Köllun Gunnars Linda Baldvinsdóttir skrifar 2. maí 2013 11:30 Mánudaginn 22 apríl sl. birtist í DV lítil frétt þar sem Gunnar Þorsteinsson fyrrverandi forstöðumaður Krossins tjáði sig með eftirfarandi hætti: „Sá sem er eitt sinn kallaður af guði býr við það að köllun guðs víkur ekki frá honum,“ segir Gunnar Þorsteinsson, áður kenndur við Krossinn, aðspurður hvort hann hafi í hyggju að reyna að komast aftur til valda innan Krossins. Ég finn mig knúna til að bregðast við þessum orðum Gunnars, get ekki orða bundist. Gunnar Þorsteinsson virðist ekki skilja að hans tími er liðinn, köllunin sem hann segist finna birtist mér hið minnsta með undarlegum hætti. Köllunin sem Gunnar finnur tel ég vera löngun til að koma til „starfa“ fyrir hann sjálfan í húsnæði Krossins. Rétt er að halda því skilmerkilega til haga að undirrituð er móðir einnar þeirra er kærðu Gunnar, fóru gegn honum opinberlega. Ég er trúaður einstaklingur og hef verið lengi. Ég á virkt og lifandi trúarlíf, trúi á mátt, anda og afl Guðs. Ég hef tilheyrt hvítasunnukirkju í 15 ár og var virk í þjóðkirkjunni áður fyrr. Mig langar að segja mína skoðun á köllun Guðs yfir lífi Gunnars. Ég hef nú um nokkurt skeið sótt samkomur Krossins og fullyrði að ég get gert marktækan samanburð á þeirri kirkju, fyrir og eftir Gunnar Þorsteinsson. Sigurbjörg dóttir Gunnars hefur á sínum tíma sem forstöðumaður Krossins byggt kirkjuna upp frá núllpunkti. Núllpunktur er hér í tvenns konar merkingu, trúarlegri merkingu og svo þeirri sem mælir aðsókn að samkomum en hún hefur margfaldast frá því Gunnar neyddist til að stíga til hliðar. Gríðarleg vakning er að eiga sér stað í kirkjunni. Trúaðir vita hvað átt er við þegar talað er um vakningu. Vakning er ekki mannanna verk nema að litlum hluta en þó er fullvíst að mannanna verk geta komið í veg fyrir trúarvakningu. Framganga Gunnars undanfarið bendir ekki til þess að hann beri virðingu fyrir því verki sem Guð er svo sannarlega að vinna í kirkjunni, þar sýnist mér aðrir hagsmunir og veraldlegri ráða för. Söfnuðir eins og Krossinn þurfa búa við allskyns fordóma, eða hvað? Krossinn sem Gunnar veitti forstöðu var kannski bara fordómafull kirkja. Kreddur um klæðnað og framkomu kvenna voru ráðandi, þær áttu ekki að klæðast þannig að þær vektu upp kenndir hjá körlum. Menntun kvenna var töluð niður, sjónvarpið var frá djöflinum, dómharka í stað umburðarlyndis og kærleika. Hvernig getur slík kirkja barmað sér undan fordómum? Kirkjan sem Gunnar varð að fara frá er ekki lengur þessi kirkja. Í Krossinum í dag er hvergi gefið eftir í trú á ritninguna og hvatningin til safnaðarins um líf í fullri gnægð er einlæg og sterk. En það sem fyllir hús Guðs í Hlíðarsmáranum í dag er virðing fyrir fólki. Umburðarlyndi og auðsýndur kærleikur um leið og orðið er predikað af styrk og þrótti. Þar sem borin er virðing fyrir einstaklingum og reynt að byggja hvern og einn upp í Guðsótta og góðum siðum um leið. Þar sem kærleikur og auðmýkt andans er öllum ljós, þar sem fordómaleysi er grunnstef...... Margt má um Gunnar Þorsteinsson segja en hann verður seint sakaður um vanþekking á ritningunni og í minni hans ætti því að vera til skýr mynd af því hvernig Guðs blessun birtist söfnuðum. Gunnari ætti einnig að vera fullljóst að það starf sem verið er að vinna í kirkjunni í dag, sem hann virðist telja fyrir einhvern misskilning vera í sinni eign, er frá Guði komið og ekki mönnum. Gunnar er auðvitað meðvitaður um þá gríðarlega auknu kirkjusókn sem Krossinn býr við frá því hann hvarf þaðan á braut. Þegar eiginhagsmunir Gunnars veraldlegir knýja á grunar mig að hann gleymi kannski Guði sínum. Það vita þeir sem vilja vita að Gunnar hefur verið eins og stjórnmálamaður í prófkjöri undanfarið, óþreytandi að afla sér fylgismanna fyrir aðalfund Krossins sem framundan er. Menn eru ekki í stórum stíl að skora á Gunnar, Gunnar er að skora á menn, og innheimta það sem hann skilgreinir sem sinn stuðning við fólk frá fyrri tíð. Síðan hvenær varð elska Guðs skilyrt