Lífið

Ómetanlegt að finna fyrir stuðningnum

Tinna Rós Steinsdóttir skrifar
Flottur fulltrúi Eyþór Ingi klæddist fatnaði frá NTC á sviðinu á fimmtudaginn og tók sig frábærlega vel út. Hann verður í sömu fötum í keppninni í kvöld. 	Nordicphotos/AFP
Flottur fulltrúi Eyþór Ingi klæddist fatnaði frá NTC á sviðinu á fimmtudaginn og tók sig frábærlega vel út. Hann verður í sömu fötum í keppninni í kvöld. Nordicphotos/AFP

„Fiðrildin gerðu vart við sig rétt áður en ég steig á svið en þegar ég heyrði fagnaðarlætin og fann fyrir stuðningnum fannst mér ég svo velkominn að það var ekki annað hægt en að vera afslappaður,“ sagði Eurovision-stjarnan Eyþór Ingi þegar Fréttablaðið náði af honum tali í gær.

Eyþór heillaði Evrópu upp úr skónum í undankeppninni á fimmtudaginn og fleytti íslenska framlaginu, Ég á líf, áfram í úrslitin sem fara fram í kvöld. Hann átti greinilega stóran aðdáendahóp í Malmö á fimmtudagskvöldið því þakið ætlaði að rifna af höllinni þegar hann steig á sviðið og að flutningnum loknum tók ekkert minna við.

„Fyrir okkur er mestur sigur að við höfum komist áfram á íslenskunni. Ég er svo búinn að setjast yfir upptöku af atriðinu og fannst þetta bara koma ágætlega út. Maður er samt alltaf mest gagnrýninn á sjálfan sig og skoðar öll smáatriði,“ sagði Eyþór sem tók sigurkvöldinu rólega.

„Nokkrir strákana fóru í partý en ég fór beint á blaðamannafund og í alls konar viðtöl og það saug bara upp það sem eftir var af orkunni. Ég fór því beint heim á hótel eftir það. Þar beið fjölskyldan eftir mér svo það var aðeins knúsast og svo henti ég mér bara beint í bólið,“ sagði hann.

Það vakti mikla athygli hér heima fyrir hversu duglegur Eurovision-hópurinn var á Facebook á meðan á keppni stóð og spurður sagðist Eyþór nokkuð viss um að þeir yrðu í beinni úr Græna herberginu í kvöld líka. „Hvenær er Pétur ekki duglegur á Facebook,“ sagði hann og hló. „Við Pétur tókum mynd af okkur á meðan kosningarnar stóðu yfir og skelltum henni á Facebook. Á örfáum mínútum fékk hún einhver 8.000 læk. Það var ómetanlegt að finna fyrir stuðningnum svona beint í æð. Við hvetjum fólk bara til að halda áfram að fylgjast með okkur inni á like-síðunni á Facebook,“ bætti hann við.

Eyþór verður 19. á svið í kvöld en sagðist hvorki velta sér mikið upp úr röðuninni né úrslitunum. „Fyrst og fremst er bara ógeðslega gaman að fá þrjár mínútur í viðbót á sviðinu. Það er ólýsanleg tilfinning að koma fram fyrir svona stórum sal. Ég ætla bara að setja allan fókus á að skila laginu vel, eins og ég hef gert hingað til,“ sagði hann og skilaði góðri kveðju heim til Íslands.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.