Dúkka sem getur hjálpað fyrirburum Óli Kristján Ármannsson skrifar 14. maí 2013 12:00 Eyrún Eggertsdóttir Fer fyrir sprotafyrirtækinu Róró, sem hlaut Gulleggið árið 2011. Mynd/RóRó
Fjöldaframleiðsla á Lúllu, dúkku sem líkir eftir nærveru annarrar manneskju, hefst í sumar. Inni í dúkkunni er tæki sem líkir eftir hjartslætti og andardrætti sofandi móður. Eyrún Eggertsdóttir, frumkvöðullinn að baki dúkkunum, segir standa til að selja þær á almennum markaði en að auki eru fyrirhugaðar tilraunir á Landspítalanum til að meta hvort dúkkan kunni að auka lífslíkur og efla þroska fyrirbura. „Við byrjum á því að láta framleiða 500 til 1.000 stykki,“ segir Eyrún. Fyrsta kastið verða dúkkurnar seldar í völdum verslunum hér heima og í netverslun Amazon.Lúlla Fjöldaframleiðsla á Lúllu hefst í sumar. Nærvera er sögð hafa góð áhrif á þroska og líðan barna, en dúkkan líkir eftir hjartslætti og andardrætti sofandi móður.Mynd/RóRó„Dúkkurnar eru aðallega hugsaðar fyrir nýbura og fyrirbura,“ segir hún, en hugmyndin var að búa til dúkku sem gæti verið nokkurs konar staðgengill foreldris hjá fyrirbura sem þarf að vera í hitakassa. „Markmiðið með nálægðartilfinningunni er að koma jafnvægi á öndun og hjartslátt hjá börnunum, en þar eru nýburar og fyrirburar helst viðkvæmir fyrir.“ Eyrún margt unnið með því að koma betra jafnvægi á líðan og líkamsstarfsemi nýburanna. „Svefninn verður betri og heilbrigðari og taugaþroski eykst. Í þessu leiðir eitt af öðru, jákvæðari tilfinningar og minni grátur verða til þess að þau þyngjast hraðar og þroskast fyrr.“ Eyrún segist strax í upphafi hafa borið hugmynd sína undir lækna og hjúkrunarfræðinga til að tryggja að hún væri ekki á villigötum og fengið góðar viðtökur. Sjálf hafði hún stundað nám í sálfræði og heillast af lýsingum á áhrifum nærveru á þroska barna. Hugmyndin varð hins vegar til eftir að vinkona Eyrúnar eignaðist fyrirbura sem lenti í öndunarhléi á spítalanum. „Það fór allt vel en ég man eftir að hafa hugsað með mér að kannski hefði þetta ekki gerst ef það hefði verið aðstaða fyrir móðurina hjá barninu á spítalanum. Þá datt mér hug hvað væri frábært ef eitthvað væri til sem maður gæti skilið eftir sem væri eins og lítill staðgengill fyrir mann á sjúkrahúsinu.“ Í beinu framhaldi skráði Eyrún sig í hugmyndasamkeppni á vegum Hugmyndahúss háskólanna og í kjölfarið fór boltinn að rúlla þegar hún fékk þar hvatningarverðlaun árið 2010.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Viðskipti innlent Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Viðskipti innlent Daníel Þór frá Kviku til Reita Viðskipti innlent Greiðsluáskorun Samstarf Úrvalsdekk hönnuð fyrir Tesla og hátækni rafbíla nú fáanleg á Íslandi Samstarf Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Viðskipti innlent Ætla að opna verslunarkjarna á Korputúni Viðskipti innlent Eru greiðsludreifingar virkilega jafn hentugar og allir segja? Viðskipti innlent Gjaldskrá Strætó hækkuð á ný Neytendur Allt að 35% ódýrari leigubílaferðir með Hopp Samstarf Fleiri fréttir Daníel Þór frá Kviku til Reita Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Ætla að opna verslunarkjarna á Korputúni Eru greiðsludreifingar virkilega jafn hentugar og allir segja? Höfðar til ábyrgðar olíufélaga og segir verðið nú þegar óeðlilegt Atvinnulausum verkamönnum fjölgar um fjörutíu prósent Tækifæri fylgi flugi frá Kína en einnig hættur Upptaka evru myndi ekki einungis hafa áhrif á vexti Opna fjórðu SPAR-verslunina á morgun Rammagerðin leitar nauðasamninga Sameinaður sjóður ætti rúma þúsund milljarða Bláa lónið eykur hlut sinn í þremur baðlónum Dóra Björt ráðin deildarstjóri Hækkun á heilsugæslu auki verðbólgu í ágúst Tvær stöndugar fasteignasölur sameinast Plantan kveður Norræna húsið: „Dæmið er ekki alveg að ganga upp“ Nýr kokteilbar opnaður á Hverfisgötu: „Okkur langaði bara að opna dyrnar sem fyrst“ Kristinn V. Jóhannsson er látinn Hugrún nýr markaðsstjóri Defend Iceland Kaupa allt hlutafé í Nicetravel Fluttu eitt prósent færri farþega en í júní á síðasta ári Fá AA- í einkunn Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Loka Te og kaffi á Suðurlandsbraut Eitt app fyrir ferðamenn til að skemmta sér og forðast hættur Of snemmt að draga fram heykvíslar Sjá meira