Gunnar? Og hver gefur þér heimild til að innheimta hana með þeim hætti sem vitni eru um þessa dagana? Galgopaháttur Gunnars, hans eigið orðalag, gagnvart konum og stúlkum varð til þess að hann varð frá að hverfa. Sú saga verður ekki til lykta leidd fyrir mannlegum dómstólum af tæknilegum ástæðum. Margt hefur verið um það mál sagt og skrifað og enn er sú saga að fá nýja kafla þegar Gunnar hyggst hafa af talskonum þeirra kvenna sem á hann báru galgopaháttinn, stórfé. Fyrirgefningin og auðmýktin er svo fjarri. Kærleikurinn og köllunin. Fullvissa þess sem veit að hann gengur saklaus. Þeir sem gista Guðsríkið fara ekki fram með þeim hætti sem þau hjón gera gagnvart fólki sem verður fyrir galgopaskap forstöðumannsins fyrrverandi. Hvar er sjálfsvirðingin? Mannvirðingin...Hvar er Guðleg hegðunin þegar á bjátar? Iðrunin.... Hvað hefur Gunnar Þorsteinsson að bjóða þeim sem þurfa sálgæslu og leiðbeining? Hvað knýr hann til að koma núna um leið og hann reynir að draga fjölmiðla og fólk sem ekki hefur annað til saka unnið en að standa með vinum sínum fyrir dómstóla og krefja það um stórfé? Ég vona að Gunnar eigi slíka vini að sem standa með honum þegar sjórinn gárast sem mest. Slíkt er fjársjóður hverjum manni og lágkúra þess sem krefur fólk sem sýnir samstöðu og vináttu um peninga vináttunnar vegna, jafnast á við fátt sem ég man eftir. Guðlegt er það ekki.... Kannski þjónar engum tilgangi að ræða Guð við þau hjón Gunnar og Jónínu. Þau átök og það stríð sem þau vilja heyja til að komast yfir það sem þau virðast vilja líta á sem eign Gunnars, sem er ekki annað en söfnuður fólks sem elskar sinn Guð, eru þau ekki að heyja á kristnum nótum. Mig grunar að sú barátta snúist að mestu um veraldlega hluti. Vel má vera að Gunnari takist að komast aftur til vinnu í húsi Guðs og hafa af því lifibrauð öfugt við þá sem nú hafa forstöðu í Krossinum og þiggja ekki fyrir það laun. En söfnuðurinn sem nú sækir Krossinn er ekki eign Gunnars Þorsteinssonar, og ekki heldur dóttur hans sem stýrir kirkjunni í dag. Við kaupum okkur ekki virðingu, við náum henni ekki fram með þvingunum af neinu tagi. Ekki ætla ég að halda því fram að Gunnar hafi ekki gert góða hluti fyrir söfnuðinn sem heild og einstaklinga á langri vegferð sinni. En tími reiði og átaka er liðinn í söfnuðinum. Sá þrýstingur sem þau hjón beittu fólki þegar kvennamál forstöðumannsins fyrrverandi voru í brennidepli er þannig að Gunnar Þorsteinsson á ekki afturkvæmt nema hann vopnist auðmýkt og finni til iðrunar. Að hann hafi kærleikann að leiðarljósi. Ég fyrir mitt leyti mun beita mér af alefli fyrir því að Sigurbjörg dóttir Gunnarsdóttir fái áframhaldandi umboð til þess að veita söfnuðinum forstöðu. Söfnuði þar sem manngildi og auðmýkt andans ráða för. Þar sem kærleikur eins og sá sem Kristur sýndi er einkennandi. Þar sem orð Guðs er predikað í sterkri og einlægi köllun. Í djúpri trú á innihald orðsins. Þar sem leiðtogar kirkjunnar bera takmarkalausa virðingu fyrir söfnuðinum. Slík kirkja þarf ekki á Gunnari Þorsteinssyni að halda. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Norræna módelið: Af hverju refsum við kaupendum en ekki þeim sem selja? Drífa Snædal Skoðun Hægrisveiflan ýkta Egill Ö. Hermannsson Skoðun Þú átt nóg og þú ert nóg Ragnhildur Katla Jónsdóttir Skoðun Eru andstæðingar þjóðarmorðs í Palestínu sérlegir stuðningsmenn Hamas-samtakanna? Finnur G Olguson Skoðun Þroskahjálp 50 ára: Krefjumst þess að stjórnvöld standi við þau réttindi sem þau hafa sjálf lögfest Bryndís Snæbjörnsdóttir Skoðun Ráðherrann sem skiptir litlu máli Arnar Sigurðsson Skoðun Halldór 31.10.26 Halldór Sundlaugin er ekki vandamálið Unnur Helga Óttarsdóttir Skoðun Vafasama Viðreisn Júlíus Valsson Skoðun Hvað hafa börnin gert fyrir okkur? Skoðun Skoðun Skoðun Hvað viltu verða þegar þú verður stór? Jónína Lovísa Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Vafasama Viðreisn Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þú átt nóg og þú ert nóg Ragnhildur Katla Jónsdóttir skrifar Skoðun Eru jólin hátíð barnanna eða bara þeirra sem hafa efni á þeim? Inga V. Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Hægrisveiflan ýkta Egill Ö. Hermannsson skrifar Skoðun Ráðherrann sem skiptir litlu máli Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þroskahjálp 50 ára: Krefjumst þess að stjórnvöld standi við þau réttindi sem þau hafa sjálf lögfest Bryndís Snæbjörnsdóttir skrifar Skoðun Norræna módelið: Af hverju refsum við kaupendum en ekki þeim sem selja? Drífa Snædal skrifar Skoðun Hvað hafa börnin gert fyrir okkur? skrifar Skoðun Hugmyndakassinn Perla Hafþórsdóttir skrifar Skoðun Losun Íslands á jarðefnaeldsneyti og ómarkviss og ósanngjörn skattheimt Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Hvar endar ráðaleysið? Þegar sveitarfélögin eru komin í gildru skammtímaniðurskurðar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Hvers virði er verndarskyldan ef upplýsingagjöfin skapar hættuna? Herdís Ósk Sveinbjörnsdóttir skrifar Skoðun Óðinn heldur fyrir heila augað Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Hneykslan og hræsni: Hvers vegna sum hatursorðræða er ásættanleg en önnur ekki Ian McDonald skrifar Skoðun Samstaða um Suðurnesin sem drifkraft vaxtar skrifar Skoðun Eru andstæðingar þjóðarmorðs í Palestínu sérlegir stuðningsmenn Hamas-samtakanna? Finnur G Olguson skrifar Skoðun Sundlaugin er ekki vandamálið Unnur Helga Óttarsdóttir skrifar Skoðun Það er ekki nóg að hækka róminn Þorgrímur Sigmundsson skrifar Skoðun Má manneskja skipta um trú — og halda lífi? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Tilkoma gervigreindar – kötturinn í Undralandi? Ólafur Aron Sveinsson skrifar Skoðun Veistu hvaða netvíti á að varast? Vilhjálmur Alvar Þórarinsson skrifar Skoðun Borgarnesréttlætið – saga úr umferðinni Guðmundur H Guðjónsson skrifar Skoðun Viðskiptaráð og Láki jarðálfur Andri Snær Magnason skrifar Skoðun Fertugt félag sem ætlar ekki að setjast í helgan stein Guðrún Barbara Tryggvadóttir skrifar Skoðun Ráðherra innviða tók af skarið: Reglugerð um vanhæfismörk við stjórn ökutækis loks gefin út Vilhjálmur Hjálmarsson skrifar Skoðun Um fóbíu og hatur á Íslam Sverrir Agnarsson skrifar Skoðun Gerast enn kraftaverk á Íslandi? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Viðey – perla í dvala Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Er öryggi barna sökkvandi skip? Alfa Jóhannsdóttir skrifar Sjá meira
Eru andstæðingar þjóðarmorðs í Palestínu sérlegir stuðningsmenn Hamas-samtakanna? Finnur G Olguson Skoðun
Þroskahjálp 50 ára: Krefjumst þess að stjórnvöld standi við þau réttindi sem þau hafa sjálf lögfest Bryndís Snæbjörnsdóttir Skoðun
Skoðun Eru jólin hátíð barnanna eða bara þeirra sem hafa efni á þeim? Inga V. Henriksen Bergdal skrifar
Skoðun Þroskahjálp 50 ára: Krefjumst þess að stjórnvöld standi við þau réttindi sem þau hafa sjálf lögfest Bryndís Snæbjörnsdóttir skrifar
Skoðun Norræna módelið: Af hverju refsum við kaupendum en ekki þeim sem selja? Drífa Snædal skrifar
Skoðun Losun Íslands á jarðefnaeldsneyti og ómarkviss og ósanngjörn skattheimt Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar
Skoðun Hvar endar ráðaleysið? Þegar sveitarfélögin eru komin í gildru skammtímaniðurskurðar Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Hvers virði er verndarskyldan ef upplýsingagjöfin skapar hættuna? Herdís Ósk Sveinbjörnsdóttir skrifar
Skoðun Hneykslan og hræsni: Hvers vegna sum hatursorðræða er ásættanleg en önnur ekki Ian McDonald skrifar
Skoðun Eru andstæðingar þjóðarmorðs í Palestínu sérlegir stuðningsmenn Hamas-samtakanna? Finnur G Olguson skrifar
Skoðun Ráðherra innviða tók af skarið: Reglugerð um vanhæfismörk við stjórn ökutækis loks gefin út Vilhjálmur Hjálmarsson skrifar
Eru andstæðingar þjóðarmorðs í Palestínu sérlegir stuðningsmenn Hamas-samtakanna? Finnur G Olguson Skoðun
Þroskahjálp 50 ára: Krefjumst þess að stjórnvöld standi við þau réttindi sem þau hafa sjálf lögfest Bryndís Snæbjörnsdóttir Skoðun