Tónleikar í sænskri setustofu Freyr Bjarnason skrifar 23. apríl 2013 07:00 Árstíðir spiluðu í eftirlíkingu af sænskri setustofu.
Hljómsveitin Árstíðir voru að ljúka þriggja vikna tónleikaferðalagi um Evrópu ásamt sænsku progg-þungarokkhljómsveitinni Pain of Salvation, sem Ragnar Sólberg leikur með, og hollensku söngkonunni Anneke Van Giersbergen. Samtals spiluðu þau á átján tónleikum í ellefu löndum og voru m.a. haldnir tónleikar fyrir troðfullu húsi í París og London. Lokatónleikarnir voru í þýsku borginni Essen á sunnudaginn. Með á tónleikaferðalaginu var sviðsmynd sem Daniel Gildenlöw, söngvari Pain of Salvation, lét útbúa sérstaklega fyrir túrinn. Hugmyndin að hönnun sviðsins var sótt aftur til áttunda áratugarins og var þar líkt eftir klassískri sænskri setustofu þar sem ávallt er von á því að gestir láti sjá sig án þess að gera boð á undan sér. Þannig var hefðbundin tónleikadagskrá brotin upp og meðlimir mismunandi sveita sameinuðu krafta sína í ólíkum lögum. Árstíðamenn verða uppteknir við tónleikahald erlendis það sem eftir lifir af árinu. Á döfinni er önnur tónleikaferð um Mið-Evrópu í júlí þar sem þeir spila m.a. á þjóðlagahátíðinni TFF Rudolstadt í Þýskalandi sem er sú stærsta sinnar tegundar þar í landi. Auk þess hefur hljómsveitin verið bókuð á hátíðina NXNE (North by North East) í Toronto í Kanada í júní.
Mest lesið Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga Lífið Sigrún Ósk mætt á RÚV Lífið „Verstur af öllu er helvítis doðinn, vera heima og vorkenna sér“ Tónlist Pétur og Birgitta nýtt par Lífið Persónuleg Vala Matt opnar sig um einkalífið Lífið Hvað veistu um... gönguleiðir? Lífið TikTok-stjörnur fjölga mannkyninu Lífið Fallegar kveðjur og ósagðar sögur af meistara grínsins Lífið „Ég þurfti að segja heiminum að þú værir með krabbamein“ Lífið Lifandi menning í hjarta Hafnarfjarðar Lífið samstarf Fleiri fréttir Sökuð um að siga fylgjendum á móður fyrrverandi Iceguys í erlendum raunveruleikaþætti TikTok-stjörnur fjölga mannkyninu Pétur og Birgitta nýtt par Sigrún Ósk mætt á RÚV Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga Hvað veistu um... gönguleiðir? „Ég þurfti að segja heiminum að þú værir með krabbamein“ Persónuleg Vala Matt opnar sig um einkalífið Fallegar kveðjur og ósagðar sögur af meistara grínsins Faldi diktafóna, tók myndir og át til að fanga stemminguna Uppeldisfræðingurinn reyndist vel sósuð fótboltabulla Öldrunarlæknir og verkfræðingur selja miðbæjarperlu Ungfrú Austurríki látin aðeins 22 ára Leiðir skilja hjá leikhúspari Stærðarinnar hola gleypti innkeyrslu Cage Nornir komu saman á miðilsfundi Átti óheillavænlegt samtal við Kennedy fyrir flugslysið: „Ég þarf ekki aðstoðarflugmann“ Prinsinn hefur nám við Eton-skóla Hafnaði tæpum fimm milljarða þagnarsamningi Musks South Park verður South America Kappsmál sett á ís Áslaug Arna setur lúxusíbúð á leigu Hvað veistu um… textana hans Bubba? Engin ákvörðun tekin um Eurovision þátttöku Sögufrægt verslunarhús til sölu Hélt allsherjar skilnaðarpartý: „Ég er frjáls“ Lést eftir mislukkaða typpastækkun í Taílandi „Brúðkaup aldarinnar“ hjá Önnu Fríðu og Sverri Stjörnulífið: Undir hárlengingum og bótoxi leynist íslenskur karlmaður Sjá meira