brjóstaskimun enn mikilvæg? Anna Kristín Höskuldsdóttir,Helga Tryggvadóttir,Inga Reynisdóttir,Ólöf Kristjana Bjarnadóttir,Þórður Tryggvason Skoðun